Fréttablaðið - 18.09.2009, Qupperneq 36
24 18. september 2009 FÖSTUDAGUR
folk@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Föstudagur 18. september 2009
➜ Tónleikar
20.30 Bubbi Morthens heldur tón-
leika í Bíóhöllinni við Vesturgötu á
Akranesi. Húsið verður opnað kl. 20.
21.00 Gítartríóið JP3 heldur djasstón-
leika í kjallara Cultura Cafe
við Hverfisgötu.
22.00 Dúettinn Glymur
sem er skipaður þeim
Gunnhildi Júlíusdóttur
og Sigurjóni Alexand-
erssyni, verður á Dillon
Sportbar við Trönuhraun
10 í Hafnarfirði.
➜ Opnanir
17.00 Sólveig Edda Vilhjálmsdóttir
opnar sýninguna „Hrafnaþytur“ í sýning-
arsalnum Hurðir við Laugaveg 170 (3.
hæð). Opið alla daga kl. 9-17.
17.00 Brynja Dögg Friðriksdóttir
opnar ljósmyndasýninguna „Þórir SF
77“ í gallerí Verðandi í bókabúðinni
Skuld við Laugaveg 51. Opið mán.-
föst. kl. 11-18, lau. kl. 11-16 og sun. kl.
13-16.
20.00 Jón Árnason opnar sýningu í
Gallerí Crymogæa, Laugavegi 41a. Opið
þri.-lau. kl. 13-18.
➜ Síðustu forvöð
Valgerður Hauksdóttir sýnir ný
grafíkverk og ljósmyndir á sýningu í
Listasafni ASÍ við Freyjugötu 41. Sýn-
ingu lýkur á sunnudag. Opið alla daga
nema mánudaga kl. 13-17.
➜ Dansleikir
Austfirðingaball verður hald-
ið á skemmtistaðnum SPOT við
Bæjarlind í Kópavogi. Fram koma
Magni, Hrafna, Dúkkulísurnar,
Mono o.fl.
➜ Leikrit
20.00 Í Landnámssetrinu við Brák-
arbraut í Borganesi, flytur Víðir Guð-
mundsson einleikinn „21 manns
saknað“. Nánari upplýsingar á www.
landnamssetur.is.
20.00 Bjartmar Þórðarson flytur
einleikinn Skepna eftir Daniel MacIvor
og Daniel Brooks í Leikhúsbatteríinu
við Hafnarstræti 1. Nánari upplýsingar á
www.midi.is.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
> STOLT AF DÓTTUR SINNI
Söngkonan Whitney Houston ræddi
um hjónaband þeirra Bobby Brown
í löngu viðtali við spjallþáttadrottn-
inguna Opruh nýlega. Houston
sagði dóttur sína hafa gefið henni
styrkinn til að sækja um skilnað.
„Hún sagði við mig: „Þú átt þetta
ekki skilið og ekki ég heldur!“ Orð
geta ekki lýst því hversu stolt ég er
af henni.“
Um helmingur miða hefur selst
á Iceland Airwaves-hátíðina sem
verður haldin í Reykjavík 14. til
18. október. Aðeins rúm vika er
liðin síðan miðasalan hófst. „Þetta
fór betur af stað en við þorðum að
vona og hefur farið betur af stað
en síðustu ár,“ segir Róbert Aron
Magnússon hjá Iceland Airwaves.
„Við höfum aldrei séð svona við-
tökur í fyrstu vikunni. Við erum
bara rosalega ánægðir.“
Nú hafa 56 innlendar hljóm-
sveitir bæst við dagskrána og hafa
umsóknir frá íslenskum sveitum
aldrei verið fleiri. 25 íslenskar
hljómsveitir koma fram í fyrsta
skipti á Airwaves sem er frábær
viðbót frá árunum áður. Á meðal
nýrra erlendra sveita eru Cancer
Bats frá Kanada sem spilar á Kerr-
ang!-kvöldi, teknódrottningin JoJo
De Freq og dansa-sveitin Choir of
Young Believers.
Helmingur seldur
MICACHU Michachu & the Shapes frá
Bretlandi verða á Iceland Airwaves-
hátíðinni.
„Okkar fannst þetta tímanna tákn,“
segir Kári Jónsson, bassaleikari
200.000 naglbíta, sem er búinn að
opna barnafataverslun ásamt konu
sinni Lovísu Guðmundsdóttur í fyrr-
verandi útibúi Kaupþings á Glerár-
torgi á Akureyri. „Þetta var reyndar
lítið útibú, bara 40 fermetrar, og þar
sem peningageymslan var er lager-
inn okkar núna,“ segir hann. „Ég efast
samt um að það hafi einhvern tímann
verið einhverjir peningar þarna. Var
þetta ekki bara loft?“
Þau hjónin hafa rekið barnafata-
verslunina Snúðar og snældur á Sel-
fossi um nokkurt skeið og færa nú út
kvíarnar á Akureyri. „Manni rennur
blóðið til skyldunnar enda er ég héðan.
Búðin selur barnaföt frá Danmörku
og alls konar gjafavöru og leikföng
víða að. Við viljum hafa þetta litríkt og
fyrir augað. Okkur leiðast leiðinlegir
hlutir.“
Kári sér enga ástæðu til að opna
útibú í höfuðborginni. „Nei, við dekk-
um Reykjavík ágætlega á Selfossi
því við fáum sumarbústaðabyggðina
hingað inn. Búðir úti á landi þurfa að
vera öðruvísi en í bænum, úti á landi
er minni sérhæfing. Það þarf að vera
smá kaupfélagsfílingur í búðunum
og margs konar hlutir þurfa að vera í
boði.“
Kári ætlar að rífa sig frá barnaföt-
unum 3. október þegar 200.000 nagl-
bítar spila á Sódómu. „Það verður
fyrsta giggið í bænum í 4-5 ár ef við
undanskiljum lúðrasveitartónleikana.
Við ætlum að reyna að vera með eitt-
hvað nýtt efni.“ - drg
Opnar barnafatabúð í banka
LEIÐIST LEIÐINLEGIR HLUTIR Kári naglbítur
selur barnaföt og alls konar dót.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN