Samvinnan - 01.12.1986, Qupperneq 49

Samvinnan - 01.12.1986, Qupperneq 49
Frelsi konu, sem vill vera sterk og heilsteypt, veröur kviksyndi og skrípamynd. hrekur út í sinnuleysið og tilgangsleysið, uns henni finnst hún varla vera til lengur sem lifandi einstaklingur. Þá bindur hún enda á líf sitt, eftir að hafa um skeið lifað því í hótelherbergjum og stefnt því að þeim punkti af stað- festu, sem jaðrar við trúarlega ástríðu. Þess konar von- leysi og uppgjöf hefur verið algengt viðfangsefni ýmissa nútímahöfunda, en margir þeirra hafa fremur litið á það sem undantekningu en reglu. Andrúmsloftið í sögum Doris Lessing bendir til þess, að hún telji það mjög al- mennan og rökréttan reynsluþátt hjá þeim, sem hún skrifar um og þrauka margir við vonlaus skilyrði - lifa líf- inu þrátt fyrir allt, þótt einn og einn láti bugast. Hún er að skrifa um fólk og umhverfi þess í víðum skilningi og veit, að allir bregðast ekki eins við. Susan styttir sér aldur, og í „Gylltu minnisbókinni“ leiðir þrúgunin til sturlunar. En mitt í svartsýninni rofar stundum til. í smásögunni „Tveggja tal“ (Dialogue) er það karlmaður- inn, sem er ennþá hrjáðari en konan af einmanaleika og tilgangsleysi tilverunnar. Hún heimsækir hann, kaldan og sambandslausan við umhverfi sitt, upp á efstu hæð í nýtísku húsi, þar sem hann býr, og þau afreka ekki öllu meira en að setja plötu á fóninn, láta hugann reika, horfa út um gluggann - og tala saman. Allri lygi og blekkingum hefur verið vikið til hliðar, en samtal þeirra bendir til þess, að þrátt fyrir dapurleikann sé lífið þess virði, að lif- að sé. „Hvað sem öðru líður, þykist ég fara nær sann- leikanum en þú“, segir hann án þess að finna nokkra leið út úr ógöngunum. Þá verður henni hugsað sem svo, að þeir, sem eru einmana, bæði karlar og konur, hafi eigi að síður eitthvað að gefa af sjálfum sér, því að annars mætti öðrum vera sama um þá, það þarfnaðist þeirra enginn. Því er hins vegar öðruvísi farið, og sjálf finnur hún, að lauf af limgerði getur nægt til þess að ylja henni um hjartarætur og vekja hjá henni sterka lífskennd. # Mannþekking og lífsskilningur Á árunum, sem liðu frá því að „Leiðbeiningar um för niður til Vítis“ kom út og þangað til fyrsta sagan í geim- sagnabálki Doris Lessing birtist, samdi hún tvær skáld- sögur af allt öðru tagi. Hin fyrri var „Sumarið fyrir myrkur“ (The Summer Before the Dark, 1973). Aðal- persónan er Kate Brown, 45 ára gömul gift kona og móð- ir fjögurra uppkominna barna. Maður hennar er tauga- sérfræðingur í töluverðu áliti, og í sambúðinni við hann hefur Kate bælt vilja sinn, alltaf látið hann ráða ferðinni og tekið tillit til þarfa barna sinna. Hún hefur sætt sig við og leitað málamiðlunar og fórnað sér fyrir fjölskylduna. Sumarið, sem sagan gerist, er hún hins vegar allt í einu orðin ein í London. Hún er laus við allar skyldur og ábyrgð gagnvart fjölskyldunni í fyrsta sinn frá því að hún gifti sig, fær sér vinnu skamma hríð og reynir þá að nota sér þá reynslu, sem hún hefur öðlast í móðurhlutverk- inu, en jafnframt verður hún að horfast í augu við, að hún er farin að eldast. Hún lendir í stuttu ævintýri með ungum manni af meginlandinu, en bæði veikjast, og Kate fer aftur til London, þar sem sami draumurinn um eitthvað, sem hún verður að ljúka, leitar sífellt á hana í veikindum hennar. Hún grennist, liturinn á hári hennar breytist. í síðasta hluta sögunnar deilir hún húsnæði með sér yngri konu, sem þó hefur einnig áhyggjur af aldri sínum. Draumur Kate hefur ræst, og konurnar tvær hafa áhrif hvor á aðra, uns vegir skiljast og nýtt skeið hefst í ævi þeirra. Sú yngri ætlar að ganga í hjónaband, eignast börn og lifa fyrirmyndarlífi. Kate hverfur aftur til eigin- mannsins; kona með gráa sveipi í hárinu, sem finnur, að til þeirrar breytni liggja nú innri rök, en ekki einungis viljinn til þess að þóknast öðrum. Sagan er hlaðin stígandi og spennu og kemur öllum við. Höfundurinn fjallar þar af samúð og skilningi um vanda konunnar við að lifa lífi sínu sem einstaklingur, heil og óskipt. Ekki í fyrsta sinn, mætti segja, en mann- þekkingur og lífsskilningur vísa höfundi veginn. Þó að hún sé í uppreisnarhug, er sums staðar ljóðrænn blær á frásögninni, og áreiðanlega er sagan með best heppnuðu verkum Doris Lessing, samþjöppuð og traustbyggð. # Minningar einnar sem eftir lifði „Ég hygg, að bráðum skelli á nýtt stríð. Þangað til höldum við bara áfram að sökkva dýpra og dýpra í fen villi- mennskunnar, ef ekki verður mikil breyting á“, sagði Doris Lessing 1975. Það var árið eftir að saga hennar, „Minningar einnar sem eftir lifði“ (The Memoirs of a Survivor, 1974) kom út. Það er fyrsta skáldsaga hennar, sem út var gefin hér á landi og kom út í íslenskri þýðingu greinarhöfundar núna fyrir síðustu jól. Við fáum aldrei að vita nafn konunnar, sem þar segir frá og býr ein í íbúð sinni í London, og ekki heldur, hvaða stríð og ósköp það eru, sem yfir hafa dunið og hún hefur lifað af. Þau eru aldrei kölluð annað en „það“, en 49
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.