Samvinnan - 01.12.1986, Page 63

Samvinnan - 01.12.1986, Page 63
var hann mjög strangur við sjálfan sig. Trúarbrögð hans bönnuðu áfengis- neyslu, svo hann sat við hlið hennar alsgáður, ljómandi í þeldökku andlit- inu, og drakk límonaði. Það var fram- koma hans sem hún gekkst upp við. Hann stóð alltaf upp þegar hún kom inn í herbergi, gekk götumegin á gang- stéttinni, kveikti í sígarettu fyrir hana þótt hann þyrfti að fara yfir þvert gólf. Hann opnaði fyrir hana dyrnar, hélt í hönd hennar niður þrep og sýndi henni ýmislega stimamýkt sem juku henni vellíðan. John hafði verið dálítið líkur þessu áður en þau giftust en það var allt liðin tíð. Um helgar neitaði hann að raka sig og ráfaði um í alverstu flík- unum, og það sem hún þoldi hvað verst: lá í rúminu með úfið hárið fram að hádegi. Laugardaga og sunnudaga var hann meir til trafala en hjálpar, því allir hennar verkshættir fóru í vaskinn þegar hún gat ekki búið um rúmin á morgnana. Hvort sem bíllinn var bil- aður eða ekki lá hann í honum allar helgar og kom inn til að maka vaskinn í olíu og handklæðið. Eitt sinn hafði hún jafnvel þurft að hreinsa stangar- sápuna þegar hann hafði þvegið sér um hendur. Kemal hefði haft það öðru vísi. Litla barnið kom skríðandi inn í eldhús og kippti í fótleggi henn- ar í bæn um að taka sig upp. Hún strauk horinn úr nefinu með svuntufaldinum og bar hann aftur inn í framherbergið, ávítaði þau eldri fyrir að hleypa honum út. Hún hrærði í móleitu vatninu til að finna hálf- skrælnuðu kartöfluna. Kemal hefði sjálfsagt haft það öðru vísi. í fyrsta og eina skiptið sem hann hafði komið heim til hennar var þegar hann bar fram bónorðið. Móðir henn- ar hafði komið flaumósa að framan og sagt að þetta hlyti að vera hennar gestur. Nanna hafði farið inn í fram- herbergið og þar var Kemal, og spratt taugaóstyrkur á fætur. Hann hafði beðið hana að giftast sér, hún hafði hlegið, en svo þegar hún sá hvað hann var sár þá varð hún alvarleg. Hann sagðist vera á heimleið til Súdan eftir mánaðartíma, og hann gæti beðið í viku eftir svari hennar. Djúpið á rnilli arfleifða þeirra og menningar, sagði liann, mundi verða helsti trafalinn, en það myndi verða ævintýralegt fyrir hana að yfirstíga þetta djúp. Að lifa í nýju landi, á stað þarsem stundum var svo heitt að nauðsynlegt var að bleyta fötin til að kæla sig - að borða með fingrunum úr sömu skál og aðrir í fjöl- skyldunni. Hún gæti lært arabísku, hann mundi með ánægju kenna henni. Hann hafði beðið hana að giftast sér, hún hafði hlegið, en þegar hún sá hvað hann varð sár varð hún alvarleg... Sendum viðskiptavinum og starfsfólkí bestu JÓLA- OG NÝÁRSÓSKIR og þökkum gott samstarf á liðnu ári. KAUPFÉLAG VESTUR-HÚNVETNINGA Hvammstanga KAUPFÉLAG NORÐUR-ÞINGEYINGA Kópaskeri GíeðiíegjóC ogfarsceít komandi ár 63

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.