Fréttablaðið - 10.09.2009, Page 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
tómstundirFIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2009
Sveiflan í veturÁ Pro golf-námskeiðunum getur hinn almenni kylfing-ur haldið sér í æfingu. BLS. 7
FIMMTUDAGUR
10. september 2009 — 214. tölublað — 9. árgangur
Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
NAOMI CAMPBELL , sem á í ástarsambandi við rússneska milljóna-
mæringinn Vladislav Doronin, situr fyrir í nýjasta hefti tímaritsins V sem
keisaraynja. Ljósmyndarinn var enginn annar en tískumógúllinn Karl
Lagerfeld.
„Ég keypti mussuna í Kolaportinu á 500 krónur fyrir nokkrum árum. Mér finnst hún geðveik og ég er alltaf í henni. Hún passar við allt og ég get bæði verið fín og hvunn-dags,“ segir Anna Karen Ellerts-dóttir en hún valdi að sýna lesend-um föt sem hún myndi fara í út á lífið. Hún segist elska föt sem hún geti notað á margan hátt. Skóna fékk hún líka í Kolaport-inu og telur líklegt aði
töff en vil samt halda í kvenleik-ann og vera dömulegur pönkari,“ segir hún og hlær. Fleira fékk hún í Kolaportinu, sem er greinilega fjársjóðskista fyrir þá sem nenna að leita. „Háls-festina fékk ég líka þar. Það er nefnilega þannig að ef ég finn hluti sem mér finnst geðveikir reyni ég að blanda þeim inn í fata tíliminn E
á því í hverju ég fór í leikskólann. Ég varð að fá að fara í kjól í leik-skólann, annars tók það tvo tíma af leiðindum sem enduðu á því að ég fór samt í kjól. Yfirleitt þurfti að skipuleggja fatavalið kvöldið áður,“ segir hún og hlær að minningunni. „Það hefur því aldrei neinn nemaég fengið að jó
Dömulegur pönkariAnna Karen Ellertsdóttir hefur haft skoðun á fötum frá þriggja ára aldri og klæðir sig algerlega eftir eigin
smekk. Hún finnur oft eitthvað fallegt í Kolaportinu og finnst mikilvægt að vera fín til fara.
Anna Karen valdi dress sem hún myndi fara í út á lífið. Mussuna, skóna og hálsfestina keypti hún í Kolaportinu en jakkann fékk
hún í Zöru.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Haustfrakkar
VEÐRIÐ Í DAG
ANNA KAREN ELLERTSDÓTTIR
Finnur bæði flott föt
og skó í Kolaportinu
• tíska
Í MIÐJU BLAÐSINS
TÓMSTUNDIR
Hot-jóga, fararstjórn,
prjón og Pro golf
Sérblað um tómstundir og námskeið
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Aldrei fleiri
gistinætur
Bandalag farfugla
varð sjötíu ára í ár. Allt
stefnir í að gisti-
nætur í ár verði
150 þúsund.
TÍMAMÓT 28
Hvað næst?
„Aðkoma AGS að Íslandi var
nauðsynleg, þar eð íslenzk
stjórnvöld stóðu ráðþrota frammi
fyrir hruninu,“ skrifar Þorvaldur
Gylfason.
Í DAG 18
STEINUNN SIGURÐARDÓTTIR
Sýnir á
Kjarvalsstöðum
Fágæt hönnun til sýnis
FÓLK 36
Lúxusferð
Ólafur Jóhannes-
son fer á flotta
kvikmyndahátíð
á Ind-
landi.
FÓLK 38
FÓLK „Allir bestu pókerspilarar
landsins verða þarna. Við erum
með menn sem eru að taka inn
fleiri fleiri milljónir á ári á net-
inu,“ segir Jóhann Ólafur Schröd-
er, einn af skipuleggjendum
Íslandsmeistaramótsins í póker.
Mótið fer fram á Hilton Hótel
Nordica um næstu helgi og 180
spilarar eru skráðir til leiks. Færri
komast að en vilja og 30 spilarar
eru á biðlista, ef einhver skyldi
forfallast. Heildarverðlaunafé er
rúmar sex milljónir króna.
„Frá upphafi var ég alveg 100
prósent viss um að mótið myndi
fyllast,“ segir Jóhann Ólafur.
- afb / sjá síðu 46
Íslandsmeistaramót í póker:
Stórlaxar spila
upp á milljónir
Opið til 21
Opið til kl. 21
fimmtudaga
EFNAHAGSMÁL Þær hækkanir á
óbeinum sköttum, sem Alþingi
hefur samþykkt í sumar, hækka
höfuðstól verðtryggðra íbúðalána
heimilanna um 0,7 prósent, um
átta og hálfan milljarð króna.
Greiðslubyrðin hækkar sem
þessu nemur, sem hefur í för með
sér 700 króna hækkun á mánuði,
8.400 króna hækkun á ári, fyrir
fjölskyldu sem greiðir 100.000
krónur á mánuði af verðtryggðu
láni.
Hækkun opinberra gjalda á
áfengi, tóbak og eldsneyti, sem
samþykkt var í maí á að skila ríkis-
sjóði fjórum milljörðum í tekjur
á ári. Með hækkun vörugjalda á
sælgæti og ýmsar matvörur, sem
gengu í gildi 1. september, var ætl-
unin að auka tekjur ríkissjóðs um
2,7 milljarða á ári. Vísitöluáhrif
þessara skattahækkana eru sam-
tals um 0,7 prósent, samkvæmt
útreikningum Jóns Bjarka Bents-
sonar, hagfræðings hjá Íslands-
banka.
