Fréttablaðið - 10.09.2009, Qupperneq 11
FIMMTUDAGUR 10. september 2009 11
BRETLAND Stjórnendur breska
sælgætisfyrirtækisins Cadbury
hafa hafnað 10,2 milljarða punda
kauptilboði bandaríska fyrirtæk-
isins Kraft. Hlutabréf í Cadbury
hækkuðu um fjörutíu prósent í
kjölfar fréttanna.
Forsvarsmenn Cadbury sögðu
tilboð Kraft einfaldlega ekki
nægilega gott. Sérfræðingar
telja hugsanlegt að Kraft muni
gera nýtt tilboð en einnig er talið
líklegt að Nestlé og Hershey geri
tilboð.
Í yfirlýsingu frá Kraft kemur
fram að fyrirtækið telji að sam-
legðaráhrifin yrðu mjög mikil
með sameiningu fyrirtækjanna.
Hægt yrði að spara hátt í 625
milljónir punda á ári vegna
dreifingar, markaðssetningar og
vöruþróunar. - th
Sælgætisfyrirtækið Cadbury:
Hafna kauptil-
boði frá Kraft
RÚSSLAND Sergei Lavrov, utan ríkis-
ráðherra Rússlands, vísar alfarið
á bug fréttum þess efnis að flutn-
ingaskipið Arctic Sea, sem hvarf
um tíma í sumar, hafi verið að
flytja háþróaðar rússneskar loft-
varnareldflaugar til Írans.
Skipið hvarf í lok júlí en það
var sagt flytja timburfarm frá
Finnlandi til Alsír. Rússneski sjó-
herinn fann skipið nærri Græn-
höfðaeyjum um miðjan ágúst.
Átta menn voru handteknir og
ákærðir fyrir að ræna því. Í síð-
ustu viku hafði Lundúnablaðið
Times eftir heimildarmönnum í
Rússlandi og Ísrael að skipið hefði
verið að flytja vopn til Írans.
Utanríkisráðherra Rússlands:
Arctic Sea
flutti ekki vopn
KONGÓ Herdómstóll í Austur-
Kongó dæmdi í fyrradag tvo
Norðmenn til dauða fyrir morð,
njósnir og vopnasmygl. Um er að
ræða tvo karlmenn, 27 og 28 ára,
sem hafa verið í haldi yfirvalda
frá því í maí eftir að bílstjóri
þeirra fannst látinn í höfuðborg-
inni, Kinshasa. Þá eru norsk
stjórnvöld krafin um sextíu
milljónir dollara vegna málsins.
Mennirnir hafa báðir hlotið
þjálfun í norska hernum en ekki
er vitað nákvæmlega hvað þeir
voru að gera í Austur-Kongó.
Annar þeirra hefur undanfarin
ár verið búsettur í Úganda og
sinnt öryggismálum. - mmg
Norðmenn fundnir sekir:
Dæmdir til
dauða í Kongó
EFNAHAGSMÁL Áætlun Seðla-
banka Íslands um að afnema
gjaldeyris höft er afar varfærin
og sú hugmynd er ekki uppi að
afnema þau
á stuttum
tíma. Svo
segir Indriði
H. Þorláks-
son, aðstoðar-
maður fjár-
málaráðherra.
Hann var
spurður hvort
höftin sendu
ekki þau
skilaboð til
umheimsins
að hér væri allt í ólestri. Hvort
ekki gæti verið kominn tími til
að láta krónuna gossa.
„Ég held að fáir séu tilbúnir
að taka þá áhættu. Menn óttast
að afleiðingar af miklu gengis-
hruni veiki enn tiltrú manna á
endurreisninni. Ég held að ein-
hvers konar stöðugleiki sé það
mikilvægasta,“ segir Indriði.
- kóþ
Aðstoðarmaður ráðherra:
Gjaldeyrishöft
enn um sinn
INDRIÐI H.
ÞORLÁKSSON
FÁÐU ÞÉR KORT! Hringdu í síma 551 1200 eða smelltu þér á leikhusid.is
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Nýtt verk eftir Brynhildi Guðjónsdóttur um átakanlegt og fagurt líf mexíkósku listakonunnar Fridu Kahlo.
Leikstjóri: Atli Rafn Sigurðsson.
FRUMSÝNING FÖSTUDAGINN 11. SEPTEMBER
Fjögurra sýninga leikhúskort kostar aðeins kr.9.900
- og þú átt í vændum ótal ánægjustundir í allan vetur!
AFGANISTAN, AP Kvörtunarnefnd á
vegum Sameinuðu þjóðanna segir
óhjákvæmilegt að atkvæði úr for-
setakosningunum í Afganistan
verði endurtalin á kjörstöðum,
þar sem rökstuddur grunur leikur
á kosningasvindli.
Nefndin hefur tekið á móti
meira en 720 alvarlegum ásökun-
um um kosningasvindl. Meðal ann-
ars þykir grunsamlegt að Hamid
Karzai hafi á tugum kjörstaða í
suðurhluta landsins fengið atkvæði
sem falla á sléttar tölur, svo sem
200, 300 eða 500.
Samkvæmt opinberum bráða-
birgðatölum, sem birtar voru í
vikunni, hefur Karzai fengið 54
prósent atkvæða en sigurstrang-
legasti mótframbjóðandinn,
Abdullah Abdullah, aðeins 28 pró-
sent.
Talning hefur hins vegar gengið
hraðar í suðurhlutanum, þar sem
fylgi Karzais er talið vera mest.
Fái hvorugur frambjóðenda
meira en helming atkvæða þarf að
efna til nýrra kosninga, þar sem
valið stendur á milli þeirra tveggja
sem flest atkvæði fengu.
Ekki var von á endanlegum
tölum úr talningu fyrr en í lok
september, en endurtalningin veld-
ur því að lokaniðurstöður dragast
væntanlega enn á langinn, jafnvel
í tvo eða þrjá mánuði. - gb
Hamid Karzai kominn með yfir helming talinna atkvæða í forsetakosningunum í Afganistan:
Endurtalning atkvæða óhjákvæmileg
DEKKJAVERKSTÆÐI
UNDIR KOSNINGA-
SKILTI Lífið heldur
áfram í Afganistan
meðan atkvæði eru
talin. Þessi mynd er
frá borginni Mazar-i-
Sharif í norðurhluta
landsins.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P