Andvari - 01.10.1959, Síða 28
138
SIGURÐUR GUÐMUNDSSON
ANDVARI
stórmargt, sem hún gerði vel til hans,
ef gætt er aðstöðu hennar og efnahags
á manndómsárum hans.
En fræðigyðja lands vors er bæði göfug
og langminnug. Hún skrásetur að vísu
hvorttveggja, lýtin og listina, bæði sigra
og ósigra. Því meir sem hún þroskast,
því meir líkist hún í því Mikael höfuð-
engli, að hún metur allt það meira, er
henni þykir vel gert. Elún veit, að þessi
mikilhæfi maður, fágætlega fjölnæmur,
ljölfróður, stórvirkur og starfsamur, hefði
getað betur ritað og rannsakað, ef hann
hefði vandvirkni stundað. En hún fyrir-
gefur honum hlutdrægni og harðdæmi í
sumum söguritum hans, hversdagsrabb
og efnisrýrð í Minningabók hans. Hún
minnist þess með virðingu og þökk, að
hann var vaskur maður og karlmenni,
afreksmaður og afkastamaður, sem kann-
aði ókunna stigu lands vors og stórum
jók þekking á náttúru þess og sögu. Hún
skipar honum allt af á bekk með sínurn
merkustu sonum. 1 næmu brjósti elur
hún samúð með sálarmeinum hans, skiln-
ing á geðgremi hans, ónotum og óánægju.
Hana grunar, að beiskjan hafi einnig
með fram stafað af, að á steinflísum
erlendrar stórborgar hafi fjallafarinn
stundum þráð, niðri í einhverjum afkima
hugar síns, heiðarnar, hraunin, vatna-
flæmin og sólroðna jöklana heima, ís-
lenzkan himin og íslcnzkt gras.
Þáttur þessi um Þorvald Thoroddsen er kafli úr riti eftir Sigurð Guðmundsson,
skólameistara. Rit þetta heitir Norðlenzki skálinn og kemur út hjá Bókaútgáfu
Menningarsjóðs um þessar mundir.
Er það saga Möðruvallaskóla og Gagnfræðaskólans á Akureyri fram til þess
tíma er þar reis menntaskóli. I ritinu eru langir kaflar um ýmsa þá menn, sem
við sögu koma, svo sem Arnljót Ólafsson, Jón A. Hjaltalín, Stefán Stefánsson,
Þorvald Thoroddsen, Þórð Thoroddsen, Halldór Briem, sóra Jónas Jónasson o. fþ