Andvari - 01.10.1959, Qupperneq 116
Hið íslenzka fornleifafélag
Hið íslenzka fornleifafélag var stofnað árið 1879 og hóf þá þegar útgáfu
Arbókar sinnar, sem alla stund síðan hefur verið málgagn íslenzkrar forn-
leifafræði. Arbókin hefur alltaf verið gefin út í nánu samstarfi við Þjóðminja-
safnið og forstöðumenn þess hafa löngum verið ritstjórar hennar. Núverandi
ritstjóri er dr. Kristján Eldjárn þjóðminjavörður.
Arbók fornleifafélagsins er allfjölbreytt að efni, þótt allt sé það á einhvern
hátt tengt íslenzkri fornleifafræði og menningarsögu. Til dæmis skal tekið
efnisyfirlit síðustu þriggja hefta:
Árg. 1955—56: Kristján Eldjárn: Kapclluhraun og Kapcllulág. Fornleifa-
rannsóknir 1950 og 1954. Friðrik Á. Brekkan: Mannamyndadeild Þjóðminja-
safnsins. Guðbrandur Sigurðsson: Eyðibýli í Helgafellssveit. Gísli Gestsson:
Tóftir í Snjóöldufjallgarði. Ellen Marie Mageröy: íslenzkur tréskurður í söfn-
um á Norðurlöndum. Stefán Jónsson: Flatatunga og Bjarnastaðalilíð. Baldur
Oxdal: Einkennilegur legstaður á Vcstara-Landi í Oxarfirði. Skýrsla um Þjóð-
minjasafnið 1955. Alls 142 blaðsíður.
Árg. 1957—58: Ellen Marie Mageröy: íslenzkur tréskurður í söfnum á
Norðurlöndum (framhald). Kristján Eldjárn: Þrjú kuml norðanlands. Skýrsla
um Þjóðminjasafnið 1956. Alls 158 blaðsíður.
Árg- 1959 (í prentun): Gísli Gestsson: Griif í Oræfum. Bæjarrústir frá 1362.
Sturla Friðriksson: Korn frá Gröf í Öræfum. Kristján Eldjárn og Jón Steffen-
sen: Ræningjadysjar og Englendingabcin. Hermann Pálsson: í onns gini. Jón
Steffensen: Forn kuml í Gilsárteigi í Eiðaþinghá. Jóhannes Davíðsson: Bæn-
hús og undirgangur í það á Álfadal. Alls 138 blaðsíður.
Auk þessa kom út fylgirit með Árbók 1958 og eru í því fyrirlestrar þeir,
sem haldnir voru á Víkingafundinum í Reykjavík 1956; þeir eru á ensku.
Því miður er nú ekki lengur hægt að fá Árbók frá upphafi. Til er einn
og einn stakur árgangur, en samfelld fæst bókin frá 1933. Árgangarnir 1933—54
með registri kosta kr. 204,00. Verð þeirra hefta, sem síðan hafa komið er
sem hér segir:
1955—56 kr. 30,00
1957—58 — 30,00
Fylgirit 1958 — 50,00
Þar sem þess er ekki kostur að fá árbókina frá upphafi, er rétt að benda
á að eðlilegt getur verið að eignast hana frá og með 1954, því að þar verða
þáttaskil við registur.
Árgjald félagsins frá og með þessu ári er kr. 40,00 og er innheimt um leið
og Árbók kemur út ár hvert. Fyrir gjaldið fá félagar árbókina, og er ætlunin
að hún verði ekki minna en 8 arkir á ári hverju hér eftir.
Þeir, sem óska að ganga í Hið íslenzka fornleifafélag, geri svo vel að snúa
sér til stjórnar þess í Þjóðminjasafninu (símar 13264 og 16779) eða Bóka-
útgáfu Menningarsjóðs, Hverfisgötu 21, Reykjavík (sími 13652).