Fréttablaðið - 14.09.2009, Side 13

Fréttablaðið - 14.09.2009, Side 13
Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 „Ég eignaðist ísskápinn þegar amma fór á elliheimili árið 2001. Ég var afskaplega ánægð með það, bæði var ekkert að skápnum og svo átti ég sterka minningu tengda honum. Amma átti nefni- lega í Westinghouse-ísskápnum alltaf malt í gleri og appelsín í gleri og þegar ég kom í heimsókn fékk ég alltaf annað hvort. Fyrir mér voru þetta alveg eins og ger- semar í ísskápnum. Þegar ég fékk ísskápinn var hann hvítur og ég notaði hann óbreyttan í fjögur ár og flutti hann á milli þriggja heimila.“ Hlíf segir straumlínulag ísskápsins sem vísi til sjötta áratug- arins höfða til sín. „Frá því tíma- bili er líka ímynd þessara amerísku fyrirmyndarheimila sem þess- ir ísskápar eru svo sterkt tengdir. Við eldamennskuna þar ræður ríkj- um staðalímyndin um húsmóðurina sem er með svuntuna yfir mjótt mittið og stór brjóstin,“ segir hún hlæjandi og þverneitar að falla að þeirri ímynd þótt hún hafi gaman af matseld. Svo gerðirðu ískápinn upp? „Já,“ segir Hlíf og brosir. „Þá var ég í 2007-dæminu en ég var samt ekki tilbúin til þess að láta skápinn fara. Fjölskyldan var þá flutt í glænýja íbúð með nýrri eldhúsinnréttingu sem var kremlituð og með höldum úr burstuðu stáli. Ég sá mér hins vegar leik á borði og lét sprauta ísskápinn í sama lit. Hvíti litur- inn á honum var skrapaður af og síðan var skápurinn sprautaður rétt eins og um bíl væri að ræða,“ segir Hlíf. „Árangurinn var fram- ar mínum vonum. Ég held að þetta sé mjög hamingjusamur ísskápur en í dag nota ég hann sem búr fyrir dósamat og í frystihólfinu geymi ég kerti,“ segir húsmóðirin ánægð. Gersemar í ísskápnum Þegar Hlíf Sævarsdóttir var lítil stelpa fannst henni það hin mesta upplifun að fara til ömmu sinnar og fá malt eða appelsín í flösku úr Westinghouse-ísskápnum. Seinna á ævinni eignaðist hún einnig ísskápinn. SJÓVÁ FORVARNAHÚS hefur í samstarfi við IKEA innréttað tvö örugg heimili í Forvarnahúsinu að Kringlunni 3. Annars vegar heimili fyrir eldra fólk og hins vegar fyrir barnafólk. Almenningi gefst kostur á að koma og skoða heimilin undir leiðsögn sérfræðings Forvarnahússins en nauðsynlegt er að skrá sig í slíka heimsókn með því að senda póst á sjova@sjova.is. Hlíf Sævarsdóttir við hliðina á Westinghouse-ísskápnum, sem hún notar sem búr heimilisins og kertageymslu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.