Samvinnan - 01.12.1986, Side 33

Samvinnan - 01.12.1986, Side 33
í þá daga voru bækur dýrgripir, næstum eins og helgur dómur. Með hverri nýrri bók sem barst kom andblær ókunnra heima. Málverk af Einari Benedikts svni eftir Gunnlaug Blöndal listmálara. Gömlu konurnar í baðstofunni kunnu ekki að meta slíka kynngi. En frændi lét það ekki á sig fá. Hann hafði fundið sitt skáld og það átti við hann brýnt erindi og gagnkvæmt. „En stoltastur ertu og stærstur í roki á haustin. Strandmölin grýtir landið. Þú seilist í naustin. Skýin, þau hanga á himninum slitin í tötra. Það hriktir í bænum, eins og kippt sé í fjötra.“ Víst hrikti í bænum og hugir fólksins urðu sem færðir upp á þráð. Kvæðið orkaði á það, líkt og afl þeirra ham- fara, sem það þekkti af sjón og raun í harðri lífsbaráttu. En frændi sat á stóli sínum, með hönd undir kinn og mælti fram kvæði sitt, svo sem uppspretta þess væri í hans eigin barmi. „Og alltaf ég man þig um mánaóttuna langa; þá mæna til stjarnanna skuggar eyja og dranga og vefjast í löngum örmum, sem risi og rýgur, - en röstin niðar í fjarlægð með blandaða strauma. Þinn barmur aðeins hrærist og hljóðlega stígur, er himneska segulfangið á móti þér hnígur. - Andvaka haf, í ómi glitrandi stranda aleinn ég dvel í stjörnuhöll minna drauma og lifi að nýju þeim ljóma í róm og í anda. - Mín léttustu spor eru grafin í þína sanda.“ Sem leikandi börnin á ströndu, er kætast og kvarta, með kufung og skel frá þínu banvæna fangi, ég teyga þinn óm frá stormsins og straumanna gangi, stirnandi klökka djúp, sem átt ekkert hjarta.“ Þannig flutti Skírnir Útsæ Einars Benediktssonar á ís- lenzkan heiðabæ, hörkuveturinn 1918. Sem framandi gestur kom hann. Ef til vill var ekki nema einn af hverj- um 10, sem hann átti brýnt og beint erindi við og varð djúpt snortinn af töfrum hans og kynngi. Átti þá skap- gerð og þann skilning, sem til hrökk. En enginn komst hjá þeim samfundum samur og jafn. Allir höfðu orðið fyrir nokkrum gjörningum af völdum skáldsins. Ungur drengur stóð máttvana við stól frænda síns. Of- vaxið var honum að skilja, utan það eitt, að hann hefði orðið vitni að einhverju heillandi og stóru. Þetta voru hans fyrstu kynni af skáldinu Einari Benediktssyni. 33

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.