Samvinnan - 01.12.1986, Qupperneq 72
„búnaðarfélag stofnað 1886, sem hefur verið dauft og
framkvæmt lítið, stundum sofið en oftast dottað.“ Segir
síðan:
„VERSLUNARFÉLAG DALASÝSLU stofnaðist
1886 og urðu Saurbæingar strax deild í félaginu. Hefur
deildin að vísu lifað þessi 22 ár, sem síðan eru liðin
bráðum. En það er eitt af sorglegasta tákni tímans, að
þessi félagsskapur skuli enn ekki hafa náð almennu og
eindregnu fylgi í hreppnum. Á hverju einasta ári hefur
félagsmönnum orðið 20-35% hagur að viðskiptum við
félagið, þegar vöruverð á útlendri og innlendri vöru hef-
ur verið borið saman við verslun kaupmanna á félags-
svæðinu. Aðeins einn maður í hreppnum hefur haft
mestalla verslun sína í félaginu síðan það byrjaði og
hann einn hefur oftast verslað nærri eins mikið í félaginu
eins og allir aðrir hreppsbúar til samans. Hagnaður sá er
Saurbæingar hafa látið ganga úr greipum sér með því að
versla ekki alveg í félaginu, skiptir mörgum tugum þús-
unda króna síðan félagið hófst. Þetta væri mér hægt að
sanna og sýna með skýrum reikningi, ef mér þætti þörf á
því, en ég hugsa að flestir kannist við að ég hef rétt að
mæla.
KAUPFÉLAG SAURBÆINGA var stofnað 1898,
eða fyrir 10 árum. Félag þetta hefur, sem von er, átt erf-
itt uppdráttar, því samgönguleysið hefur staðið því til-
finnanlega fyrir þrifum. Samt eiga nú sveitarmenn þar í
sjóði um 6.000.00 krónur, sem þeir í rauninni vita ekki
hvernig þeir hafa eignast. Enginn hefur kostað þar til
einum einasta eyri, að undanteknum 600.00 krónum,
sem lagðar voru fram í byrjun. En þetta félag hefði mátt
ganga miklu betur, ef félagsmenn hefðu látið sér betur
skiljast tilgang þess og stofnun og látið sér vera annara
um vöxt þess og viðgang.
Af gömlum vana hafa margir heldur viljað versla við
kaupmenn, en við sitt eigið félag, þó að vöruverð í félag-
inu hafi verið eins gott og stundum betra en hjá kaup-
mönnum, og þó að þeir vissu að þeir eignuðust sjálfir
þann ágóða, sem yrði af viðskiptunum, og að sá hagur
yrði því meiri, sem þeir versluðu meira. Þetta hafa of
margir átt bágt með að skilja eða muna enn sem komið
er.“
9 Félagshyggja og framfarir
Áfram heldur Torfi í Ólafsdal að boða sveitungum sín-
um félagshyggju og framfarir í búskap og verklegum
efnum, sérstaklega þeim, sem verða að byggjast á sam-
vinnu. Önnur héruð séu að stíga stór skref fram á við:
„Ef við tökum ekki rögg á okkur, þá verðum við svo
langt á eftir að við missum sjónar á þeim.“ Hann átti og
fáa sína líka sem boðberi, fortölumeistari og samvinnu-
leiðtogi. Því til órækrar og ævarandi sönnunar, er loka-
kafli þessarar ritgerðar sem skrifuð er í Ólafsdal 10.
marz 1908:
„Ég vil að síðustu minna menn á það að enginn félags-
skapur getur þrifist til lengdar, nema menn gjöri sér það
skiljanlegt, að einstaklingurinn verður oft að leggja
eitthvað í sölurnar fyrir heildina í byrjuninni. En það
framlag marg borgast á síðan hverjum einstaklingi í
þeim hagnaði og þeim stuðningi, sem hann nýtur af fé-
lagsskapnum þegar hann er kominn á fastan fót. Þetta er
reynsla allra menningarþjóða. Og ef vér gefum ekki
reynslunni gaum, og skellum skollaeyrum við öllum góð-
um aðvörunum, þá er hætt við að fari fyrir oss eins og
nátttröllunum, að vér dögum uppi þegar framfaradagur-
inn ljómar kringum okkur.“ 9
72
Friðar-
plakat
Alþjóða-
sambands
samvinnu-
manna
Sameinuðu þjóðirnar helga
hverju ári ákveðið baráttumál
eins og kunnugt er og árið sem
nú er senn liðið er ár friðarins. í
tilefni af því hefur Alþjóðasam-
band samvinnumanna (ICA)
gefið út þetta skemmtilega plak-
at þar sem fánalitir samvinnu-
manna mynda grunninn, en
síðan kemur friðardúfan fljúg-
andi og á henni er orðið friður
letrað á ýmsum tungumálum.
— I byrjun nóvembermánaðar
sl. var árlegur fundur í miðstjórn
ICA haldinn í Basel í Sviss og
sóttu hann 500 samvinnumenn
hvaðanæva úr heiminum. Full-
s
trúar Islands voru Erlendur
Einarsson og Valur Arnþórs-
son. Formaður ICA er nú Svíinn
Lars Marcus, en framkvæmda-
stjóri er bandarískur, Robert
Beasley.