Fréttablaðið - 10.09.2009, Blaðsíða 56
40 10. september 2009 FIMMTUDAGUR
sport@frettabladid.is
> Pape enn á skotskónum fyrir U-19
Íslenska 19 ára landsliðið vann sinn annan sigur á
jafnöldrum sínum frá Skotlandi á þremur dögum þegar
íslensku strákarnir unnu vináttulandsleik þjóðanna 3-1 í
gærdag. Pape Mamadou Faye skoraði fyrsta mark íslenska
liðsins en hann skoraði bæði mörkin í 2-0 sigri á mánu-
daginn. Mark Pape kom eftir aðeins 15 mínútna leik en
Skotar jöfnuðu þremur mínútum síðar. Valsarinn Arnar
Sveinn Geirsson skoraði annað mark íslenska liðsins á 36.
mínútu en hann er sonur Geirs Sveins-
sonar, fyrrverandi fyrirliða íslenska
landsliðsins í handbolta. Þriðja og
síðasta markið skoraði síðan
KA-maðurinn Andri Fannar
Stefánsson úr vítaspyrnu á
86. mínútu leiksins.
Örvar Sær Gíslason, A-dómari í knattspyrnu, dæmdi í
fyrrakvöld toppslag Hönefoss og Kongsvinger í norsku
B-deildinni í knattspyrnu. Leiknum lauk með 3-1 sigri
Hönefoss, sem um leið skellti sér á topp deildarinnar.
Verkefnið er þáttur í norrænum dómaraskiptum sem
er samstarfsverkefni knattspyrnusambanda Norðurland-
anna og hefur verið við lýði undanfarin ár.
„Þetta gekk ótrúlega vel og ég er mjög sáttur,“ sagði
Örvar í samtali við Fréttablaðið. „Ég fékk líka mjög
jákvæð viðbrögð frá aðstoðardómurunum og eftirlits-
manninum. Þeir voru mjög ánægðir.“
Örvar gaf fjórar áminningar í leiknum en dæmdi til að
mynda enga vítaspyrnu. Hann segir þó að það hafi ekki
verið þægilegt að dæma þennan leik.
„Þetta var mjög hraður leikur og það var nokkuð
óþægilegt að dæma með mönnum sem ég hafði
aldrei hitt áður. Ég hefði frekar viljað hafa mína menn
með mér. En aðstoðardómararnir sem voru með mér
voru mjög góðir. Þess fyrir utan lenti ég í engu veseni.
Leikmenn og þjálfarar virtust vera nokkuð ánægðir
með dómgæsluna og langflestir þökkuðu fyrir
góðan leik að honum loknum.“
Fjölmiðlar í Noregi fjölluðu mikið um leikinn
en þó ekki um þátt Örvars. „Ég las stóra
umfjöllun í einu dagblaðanna og þar var ekki
minnst á dómarann. Þannig á það í raun að
vera. Dómarinn á að vera í algjöru aukahlut-
verki og það er gott að enginn virtist taka
eftir mér.“
Örvar hefur áður dæmt leiki hjá yngri
landsliðum, bæði hér á landi og á
Norðurlandamóti U-17 landsliða. Hann
á þó ekki von á því að gerast alþjóð-
legur dómari, svokallaður FIFA-dómari.
„Nei, ég á ekki von á því. Ég er orðinn
35 ára gamall og FIFA-dómarar mega
aðeins dæma til 45 ára aldurs. Ég læt
því ungu strákana um það.“
ÖRVAR SÆR GÍSLASON: DÆMDI TOPPLEIK Í NORSKU B-DEILDINNI Í FYRRAKVÖLD
Gott að enginn virtist taka eftir mér
FÓTBOLTI Íslenska U-21 lands-
liðið vann frábæran 6-2 sigur
á Norður-Írlandi í fyrrakvöld í
undankeppni EM 2011. Ísland
var 4-0 yfir í hálfleik og komst
svo í 5-0 áður en Norður-Írar
náðu að klóra í bakkann. Rúrik
Gíslason skoraði tvö mörk
og þeir Bjarni Þór Viðars-
son, Aron Einar Gunnars-
son, Alfreð Finnbogason og
Jóhann Berg Guðmundsson
eitt hver.
