Fréttablaðið - 18.09.2009, Side 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
FÖSTUDAGUR
18. september 2009 — 221. tölublað — 9. árgangur
Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
VEITINGASTAÐURINN RÁIN í Keflavík verður
tuttugu ára á morgun. Af því tilefni verður haldin glæsi-
leg afmælisveisla og boðið verður upp á forrétt, steikar-
hlaðborð, kaffi og líkjör á aðeins 4.500 kr.
„Ég er ekki þekkt fyrir nein stór-afrek í eldhúsinu og finnst alltaf skemmtilegast að baka eða gera eitthvað óhollt,“ segir Guðrún Lov-ísa Ólafsdóttir, eigandi og þjálfari hjá Fullfrísk. „Við í fjölskyldunnierum miklir sælkera
Skemmtilegast að gera einfalda og óholla rétti
Guðrún Lovísa Ólafsdóttir segist vera heldur ósjálfbjarga í eldhúsinu og því kjósi hún helst einfaldar
uppskriftir. Skyrmarengsinn þarfnast lítils undirbúnings og tekur aðeins hálftíma að útbúa.
Guðrún Lovísa Ólafsdóttir, hjúkrunarfræðingur og líkamsræktarfrömuður, er mikill sælkeri og segist njóta þess að borð óholla
fæðu og hreyfa sig þeim mun meira.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
2 hvítir marengsbotnar (gott að hafa líka með kókosbragði)5-6 stk. Mars-súkkulaði2 plöt
SKYRMARENGS
6.990 kr.
4ra rétta tilboðog nýr A la Carte
Gjafabréf PerlunnarGóð tækifærisgjöf!
Hægt er að panta 4ra rétta seðilinn með sérvöldu víni með hverjum rétti: 10.990 kr.
Barolo „Ornato“ 2004 | Ítalía.Chablis Grand Cru ,,Les Clos” 2005 | Frakkland
Glas af eðalvíni
Nú h
· Reykt önd með fíkjum, valhnetum og rauðvínsgljáa ·
· Humarsúpa rjómalöguð með grilluðum humarhölum ·· Lambahryggur með lambaskanka og rósmarínsósu ·* E Ð A *· Fiskur dagsins útfærður af matreiðslumönnum Perlunnar ·· Skyr “Tonka crème brûlée” með karamelluís ·
VEÐRIÐ Í DAG
Vill ekki verða
fullorðinn
Bjarni Lárus Hall í
Jeff Who? fagnar
þrítugsafmælinu í
kvöld.
TÍMAMÓT 18
föstudagurFYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS 18. september 2009
SKINKUP Í
„ÉG ER HÁLFGERÐUR BRJÁLÆÐINGUR“Hildur Björnsdóttir, formaður Stúdentaráðs, er vön að hafa mörg járn í
eldinum. Hún stundar meistaranám í lögfræði, berst fyrir hagsmunum
stúdenta og á von á sínu fyrsta barni strax á nýju ári.
GUÐRÚN LOVÍSA ÓLAFSDÓTTIR
Útbýr sykursæta
skyrmarengsköku
• matur • helgin
Í MIÐJU BLAÐSINS
Tilraunir
„Kannske reyna þeir að hugga sig
eilítið við að örlög Íslendinga geti
orðið öðrum víti til varnaðar,“
skrifar Einar Már Jónsson.
Í DAG 16
16.-21. september
MUNDU EFTIRSPARNAÐAR-HEFTINU
Fjármál eru ekki
feimnismál.
Byr sparisjóður er aðalsamstarfsaðili
Stofnunar um fjármálalæsi við
Háskólann í Reykjavík.
Dagur
fjármálalæsis
18. september
Kynntu þér dagskrán
a á fé.is
Ódáðahraun
til Danmerkur
Dönum líkar vel við
bækur Stefáns Mána.
FÓLK 34
HILDUR BJÖRNSDÓTTIR
Ætlaði að verða
forsætisráðherra
FÖSTUDAGUR FYLGIR
FRÉTTABLAÐINU Í DAG
RIGNING EÐA SKÚRIR Í dag
verða sunnan 5-10 m/s vestan til,
annars hægari. Rigning eða skúrir
en úrkomulítið norðanlands. Hiti
8-13 stig.
VEÐUR 4
10
10
8
12
11
EFNAHAGSMÁL Innan fjármálaráðu-
neytisins leggja menn nú lokahönd
á skipan stjórnar Bankasýslu rík-
isins og mun hún taka til starfa
í næstu viku. Bankasýslunni er
ætlað að fara með eignarhluti rík-
isins í fjármálafyrirtækjum. Þá er
einnig hugað að stofnun opinbers
hlutafélags, svokallaðs eignaum-
sýslufélags, en heimild er fyrir því
að fella það undir bankasýsluna.
Fjármálaráðherra hefur kynnt
viðskiptanefnd hverja hann hyggst
skipa í stjórnina; þau Þorstein
Þorsteinsson rekstrarhagfræð-
ing, Sonju Maríu Hreiðarsdóttur
lögfræðing og Sigríði B. Stefáns-
dóttur hagfræðing. Til vara er
Guðrún Johnsen lögfræðingur.
Fjármálaeftirlitið hefur staðfest
að ekkert þeirra sæti rannsókn og
þau uppfylli öll hæfnisskilyrði.
Viðskiptanefnd fundar um málið
eftir helgi og komi engar athuga-
semdir má reikna með að Banka-
sýslan taki strax til starfa.
Dómsmálaráðherra vinnur
nú að breytingum á löggjöf um
gjaldþrot í því skyni að auð-
velda nauðasamninga. Með því á
að koma í veg fyrir að fyrirtæki
verði gjaldþrota.
