Andvari - 01.10.1959, Qupperneq 50
160
ÞORSTEINN i’OHSTliINSSON
ANDVAHI
Fæddir á Ætterni Móðurmál
Islandi íslenzkt íslenzka
1901 .............. 6057 -
1911 .............. 7109
1921 .............. 6776 15.875 15.000')
1931 .............. 5731 19.382 16.034
1941 .............. 4425 21.050 15.510
1951 .............. 3239 23.307 11.207
Síðan 1911 hefur fólki í Kanada, sem fætt er á Islandi, sífellt farið fækkandi,
og var það 1951 meir en helmingi færra heldur en 1911. En síðan um aldamót
hefur mannfjöldinn í Kanada stóraukizt, úr 5.4 millj. þá upp í 14.0 millj. 1951,
svo að hlutdeild íslenzku innflytjendanna í honum hefur minnkað miklu meir. Var
hún 0.11% eða rúml. 1 af þúsundi 1901, en var komin niður í 0.02% eða Vs af þús.
1951. Fólki af íslenzku ætterni hefur hinsvegar fjölgað úr tæpl. 16 þúsundum 1921
upp í rúml. 23 þús. 1951. Var það rúmlega tvöföld tala innflytjendanna, sem þar
var 1921, en rúml. sjöföld tala þeirra 1951, cn í samanburði við allan mannfjölda
landsins hefur orðið lítil breyting, talan bæði árin tæpl. 2 af þús. (1921: 0.18%,
1951: 0.17%). Fólki með íslenzkt móðurmál hefur aftur á móti fækkað síðan 1931
úr rúml. 16 þús. niður í rúml. 11 þús. 1951. Var það ekki nema tæpl. helmingur
af þeim, sem þá voru taldir af íslenzku ætterni, en hafði ekki vantað mjög mikið
til þcss að vera jafnmargt 1921. Miðað við allán mannfjölda í Kanada hefur þessu
fólki fækkað úr 0.17% 1921 niður í 0.08% 1951.
Það sést í manntalsskýrslum Kanada 1941, hvernig þeir, sem taldir voru með
íslenzkt móðurmál, skiptust eftir ætterni, en um ætternið eru öll Norðurlönd tekin
í einu lagi og Island þar með. Sú skipting cr þannig:
Norðurlandaætterni................................ 15.109 eða 97.4%
Brezkt (enskt, írskt, skozkt o. fl.) ætterni .... 311 — 2.0%
Annað ætterni......................................... 90 — 0.6%
Samtals 15.510 eða 100.0%
Flestallir þeir, sem hér eru taldir af Norðurlandaætterni, munu vera af íslenzku
ætterni, en meðal þeirra, sem taldir voru af öðru ætterni, voru 311 brezkir, 40 þýzkir,
14 franskir, 4 ítalskir, 3 gyðingar, 3 hollenzkir, 3 pólskir, 1 belgískur, 1 úkraínskur og
21 af öðru þjóðerni. Allt þetta fólk mun þó sennilega vera af íslenzkum ættum í
móðurætt, en í skýrslunum reiknast ættcrnið aðeins í karllegg. Samskonar yfirlit
fæst ekki úr manntalinu 1951, því að í tilsvarandi töflum þar eru öll Norðurlanda-
málin, og þar með íslenzka, tckin í einu lagi.
Hehnilisfang. Eftirfarandi yfirlit sýnir tölu íslendinga samkvæmt manntölun-
um 1941 og 1951 í einstökum fylkjum Kanada.
1) Við manntalið 1921 var aðeins spurt um móðurmál manna, sem komnir voru yfir 10 ára
aldur, og töldust þá 12.618 með íslenzku sem móðurmál. Hér hefur sú tala verið hækkuð eftir
áætlun til samræmis við síðari manntöl, sem tóku með alla aldursflokka.