Þetta er aðeins í annað
skipti sem Ísland vinnur
fjögurra marka sigur í
undankeppni stór-
móts. Hitt skipt-
ið var frægur
4-0 sigur á Finn-
landi á Akur-
eyri árið 1989
þar sem Eyj-
ólfur Sverr-
isson skor-
aði öll mörk
Íslands. Eyj-
ólfur er ein-
mitt nú þjálfari
U-21 landsliðsins.
S i g u r i n n á
Norður-Írum er sá
stærsti á útivelli
frá upphafi. Ísland
hefur tvívegis
unnið þriggja
marka sigur á
útivelli, í Litháen
árið 1998 (0-3) og í Svíþjóð árið
2005 (1-4) en Eyjólfur var einnig
þjálfari liðsins í síðari leiknum.
Stærsti sigur Íslands þegar
allir leikir eru meðtaldir var
gegn Eistlandi árið 1995. Ísland
tók þá þátt í æfingamóti á
Kýpur og vann 7-0 sigur.
Ísland vann ári síðar
æfingaleik gegn Möltu
hér heima, 6-0. Stærsta
tapið kom hins vegar
gegn Tékkóslóvakíu ytra
árið 1990 en Ísland tapaði
þá 7-0.
Íslenskt U-21 lið lék
sinn fyrsta leik árið
1978 þegar það
tapaði fyrir
Noregi, 1-0, í
vináttulands-
leik. Ísland
vann sinn
fyrsta úti-
sigur í Dan-
mörku árið
1987 í und-
ankeppni EM
1988. Loka-
tölur voru 3-1,
Íslandi í vil. - esá
Frábær fjögurra marka sigur á Norður-Írum:
Stærsti útisigurinn
EYJÓLFUR
SVERRISSON
Á ríkan þátt í hinum
ýmsu metum
íslenska U-21 lands-
liðsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/E. STEFÁN
Vinningar afhentir í ELKO Lindum.199 kr/skeytið.
Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb.
10. HVERVINNUR!
BÍTLARNIR MÆTA 09.09.09 Í ELKO
ALLARPLÖTURBÍTLANNA!
FULLT AF AUKAVINNINGUM: BÍÓMIÐAR · TÖLVULEIKIR · DVD
GEISLADISKAR · FULLT AF PEPSI MAX OG MARGT FLEIRA!
BÍTLA
RNIR
ROCK
BAND
LEIKU
RINN
!
SYNGDU OG SPILAÐU ÖLL HELSTU LÖG BÍTLANNA Á ROCK BAND!
AÐALVINNINGUR ER EINTAK AF LEIKNUM ÁSAMT GLÆSILEGUM
KASSA MEÐ ÖLLUM HLJÓÐVERSPLÖTUM BÍTLANNA
Í BÆTTUM HLJÓMGÆÐUM ÁSAMT HEIMILDARMYND
SENDU SMS SKEYTIÐ EST TBA Á
NÚMERIÐ 1900 - ÞÚ GÆTIR UNNIÐ!
FÓTBOLTI Færeyingar unnu nokk-
uð óvæntan 2-1 sigur gegn Lit-
háen í 7. riðli undankeppni HM
2010 í Tóftum í gærkvöldi en
þetta var fyrsti sigur Færeyinga í
undankeppninni.
Suni Olsen kom Færeyingum
yfir þegar um stundarfjórðungur
var liðinn af leiknum en Thomas
Danilevicius jafnaði leikinn fyrir
Litháen stuttu síðar.
Það var svo Arnbjörn Hansen
sem kom Færeyingum yfir á
nýjan leik á 35. mínútu og það
reyndist vera sigurmark leiksins.
Færeyingar voru fyrir leikinn
í gærkvöld aðeins með eitt stig
í riðlinum eftir jafntefli gegn
Austurríki. - óþ
Undankeppni HM 2010:
Fyrsti sigur
Færeyinga
SIGUR Færeyingar unnu í gærkvöld sinn
fyrsta sigur í undankeppni HM 2010.
NORDIC PHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Samkvæmt breskum
fjölmiðlum í gær stendur nú yfir
mikið kapphlaup á milli ensku b-
deildarfélaganna Middlesbrough
og Watford um landsliðsfram-
herjann Heiðar Helguson sem er
á mála hjá QPR í sömu deild.