- kóp / Sjá síðu 12
Dómsmálaráðherra vinnur að því að auðvelda nauðasamninga fyrirtækja:
Bankasýslan tekur til starfa
Um landið á risasnekkju
Bandarísk ferðaskrifstofa býður
næsta sumar upp á
lúxusferð til Íslands
á 400 manna
risasnekkju.
FÓLK 34
EFNAHAGSMÁL Rannsóknarnefnd
Alþingis mun í næstu viku funda
með danska ríkisendurskoðand-
anum um skýrslu sem lögð verður
til grundvallar
fyrir málsókn
gegn stjórnend-
um danska Fjár-
málaeftirlits-
ins vegna falls
Hróarskeldu-
bankans.
Svipuð
skýrsla hefur
verið unnin um
íslenska Fjármálaeftirlitið. Rann-
sóknarnefndin er meðal annars
að skoða umdeilt heilbrigðisvott-
orð sem íslenska Fjármálaeftirlitið
veitti bönkunum rétt fyrir hrun.
„Við gerðum sambærilega rann-
sókn á fjármálaeftirlitinu íslenska
og erum að fara að bera saman
niðurstöður okkar og greiningar,“
segir Páll Hreinsson, formaður
rannsóknarnefndar Alþingis.
- kh / sjá síðu 4
Rannsóknarnefnd Alþingis:
Álagspróf FME
til rannsóknar
EFNAHAGSMÁL Bretar og Hollend-
ingar hafna fyrirvara um að ríkis-
ábyrgð vegna Icesave-samning-
anna gildi ekki nema til ársins 2024
óháð því hvað þá stendur eftir af
skuldinni. Heimildir Fréttablaðsins
herma að þjóðirnar geri kröfu um
að ákvæðinu verði breytt þannig að
ríkisábyrgðin gildi til ársins 2030,
og jafnvel sé þá mögulegt að fram-
lengja hana um allt að tíu ár.
Samkvæmt heimildum blaðsins
er þessi krafa Breta og Hollend-
inga túlkuð innan stjórnkerfisins
sem ótvírætt merki um að þjóð-
irnar vilji að Ísland greiði hverja
krónu sem Icesave-málið kemur til
með að kosta. Einnig að Bretar og
Hollendingar vilji halda óbreyttum
vöxtum á þeim eftirstöðvum láns-
ins sem kunna að standa eftir árið
2024, en þær gætu numið gríðarleg-
um fjárhæðum.
Eins og þekkt er hafa Íslendingar
gengist undir að greiða 5,55 pró-
sent vexti af láni Breta og Hollend-
inga og það sem stendur eftir af því
eftir sjö ár. Greiðsluna skal inna
af hendi á árunum 2016 til 2024.
Alls er óvíst hversu há þessi upp-
hæð verður enda er það háð verð-
bólgu, gengi krónunnar og ekki
síst hversu mikið fæst fyrir eign-
ir Landsbankans og gengur upp í
höfuðstól skuldarinnar.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætis-
ráðherra og Steingrímur J. Sigfús-
son fjármálaráðherra vildu lítið
sem ekkert segja fjölmiðlum í gær.
Þjóðirnar hefðu farið fram á að
upplýsingarnar yrðu meðhöndlað-
ar sem trúnaðarmál. Kom þó fram
í máli þeirra að hugmyndirnar feli
ekki í sér „afslátt“ af fyrirvörum
Íslands.
Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins
sendi frá sér ályktun í gærkvöldi.
Þar segir að höfnun Breta og Hol-
lendinga á fyrirvörum Alþingis feli
í sér að ríkisábyrgð vegna Icesave
taki ekki gildi. Eins að ríkisstjórn-
in hafi ekki heimild til að víkja frá
þeim skýru fyrirvörum sem gild-
andi lög kveða á um. - shá
Vilja ábyrgð lengda
um allt að sextán ár
Bretar og Hollendingar sætta sig ekki við óbreytta fyrirvara Íslendinga vegna
Icesave. Hugmyndir þeirra um málsmeðferð hafa borist stjórnvöldum, en eru
sagðar óformlegar. Breyting sem krafist er gæti kostað Íslendinga milljarðatugi.
PÁLL HREINSSON
SPENNTAR FYRIR LEIKNUM Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu vann góðan sigur á Eistlendingum í gær. Stelpurnar okkar
hafa að undanförnu stutt við bakið á Mænuskaðastofnun Íslands. Fyrir leikinn voru sjö fatlaðar stúlkur í hjólastólum fengnar í
hlutverk fánabera. Stúlkurnar stóðu sig einstaklega vel og segja má að þær hafi lagt grunninn að því sem varð hjá landsliðinu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
FÓTBOLTI Alls skoruðu sjö leik-
menn íslenska landsliðsins í
knattspyrnu þegar liðið gjör-
sigraði máttlítið lið Eistlands í
undankeppni HM 2011. Leikur-
inn endaði 12-0.
Þær Margrét Lára Viðars-
dóttir og Hólmfríður Magnús-
dóttir skoruðu hvor þrennu og
Katrín Jónsdóttir fyrirliði skor-
aði tvö mörk.
Íslenska landsliðið bætti þar
með markamet sitt en það var
sett árið 2003 þegar liðið vann
10-0 sigur á Póllandi.
Þetta var fyrsti leik-
ur Íslands eftir lokakeppni
Evrópumeistaramóts kvenna
sem lauk í Finnlandi fyrr í
þessum mánuði.
- esá / sjá síðu 30
Ísland vann Eistland 12-0:
Stelpurnar
okkar slógu
markametið