„Þetta kemur með tvöföldum
þunga á þau heimili sem eru með
verðtryggð lán,“ segir Jóhannes
Gunnarsson, formaður Neytenda-
samtakanna. Hagstæðara sé fyrir
heimilin að ríkissjóður hækki
beina skatta eins og tekjuskatt og
tryggingargjald, frekar en óbeina
skatta eins og virðisaukaskatt og
vörugjöld.
Ríkisstjórnin ætlar að auka
skattheimtu um 28 til 30 milljarða
króna á næsta ári, auk þess sem
skorið verður niður í ríkisrekstri
um 33 til 35 milljarða. Fram til
2013 þarf ríkissjóður að skapa sér
179 milljarða króna svigrúm til
að greiða afborganir og vexti af
erlendum lánum.
Guðbjartur Hannesson, for-
maður fjárlaganefndar, segir að
allar tegundir skattahækkana
komi til skoðunar. Um málflutn-
ing Neytendasamtakanna segir
hann að sá kostnaðarauki sem
fylgi beinum sköttum skili sér inn
í verðlag og vísitölur þótt það ger-
ist ekki jafnhratt og þegar óbeinir
skattar séu hækkaðir.
- pg / sjá síðu 12
Sykurskattur hækkar
íbúðalán um milljarða
Skattahækkanir sem Alþingi samþykkti í sumar hækka höfuðstól verðtryggðra
íbúðalána um átta og hálfan milljarð. Höggið þungt fyrir mörg heimili.
10
10
12
12
10
RIGNING Á LEIÐINNI Í fyrstu
verður hæg suðaustlæg átt en
hvessir af suðvestri með kvöldinu,
fyrst sunnan til. Rigning um og eftir
hádegi á suðurhelmingi landsins
en allvíða í kvöld, síst eystra. Milt.
VEÐUR 4
FUNDAÐ Í LUNDINUM Menntaráð heimsótti Norðlingaskóla í gær og að lokinni kynningu var haldinn fundur í Björnslundi. Í
lundinum fá nemendur að kynnast náttúrunni og nýta hana í náminu. Norðlingaskóli er í bráðabirgðahúsnæði og hefur starfsfólk
á orði að Björnslundur sé eina varanlega kennslustofan. Kjartan Magnússon, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, Anna Margrét Ólafsdóttir,
Oddný Sturludóttir, Sigríður Pétursdóttir, Ólafur Mathiesen og Kjartan Eggertsson létu smá regn ekki á sig fá. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Góður sigur
hjá Íslandi
Ísland vann 3-1
sigur gegn Georgíu
í vináttulandsleik
á Laugardalsvelli í
gærkvöldi.
ÍÞRÓTTIR 42
MEXÍKÓ Minnst átta eru í haldi
eftir að farþegavél var rænt á
flugvellinum í Cancun, vinsælum
ferðamannastað í austurhluta
landsins.
Í vélinni voru yfir hundrað far-
þegar, sem var hleypt úr vélinni
áður en ræningjarnir voru hand-
teknir.
Samkvæmt mexíkóskum
miðlum er óvíst hvað ræningjun-
um gekk til, en þeir kröfðust að
fá viðtal við forseta landsins.
Þeir munu í upphafi hafa viljað
að vélin flygi í hringi yfir Mexíkó-
borg.
Flugræningjarnir komust
aldrei inn í flugstjórnarklefann
og farþegarnir gerðu sér fæstir
grein fyrir því að vélinni hefði
verið rænt, fyrr en það var til-
kynnt í hátalarakerfi. - kóþ
Á VELLINUM Flugræningjarnir slepptu
öllum farþegunum úr vélinni.
ÁLFTANES Bæjarstjórn Álftaness samþykkti í gær-
kvöld, með fjórum atkvæðum gegn þremur, að segja
upp ráðningarsamningi við Sigurð Magnússon bæj-
arstjóra. Kristín Fjóla Bergþórsdóttir sagði af sér
sem forseti bæjarstjórnar og var Kristinn Guð-
laugsson kjörinn í hennar stað. Hann kemur af lista
Sjálfstæðisflokksins en hin tvö af Álftaneslistanum.
Meirihlutalaust hefur verið í bæjarfélaginu í
einn og hálfan mánuð eftir endurkomu Kristjáns
Sveinbjörnssonar í bæjarstjórn. Viðræður um
myndun nýs meirihluta hafa ekki borið árangur.
Guðmundur G. Gunnarsson, oddviti Sjálfstæðis-
flokksins, segir nauðsynlegt að mynda nýjan meiri-
hluta fyrir næsta bæjarstjórnarfund, sem verður
að viku liðinni. Ástandið í fjármálunum sé þannig
að menn verði að taka höndum saman til að leysa
vandamálin.
Pálmi Másson skrifstofustjóri gegnir nú stöðu
bæjarstjóra, en samkvæmt lögum er skrifstofustjóri
staðgengill bæjarstjóra. - kóp
Ekki gengur enn að mynda nýjan meirihluta í bæjarstjórn Álftaness:
Bæjarstjóranum var sagt upp
Fyrsta flugráni í 37 ár:
Farþegavél var
rænt í Mexíkó