Heiðar var einnig orðaður við
áðurnefnd félög áður en félaga-
skiptaglugganum var lokað en nú
er talað um þriggja mánaða láns-
samning.
Heiðar lék sem kunnugt er hjá
Watford á sínum tíma í fimm og
hálft ár við góðan orðstír og skor-
aði 64 mörk fyrir félagið á þeim
tíma en Boro hefur aftur á móti
verið að leita að framherja eftir
að félagið missti framherjana
Tuncay Sanli og Afonso Alves á
dögunum. - óþ
Heiðar Helguson:
Orðaður við
Boro og Watford
HEIÐAR Er eftirsóttur þessa dagana ef
marka má breska fjölmiðla.
NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Englendingar bókuðu far-
seðilinn á lokakeppni HM 2010
með stæl í gærkvöldi með 5-1 sigri
gegn Króatíu.
Englendingar fengu sannkall-
aða draumabyrjun gegn Króöt-
um þegar Frank Lampard skor-
aði úr vítaspyrnu á 8. mínútu
eftir að Aaron Lennon hafði fallið
í teignum. Hinn eldsnöggi Lennon
var aftur á ferðinni stuttu síðar
þegar hann lagði upp skallamark
fyrir Steven Gerrard og yfirburð-
ir Englendinga voru algjörir á
vellinum. Veislan hélt áfram hjá
Englandi í síðari hálfleik þegar
Lampard og Gerrard bættu báðir
við marki áður en Eduardo klóraði
í bakkann fyrir Króata. Það var
svo Wayne Rooney sem innsigl-
aði glæsilegan 5-1 sigur Englands,
sem hefur nú unnið alla átta leiki
sína í 6. undanriðlinum. Króatar
eiga aftur á móti í harðri baráttu
við Úkraínumenn um annað sæti
riðilsins.
Óvænt jafntefli hjá Dönum
Spennan er þó meiri í 1. undanriðl-
inum þar sem Norðurlandaþjóðirn-
ar Svíþjóð og Danmörk berjast við
Portúgal og Ungverjaland. Danir
eru sem fyrr efstir í riðlinum þrátt
fyrir óvænt jafntefli gegn Alban-
íu í gærkvöldi á meðan Svíar og
Portúgalar unnu sína leiki.
Portúgal vann mikilvægan 0-1
sigur gegn Ungverjum með marki
Pepe á meðan Svíar rétt mörðu
Möltu 0-1 með sjálfsmarki. Malt-
verjar eru eina þjóðin í undan-
keppninni sem hefur ekki skorað
mark.
Frökkum mistókst að saxa
á forskot Serba í 7. undanriðli
þegar þjóðirnar skildu jafnar 1-
1 en Frakkar léku stærstan hluta
leiksins manni færri eftir að
markvörðurinn Hugo Lloris hafði
fengið rautt spjald snemma leiks.
Nenad Milijas kom Serbum yfir
með marki úr vítaspyrnu en Thi-
erry Henry jafnaði fyrir Frakka
þegar um hálftími var liðinn af
leiknum.
Serbar eru áfram með fjögurra
stiga forskot á Frakka þegar tveir
leikir eru eftir í riðlinum.
Þá eru heimsmeistarar Ítala í
ákjósanlegri stöðu í 8. riðli eftir
2-0 sigur gegn Búlgaríu.
Norðmenn enduðu í öðru
Í 9. riðli, sem Íslendingar léku í,
náðu Norðmenn að skjótast upp í
annað sætið eftir 2-1 sigur gegn
Makedóníu á meðan Skotar töpuðu
0-1 fyrir Hollendingum, sem voru
fyrir löngu síðan búnir að tryggja
sig áfram og enduðu riðilinn með
fullt hús stiga.
omar@frettabladid.is
Englendingar með fullt hús stiga
Sigurganga Englendinga undir stjórn Fabio Capello hélt áfram í gær með 5-1 sigri gegn Króatíu í undan-
keppni HM 2010. Með sigrinum gulltryggðu Englendingar sér farseðilinn á lokakeppnina í Suður-Afríku.
FÖGNUÐUR Frank Lampard fagnar hér öðru marka sinna í gærkvöld. Yfirburðir
Englendinga voru miklir í leiknum. NORDIC PHOTOS/AFP