Samvinnan - 01.12.1986, Qupperneq 66
Umberto
Verdi,
sótari
á garðinum. Þegar hann kom aftur inn
í eldhúsið spurði hún hann hvort hann
vildi þvo sér um hendur.
„Eitt bað í lok dagsins dugir mér,“
sagði hann. Þá sá hann halakörturnar
og hallaði sér yfir vaskinn og horfði
fast á flöskuna.
„Ég sá þátt um þessar. Þeir segja
maður eigi ekki að taka þær upp úr
pollunum.“ Hann sló í flöskuna með
fingurnöglinni og halakörturnar urðu
skelfdar og þutu í allar áttir. Nanna
stóð hjá með budduna í hendinni og
þegar hann sagði henni upphæðina gaf
hún honum tvo shillinga aukreitis.
Henni fannst hann svo alúðlegur kall
með hlýtt bros. Hann lyfti húfunni svo
skein aftur í bleikan hnjúkinn og hélt
inn til að taka saman verkfærin.
Þegar hann var farinn hreinsaði
hún upp pappírinn, og tók eftir
því að það var ekki arða af sóti
eða skít neins staðar. Eftir skrjáfið í
pappírnum varð þögnin í húsinu til að
ergja hana dálítið en það var líka
ánægjuleg tilbreyting. Hún opnaði
Campari-flöskuna, hellti sér í glas og
lét sig síga niðrí stól í framherberginu.
Hún hélt hárauðum vökvanum upp að
ljósinu. Hann var sætur og þegar mað-
ur hafði rennt honum niður kom í
munninn beiskur eftirkeimur sem hún
var búin að gleyma. Hún gat ekki
munað hver þeirra það var af stúlkun-
um sem sagði að hún hefði bragðað á
betra meðali. Hver sem það var þá
hafði hún engan smekk. Eftir tvo sopa
í viðbót fór hún að hugsa hvort hún
hefði ekki fengið vonda flösku, eða
kannski var til þess ætlast að maður
drykki það í límonaði. Hún fór inn í
eldhúsið og hellti því litla sem eftir var
í glasinu í vaskinn. Ef til vill myndi
John vilja afganginn.
Þegar hún var að fara aftur í hin
fötin hlaut hún að hafa vakið
barnið. Þegar hún kom inn ang-
aði herbergið af barnasaur. Niðri
hringdi síminn. Hún stakk barninu
undir handlegginn og þaut niður til að
svara. Það var nágrannakonan tveim
húsum ofar. Mikael hafði dottið og
fengið kúlu á höfuðið og var óhugg-
andi, svo hún var hrædd um hann gæti
fengið K.A.S.T. Mundi vera í lagi að
senda þau bæði til baka þar sem hún
hafði séð að sótarinn var farinn.
Nanna sagði já og skildi útidyrnar eftir
opnar svo hún þyrfti ekki að standa
upp aftur til að hleypa þeim inn.
♦
Sendum viöskiptavinum okkar
bestu óskir um
gteðiíegjót
meö þökk fyrir gott samstarf á árinu.
KAUPFÉLAG HÉRAÐSBÚA
Egilsstöðum
Kaupfélag Héraðsbúa rekur verslanir á Egilsstöðum, Reyðarfirði, Seyðisfirði og
Borgarfirði eystra, slátur- og frystihús á Egilsstöðum, Fossvöllum, Reyðarfirði og
Borgarfirði, mjólkursamlag og trésmíðaverkstæði á Egilsstöðum, kjötvinnslu,
gistihús, bílaútgerð, olíusölu og fóðurblöndunarstöð á Reyðarfirði.
Aðalskrifstofa á Egilstöðum.
66