Samvinnan - 01.12.1986, Qupperneq 41

Samvinnan - 01.12.1986, Qupperneq 41
við. Hún varð þekkt sem vinstrisinnaður höfundur með mjög róttækar skoðanir og var í allmörg ár flokksbund- inn kommúnisti, en sagt hefur verið um hana, að hún skrifi aldrei um pólitík, heldur eingöngu um fólk and- spænis pólitík, manninn séðan í afstöðu til stjórnmála. Hún hefur samið skáldsagna bálk um konu, sem sneri baki við borgaralegu umhverfi sínu eins og hún sjálf og vildi ryðja byltingunni braut og umbylta samfélaginu. En myndin, sem upp er dregin af kommúnisma hennar og öllu, sem honum fylgir, er síður en svo nein glans- mynd sanntrúaðs kommúnista, en að mörgu Ieyti mjög gagnrýnin, einkúm í mati höfundarins á manngildi og mannlegum verðmætum, sem Doris Lessing hefur sjálf- stæðar skoðanir á. Hún brást ekki þeim vonum, sem hún vakti um það í fyrstunni, að merkur höfundur hefði kvatt sér hljóðs, og bækur hennar hafa jafnan þótt tíðindum sæta, þótt ólíkar séu sín í milli. En iesendur hennar vita aldrei, upp á hverju hún kann að taka næst, og hún spannar svo vítt svið, að hinn stóri lesendahópur hennar tekur ekki öllum bókum hennar af jafn miklum áhuga. Hann getur blátt áfram ekki fylgt henni eftir. En óhætt er að taka af öll tvímæli um það, að hún er einn merkasti höfundur samtímans og óumdeildt stórveldi í enska heiminum. Doris Lessing fæddist í Kermansja í Persíu (íran) 1919. Faðir hennar var liðsforingi, og fimm ára fluttist hún með fjölskyldu sinni til Suður-Rhódesíu og ólst upp á stórum búgarði. Nám stundaði hún í stúlknaskóla í Sal- isbury og átti heima í Suður-Rhódesíu, unz hún fluttist til London, þá tvígift og tvískilin. Hvort hjónaband hennar stóð fjögur ár; Lessing var nafn seinni mannsins, og með honum eignaðist hún son. Eins og geta má nærri um jafn frægan höfund hafa henni verið veitt margs konar verðlaun og viðurkenning- ar í Bretlandi, Bandaríkjunum og víðar, og heilmikið hefur verið skrifað um hana og verk hennar. Skáldsögur hennar eru að minnsta kosti orðnar fimm- tán og smásagnasöfnin á annan tug. í smásögunum sést glöggt, hve hún á auðvelt með að lifa sig inn í ólíkt um- hverfi, afrískt, enskt, alþjóðlegt, og lýsa mannlegum ör- lögum af næmri tilfinningu. Þá hefur hún samið allmörg leikrit fyrir svið og sjónvarp; eitt þeirra er sjónvarpsgerð fyrstu skáldsögunnar. 1959 kom út eftir hana lítið ljóða- safn, og í fáeinum bókum hefur hún birt ritgerðir, minn- ingabrot og fleira, sem fróðlegt er að lesa fyrir þá, sem eru forvitnir um viðhorf hennar, reynslu og rithöf- undarferil. Þeirra á meðal er bók um Suður-Rhódesíu, „Heimleiðis“ (Going Home, 1959), og Breta og það sem enskt er, „í eltingaleik við hið enska“ (Pursuit of the English, 1960). # Hver er Martha Quest? „Hún var ung, og þess vegna hlaut hún að vera óhaming- jusöm; brezk og þess vegna óróleg og alltaf á varðbergi; uppi á fjórða tug tuttugustu aldarinnar og gat þess vegna ekki um annað hugsað en kynþáttavandamál og stétta- skiptingu; kvenmaður og varð þess vegna að afneita konum fortíðarinnar, sem báru hlekki.“ Þannig sér Martha Quest sjálfa sig í upphafi sam- nefndrar skáldsögu, sem út kom 1952 og var fyrsta sagan af fimm í sagnabálknum „Börn ofbeldisins“ (Children of Violence) eftir Doris Lessing. Hinar eru „Hjónaband við hæfi“ (A proper Marriage, 1954), „Stormgráð“ (A Ripple from the Storm, 1958), „Innilokuð“ (Landlock- ed, 1965) og „Borgin með fjögur hlið“ (The Four-Gated City, 1969). í þessum sagnabálki er þemað hin frj álsa kona og hlut- skipti hennar í ljósi innri og ytri skilyrða, en það gengur eins og rauður þráður í gegnum mörg af verkum höf- undarins. Nafn söguhetjunnar er varla nein tilviljun; margra spurninga er óspurt og þeim ósvarað og það gefið í skyn, áður en lagt er upp í langa ferð. Með öðrum orðum: hver er Martha Quest? Fyrstu fjórir hlutar sagnabálksins gerast í Afríku, áður en Rhódesíu-nýlendan öðlast sjálfstæði, en sá síð- asti í Bretlandi, þar sem Martha verður í fyrsta sinn að heyja alvarlega glímu við þá pólitísku hugmyndafræði, sem hún hefur aðhyllzt. Sögunni lýkur með ósköpum, sem þó verður að skilja svo, að ekki sé borin von, að Eyj- ólfur hressist og ómaksins vert að trúa á batnandi heim. Enginn vafi er á því, að í þessum sagnabálki er Doris Lessing að segja sína eigin þroskasögu, þó að hún kjósi sér skáldsöguformið og íklæðist gervi Mörthu Quest. Á uppvaxtarárum Mörthu horfa vandamál hennar misjafnlega við eftir því frá hvaða sjónarhóli er á þau horft, en eru þó alltaf til staðar, og í myndinni af vanda hennar - pólitískum, kynferðislegum, sálfræðilegum - eins og hann horfir við henni um miðja öldina er ekkert dregið undan. Hún er að leita að sjálfri sér, vill vita, hver hún er, og varðveita það, sem hún heldur, að sé hennar eigið sjálf, hvað sem það kostar, en vandi hennar virðist óleysanlegur, af því að hún er svo háð aðstæðum sínum. Hann er svo óumflýjanlegur, að hún getur ekki vikið honum frá sér, en hann hindrar hana um leið í sjálfsleit hennar og öllum skilgreiningum. Jafnframt elur hún á gremju sinni og tortryggni og lendir þess vegna í sjálf- heldu, sem hún á erfitt með að losna út úr eins og fleiri sögupersónur hjá Doris Lessing, sem gæddar eru sömu dæmigerðu skapgerðareinkennunum. Þegar Martha fer frá Afríku í fjórðu sögunni, er hún litlu sem engu þrosk- aðri en áður þrátt fyrir aldur sinn og reynslu. „Martha stóð upp, ungu konurnar tvær kysstust, og Martha fór út.“ Af málsgrein sem þessari, þar sem tónn- inn er í senn rólegur og snöggur, mætti ætla, að allt væri í föstum skorðum og stakasta lagi. Þó sýnist líf og reynsla Mörthu einatt hreinum tilviljunum háð, og því vindur smám saman fram í frásögninni í brotakenndum 41
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.