Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.09.2009, Qupperneq 46

Fréttablaðið - 18.09.2009, Qupperneq 46
34 18. september 2009 FÖSTUDAGUR „Það er mesta mildi að það var ekki bíll á eftir mér. Þá hefði getað farið miklu verr,“ segir Margrét Erla Maack, plötusnúður í Popplandi Rásar 2. Hún lenti í vespuslysi á miðvikudagskvöldið. „Ég var á leið til kær- astans míns í Kópavogi – það er náttúrulega algjört bull að eiga kærasta í Kópavogi – og rann í bleytunni þegar ég var að fara niður af Hamraborgarbrúnni. Mér tókst að rétta mig af en lenti þá í öðrum polli og missti hjól- ið undan mér. Gott fólk kom og hjálpaði mér og svo kom löggan og sjúkrabíll. Sjúkraflutn- ingamennirnir héldu að ég hefði vankast af því að ég hló svo mikið á leiðinni á spítalann. En ég var nú bara að hlæja af því það minnti mig svo mikið á Playmo-karla þegar þeir voru að bera mig inn í bílinn á sjúkrabörunum.“ Margrét brákaðist á ökkla og þarf að styðja sig við hækju og hún er skrámuð á hökunni. „Ég gæfi ekki mikið fyrir hausinn á mér ef ég hefði ekki verið með hjálm. Svo var ég líka í leðurbangsajakka með silíkon-hlífum úti um allt. Spegill brotnaði á vespunni og önnur hlið- in á henni er hrufluð. Konurnar á bráðamót- tökunni sögðu mér að þetta hefði verið annað vespuslysið á miðvikudaginn.“ Margréti finnst hún berskjölduð í umferð- inni á vespunni sinni. „Ég er á fermingar- hjóli sem kemst ekki nema upp í 45 km hraða. Aðrir ökumenn eru oft mjög óþolinmóðir á eftir mér og margir taka lítið tillit til manns. Þetta getur verið hættuspil. Fólk sem vinn- ur við að aka – leigubílar og fólk á merktum bílum – er oft lítið með hugann við aksturinn og eru þeir ökumenn sem svína mest fyrir mann. Ef það er svínað fyrir mig hringi ég oft í fyrirtækin og er ógeðslega leiðinleg í sím- anum.“ Margrét fékk frí í gær en er mætt í Popp- landið í dag eins og ekkert hafi í skorist. „Mér er samt dálítið brugðið. Ég held það þurfi smá átak að setjast aftur upp á vespuna.“ - drg 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 LÁRÉTT 2. nautasteik, 6. líka, 8. skammst., 9. nögl, 11. númer, 12. glæsibíll, 14. nasl, 16. hæð, 17. sigti, 18. nagdýr, 20. verkfæri, 21. einsöng- ur. LÓÐRÉTT 1. tónlistarstíll, 3. kringum, 4. fornt ríki, 5. aur, 7. sykurbráð, 10. hætta, 13. eldsneyti, 15. steintegund, 16. kerald, 19. ætíð. LAUSN LÁRÉTT: 2. buff, 6. og, 8. möo, 9. kló, 11. nr, 12. kaggi, 14. snakk, 16. ás, 17. sía, 18. mús, 20. al, 21. aría. LÓÐRÉTT: 1. rokk, 3. um, 4. fönikía, 5. for, 7. glassúr, 10. ógn, 13. gas, 15. kalk, 16. áma, 19. sí. SJÚKRAFLUTNINGAMENNIRNIR HÉLDU HANA HAFA VANKAST Margrét Erla Maack mætt í vinnuna eftir vespuslysið í Kópavogi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI „Við erum alltaf að leita að nýjum stöðum og margir af okkar við- skiptavinum hafa lýst yfir áhuga sínum á að sigla í kring- um Ísland,“ segir Tom Arms- trong, upplýsingafulltrúi banda- rísku ferðaskrifstofunnar Tauck. Ferðaskrifstofan sérhæfir sig í siglingum um allan heim og er með skip á hundrað áfangastöð- um. Hún er margverðlaunuð og þykir raunar fremst í sínu fagi enda fagnar fyrirtækið 85 ára afmæli á næsta ári. Ísland er nú að verða eitt af áfangastöðum þessarar virtu ferðaskrifstofu en Tauck hyggst bjóða upp á glæsi- lega átta siglingu við Ísland í lok júlí. Arm strong vill ekki nota orðið „lúxus“ um ferðina enda sé það orð alltof gildishlaðið og ein- hvern veginn bundið við rándýr- ar kampavínsflöskur og einhverja vitleysu. „Hins vegar er það ekk- ert launungarmál að þessi ferð er fyrir fólk sem hefur nóg á milli handanna,“ segir Tom. Og það má til sanns vegar færa, fargjald fyrir tvo í dýrasta herberginu kostar rúma milljón. Farseðillinn til Íslands fyrir þá sem ætla að vera á almenna far- rýminu er á tæpar 800 þúsund krónur en Tom segir allt innifal- ið í því verði; mat, drykki, ferð- ir og skatta. Til siglingarinn- ar verður notuð glæný, 466 feta snekkja, Le Boreal, sem tekur 264 gesti og 140 manna áhöfn. Nánast allar íbúðir snekkjunnar vísa út á haf og gestirnir hafa sínar eigin svalir. Ekki ætti heldur að væsa um gestina um borð; sundlaug, glæsilegur franskur veitinga- staður, kvikmynda- og ráðstefnu- salur auk líkamsræktarstöðvar og gufubaðs eru meðal þess sem gestirnir geta nýtt sér á meðan þeir sigla um hafið við Ísland. Dagskrá gestanna um borð í Le Boreal er þéttskipuð. Þeir fljúga til Íslands og dvelja fyrstu nóttina á Hilton-hótelinu við Suðurlands- braut. Og svo er lagt úr höfn dag- inn eftir og haldið á Snæfellsnes. Grímsey verður síðan næst fyrir valinu, svo Akureyri, Vestfirð- ir, Vestmannaeyjar. Loks verða Þingvellir, Gullfoss og Geysir skoðaðir og ferðinni lýkur svo á Reykjanesskaga þar sem gestirn- ir geta slakað á í Bláa lóninu og skoðað Víkingaheima í Reykja- nesbæ. freyrgígja@frettabladid.is TOM ARMSTRONG: FERÐ FYRIR FÓLK MEÐ NÓG Á MILLI HANDANNA Bandaríkjamenn sigla við landið á risastórri snekkju GLÆSILEGUR FARKOSTUR Flest allar íbúðir um borð í Le Boreal hafa eigin svalir og ekki ætti að væsa um gestina sem eru um borð; sundlaug, glæsilegur franskur veitingastaður og líkamsræktarstöð eru meðal þess sem þeir geta nýtt sér á ferðinni um Ísland. LÖGIN VIÐ VINNUNA „Hef mikið verið að hlusta á nýjar íslenskar plötur. Þar má helst nefna nýju Hjálma-plöt- una, IV, sem ég get sagt með góðri samvisku að er alveg stórskemmtileg.“ Hildur Maral Hamíðsdóttir, starfsmaður hjá Réttum, tónleikaseríu. „Ég veit ekkert af hverju Dönum er svona vel við mig, þeir eru bara yndislegir og það fer bara vel á með okkur,“ segir Stefán Máni rithöfundur. Danskir unnendur glæpasagna virðast hafa bundist íslenska rithöfundinum Stefáni Mána sérstökum tryggðar- böndum því danska forlagið Gyldendal hefur nú samið við rithöfundinn um útgáfu á bókinni Ódáða- hraun sem kom út í fyrra. Gyldendal gaf einnig út spennusöguna Skipið sem vakti mikla athygli og fékk prýðilega dóma í dönskum fjölmiðlum. Gyld- endal ákvað í kjölfarið á velgengni Skipsins að gefa út hljóðbók, slík var eftirsóknin. „Ég veit ekkert hver er að lesa þetta. Kannski sem betur fer. Því einu dönsku leikararnir sem ég þekki eru Casper Christiansen og Frank Kvam úr Klovn. Og það hefði kannski ekkert komið neitt sérstaklega vel út.“ Stefán tekur þátt í hinu árlega jólabókaflóði sem nú er skammt undan og er bara að bíða eftir því að bókin fari í prentun. Um er að ræða spennusögu sem segir þó hvorki af glæpamanni né undirheim- um. „Nei, hún heitir Hyldýpið, er svona reykvísk saga, segir frá tvítugum strák frá Ísafirði sem flyt- ur á mölina. Sjónarhornið er venjulegur strákur sem lendir í óvenjulegum hlutum,“ segir Stefán og tekur skýrt fram að Hyldýpið sé laust undan oki hrunsins, það er að segja bankahrunsins. - fgg Dönum vel við Stefán Mána Útvarpskona hló alla leiðina á spítalann ÓDÁÐAHRAUN TIL DANMÖRKU Gyldendal hefur tryggt sér útgáfuréttinn að bókinni Ódáðahraun eftir Stefán Mána. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN „Ég hef ekki heyrt um svona ferð áður, að fólk sigli hringinn í kringum Ísland á snekkju,“ segir Erna Hauks- dóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar. Hún segir þetta hljóma sem mjög skemmtileg ferð enda sé hún sjálf bara vön því að hossast um hring- veginn á sínum bíl. „Annars hefur það verið að færast í vöxt að farþegaskipin stoppi á fleiri stöðum en einum á ferðum sínum til landsins og það er bara jákvætt. Við viljum að þau stoppi sem víðast.“ Erna segir að stórum farþegaskipum fjölgi ár frá ári og þannig hafi yfir áttatíu slík glæsifley komið inn í íslenska lögsögu og heimsótt eyjarskeggja. „Annars bjóðum við þessa ferðalanga bara velkomna.“ EINSTÖK FERÐ Brotist hefur verið í tvígang inn til Björgvins Jóhanns Hreiðars- sonar, fyrrver- andi söngvara Á móti sól, í Reykholti í Biskups- tungum á undanförnum mánuði. Þjófurinn eða þjófarnir fóru undan á flótta í bæði skiptin enda er Björgvin bæði með grimman hund og þjófavarnarkefni í húsinu sínu. Mikill innbrotafar- aldur hefur verið í Reykholti að undanförnu og af því tilefni héldu íbúðar á svæðinu fund í gærkvöldi til að ræða stöðu mála. Sykursnúðurinn og vöðvatröllið Haffi Haff sendir frá sér nýtt lag í dag. Lagið heitir Jealousy og ku fjalla um öfund í þjóðfélags- þegnum þessa lands. Haffi sló síðast í gegn með laginu Give Me Sexy, en samstarf hans og upptökustjór- ans Örlygs Smára virðist ætla að verða gjöfult. Mikil Magnúsar-Eiríkssonar-her- ferð er fram undan því ævisaga meistarans er væntanleg frá Sögum útgáfu. Eins og komið hefur fram skrifar sjálfur útgefandinn, Tómas Hermannsson, bókina og eiga lesendur von á góðu því allt er látið flakka. Strákarnir í Buff hamast nú við að taka upp plötu með lögum Magnúsar og er fyrsta lagið á leið í spilun í dag. Það er Einhvers staðar ein- hvern tímann aftur og fær gítarleikarinn Einar Þór Jóhannsson að spreyta sig í aðalrödd. - fb, afb, drg FRÉTTIR AF FÓLKI VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á síða 8 1 Yukio Hatoyama. 2 Danska ríkissjónvarpið, DR. 3 Mikael Blomkvist og Lisbeth Salander. Diskó Friskó

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.