Fréttablaðið - 10.09.2009, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 10.09.2009, Blaðsíða 44
28 10. september 2009 FIMMTUDAGUR COLIN FIRTH ER 48 ÁRA Í DAG. „Ég hef hlutlaust útlit og það hefur hjálpað mér. Ég er með andlit sem hægt er að láta líta mun betur út, og líka mun verr.“ Colin Firth er breskur leikari, þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Darcy í Hroka og hleypi- dómum og Darcy í Dagbók Bridget Jones. „Bandalag íslenskra farfugla var stofn- að með það í huga að skapa ungu fólki aðstöðu til að ferðast og hvetja fólk til ferðalaga, að vera úti í náttúrunni og huga að henni,“ segir Markús Einars- son, framkvæmdastjóri Farfugla, sem varð sjötíu ára á árinu. „Það var Pálmi Hannesson, þáverandi rektor Menntaskólans í Reykjavík, sem beitti sér fyrir stofnun Farfugla,“ segir Markús en Pálmi var einnig fyrsti for- maður samtakanna. Meiningin var að farfugladeildir yrðu stofnaðar í tengsl- um við menntastofnanir víðar um land. „Það var þó ekki nema um tíma á Akur- eyri en eftir það var bandalagið rekið mest frá Reykjavík,“ útskýrir hann. Ekki er nóg með að Farfuglar haldi upp á sjötíu ára afmæli í ár heldur tengjast þeim önnur tímamót. „Í ár eru hundrað ár frá því hugmyndafræðin að baki Farfuglum vaknaði,“ segir Mark- ús og heldur áfram. „Það var þýskur kennari sem starfaði í Berlín sem er upphafsmaðurinn en hann hóf að taka nemendur sína út úr borginni um helg- ar og gista úti í náttúrunni.“ En hvernig hefur starfið þróast á þessum sjötíu árum? „Í upphafi var geysilega öflugt félagastarf í kringum Farfugla og samtökin sjálf með skipu- lagðar ferðir og frumkvöðlar á ýmsum sviðum eins og í hálendisferðum og um- hverfismálum. Nú hefur þetta þróast út í að vera nánast eingöngu rekstur,“ segir Markús. Hann upplýsir að sam- tökunum tilheyri 33 farfuglaheimili um allt land. Flest séu þó í eigu einstakl- inga en þrjú þeirra eru rekin af Far- fuglum. „Svo rekum við líka ferðaskrif- stofu, tjaldsvæði og tókum í sumar yfir rekstur í Húsadal í Þórsmörk.“ Markús segir ánægjulegt að á afmæl- isárinu hafi aldrei fleiri gist á farfugla- heimilum en í ár. „Það stefnir í að það verði um 150 þúsund gistinætur á far- fuglaheimilum á Íslandi á þessu ári. Þetta er töluverð fjölgun frá því í fyrra en þá voru gistinætur 115 þúsund og var það metár samt,“ segir hann stoltur. Fyrst og fremst þakkar hann það mik- illi fjölgun erlendra gesta enda séu þeir í meirihluta þeirra sem nýta sér far- fuglaheimili. „Það skapast nú oft af því að Íslendingar eru of seinir til að panta gistingu,“ segir hann góðlátlega. Annars segir hann fólk á öllum aldri nýta sér gistinguna þó flestir séu í yngri kantinum. „Hin síðari ár hefur þó fjöl- skyldum fjölgað geysilega,“ segir Mark- ús og bætir við þeim fróðleik að Far- fuglar á Íslandi séu hluti af Hosteling International, sem sé sennilega stærsta gistihúsakeðja í heimi með um 4.500 farfuglaheimili í níutíu þjóðlöndum. Farfuglar áttu afmæli í mars og hafa fagnað áfanganum með ýmsum hætti. „Við héldum stóra alþjóðlega ráðstefnu, opnuðum nýtt farfuglaheimili á Vestur- götu 17 og tókum svo við rekstrinum í Húsadal,“ segir Markús ánægður með tímamótin. solveig@frettabladid.is FARFUGLAR: ERU SJÖTÍU ÁRA Á ÁRINU ALDREI FLEIRI GISTINÆTUR FRAMKVÆMDASTJÓRINN Markús Einarsson segir stefna í að gistinætur á farfuglaheimilum landsins verði 150 þúsund. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM timamot@frettabladid.is Opið hús verður hjá Ráð- gjafarþjónustu Krabba- meinsfélags Íslands í Skóg- arhlíð 8 á laugardaginn 12. september. Það hefst klukk- an 13 og þar koma fram níu stuðningshópar þeirra sem greinast með krabbamein sem kynna fjölbreytta starf- semi sína. Þeir eru Fram- för, Góðir hálsar, Kraftur, Ný rödd, Ristilfélagið, Sam- hjálp kvenna, Stómasamtök- in, Stuðningshópur kvenna með krabbamein í eggja- stokkum og Styrkur. Klukkan 14 mun Randver Þorláksson leikari ræða um krabbamein og reynslu sína af því sem aðstandandi. Sérstök áhersla verður lögð á að aðstandendum sé líka velkomið að þiggja að- stoð og hjálp hjá félaginu því erfitt er að sjá ástvini sína berjast við illvígan sjúkdóm á borð við krabbamein. Stuðningur í boði Málörvun og lestur – Gagn- legar og skemmtilegar aðferð- ir sem hjálpa leik- og grunn- skólabörnum er yfirskrift ráð- stefnu sem Bókaforlagið Salka efnir til í dag. Frú Vigdís Finn- bogadóttir setur ráðstefnuna og á mælendaskrá eru margir fag- menn í fræðunum, meðal ann- ars foreldri sem segir reynslu- sögu. Um þrjú hundruð manns hafa bókað sig sem áheyrendur og dugir ekki minna húspláss en Súlnasalur Hótel Sögu. Svona er áhuginn mikill enda er lestrar- kunnátta og lesskilningur barna flestum mikið hjartans mál. Kynntur verður bókaflokk- urinn um Bínu litlu brjáluðu, eftir Ásthildi Bj. Snorradóttur talmeinafræðing. Bínubækurn- ar leggja einmitt áherslu á mál- örvun ungra barna og það að veita börnum nothæf verkfæri frá unga aldri til að taka með sér inn í áframhaldandi nám. Málþroski og lestur BÍNA Bækurnar um Bínu litlu brjáluðu leggja áherslu á málörvun. FYRIRLESARI Randver mun ræða um reynslu sína af krabbameini sem aðstandandi. Útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Elínar Oddsdóttur Ástúni 8, Kópavogi, fer fram frá Digraneskirkju föstudaginn 11. september kl. 13.00. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Hjartavernd. Sólrún B. Kristinsdóttir Hauður Kristinsdóttir, Magnúns Alfonsson Þóra Sjöfn Kristinsdóttir Anna Margrét Kristinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Guðjón Eymundsson rafvirkjameistari, Skúlagötu 20, Reykjavík, lést á Landakoti, mánudaginn 7. september. Hrafnhildur Bjarnadóttir Ingólfur A. Guðjónsson Susan M. Guðjónsson Áslaug Sif Guðjónsdóttir Karl F. Garðarsson Kolbrún Guðjónsdóttir Jón Sævar Jónsson Hörður Guðjónsson María Johnson barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur. Þennan dag árið 1977 fór fram síðasta aftaka með fallöxi í Frakklandi. Það var Hamida Djand- oubi, túnískur innflytjandi, sem var tekinn af lífi í fangelsinu Baumetes í Marseille. Hann hafði verið dæmdur fyrir morð. Fallöxin var fyrst notuð að ráði í frönsku bylt- ingunni þegar læknirinn og uppreisnarsinninn Joseph-Ignace Guillotin fékk samþykkt lög um að allir dauðadómar skyldu framkvæmdir með tækj- um en ekki af fólki. Svipuð tæki og fallöxin höfðu áður verið notuð á Írlandi og Englandi en talið var að slíkar aftökur væru mannúðlegri en heng- ing eða aftaka með aftökusveit. Yfir tíu þúsund manns létu lífið í fallöxum í byltingunni en þeirra á meðal voru Lúðvík XVI. og María Antoinette, konungur og drottning Frakka. Haldið var áfram að nota fallöxina í Frakklandi næstu aldir en í september árið 1981 var dauða- refsing afnumin í landinu. ÞETTA GERÐIST: 10. SEPTEMBER 1977 Fallöxin hljóðnar í Frakklandi MARIE ANTOINETTE Drottningin var ein þeirra sem létu lífið í fallöxi í byltingunni. MERKISATBURÐIR 1908 Fyrstu almennu leynilegu kosningarnar til Alþingis eru haldnar. Áður hafði verið kosið í heyranda hljóði. Þátttaka stórjókst og fór í 75,5 prósent. 1911 Minnisvarði eftir Einar Jónsson um Jón Sigurðs- son er afhjúpaður framan við Stjórnarráðshúsið í Reykjavík. Síðar var stytt- an flutt á Austurvöll. 1950 Í Hellisgerði í Hafnarfirði er afhjúpaður minnis- varði um Bjarna Sívertsen riddara, sem hóf verslun í Hafnarfirði 1793 og hefur verið nefndur faðir staðar- ins. 1960 Samtök hernámsand- stæðinga eru stofnuð. AFMÆLI GERÐUR G. BJARKLIND útvarpskona er 67 ára. RAGNA LÓA STEFÁNS- DÓTTIR knattspyrnu- kona er 42 ára. BARÐI JÓHANNSSON tónlistarmaður er 34 ára. CHRIS COL- UMBUS leikstjóri er 51 árs.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.