Andvari - 01.10.1959, Side 60
BJÖRN ÞORSTEINSSON:
Hinrik VIII. og ísland.
I.
Hinrik VIII. er frægasti konungur,
sem setið hefur að ríkjum á Englandi,
en margt misjafnt hefur verið um hann
sagt. Ilann er kunnastur fyrir það að
hafa átt sex konur, sálgað tveimur þeirra,
rekið tvær frá sér og stofna hina ensk-
kaþólsku kirkju með sjálfan sig sem páfa.
Fjórir kardinálar voru uppi í ríki hans;
cinn þeirra lét hann hálshöggva, annar
slapp frá öxi böÖulsins með því að flýja
land, en sá þriðji með því að andast í
tæka tíð á sóttarsæng. Svipaða sögu er
að segja um viÖlíka marga hertoga og
sex eða sjö jarla og greifa og tugi af
óæðri aðalsmönnum. Elinrik lióf stjórnar-
feril sinn með því að taka af lífi helztu
ráðgjafa föður síns og hélt áfram stefn-
unni með því að senda ráðgjafa sína öðru
hverju upp á höggstokkinn. Tower, kast-
alinn í Lundúnum, var bæði höll og
fangelsi á dögum Hinriks VIII., svo að
þar var skammt úr veizluglaumi niÖur í
dýflissu, og margir stjórnmálamenn
fengu að kynnast því, hve stutt þetta bil
var. Trú og stjórnmálastefna, tign og
staða skiptu litlu máli, þegar Hinrik VIII.
var annars vegar, prestar og leikmenn,
kardinálar, erkibiskup og munkar, menn,
scm Hinrik hafði hafið til metorÖa eða
hjuggu að arfgengum forréttindum, urðu
allir að troða sömu slóð: til gálga, á
höggstokk cða jafnvel á hálköst, því að
Ilinrik lét hálshöggva kaþólska, en
brenna mótmælendur. En þrátt fyrir
þetta eru stjórnarár Hinriks VIII. frið-
samt tímabil í sögu Englands, því að
enskur almenningur lét sig litlu skipta
örlög einstakra aðalsmanna og klerka.
Málaferli og aftökur voru einungis spenn-
andi atburðir, sem krydduðu fábreytta
tilveru eins og eldhúsreyfarar og glæpa-
myndir á vorum dögum, og lýðurinn var
löngum trúr kóngi sínum og stoltur af
honurn. Margur aðalsmaður varð höfði
styttri í Englandi um daga Hinriks, en
hann laugaði land ckki í blóði þegna
sinna eins og Þýzkalandskeisari, Spánar-
og Frakkakonungar gerðu þá og síðar.
Um aldaraðir hafði ægivald kaþólskrar
kristni legið á Vesturlöndum, og kon-
ungar og keisarar höfðu árangurslítið
reynt að hrista af sér okið, en Hinrik
braut hlekki Rómar með einni tilskipan
og tók sér vald páfa yfir kirkju þjóðar
sinnar. Ætla mætti, að þessi heljarkarl
hcfði verið mikill herforingi og ríkt í
skjóli hers og lögreglu. En Hinrik VIII.
átti engan her, sem hægt er að nefna
því nafni, aðeins fámennar lífvarðar-
sveitir. Englendingar stærðu sig á dög-
um hans af því að vera frjálsboriÖ fólk,
en erlendir stjórnarherrar litu á þá með
fyrirlitningu, af því að þeir voru aga-
laus lýður, sem hafði drepiÖ eða rckið
frá völdum helming allra konunga sinna,
frá því er Vilhjálmur bastarður braut
landið undir sig árið 1066. En Hinrik