Spegillinn - 01.10.1966, Blaðsíða 2

Spegillinn - 01.10.1966, Blaðsíða 2
STÓRVIRKUR LISTMÁLARI. Einn sá stórvirkasti allra ís- lenzkra listmálara mun vera Sveinn Björnsson. Hann afkast- ar einni sýningu á ári, auk sýn- ingar í Kaupinhavn, sem fá hina beztu dóma. Þetta „íslenzka náttúrubarn“ lætur sig svo ekki muna um að vera lögregluþjónn, þar fyrir utan, eða kannski það sé aöalstarfið. Þó að sýningar Sveins séu alltaf stórir og skemmtilegir við- burðir, eru þó alltaf viðtöl hans við blöðin hreint afbragð. Þann 8 okt. sl. rabbar Sveinn við Moggann, og lætur vel yfir Kaupmannahöfn og Danskinum yfirleitt, þeir keyptu málverk af honum, svo að Sveinn hefir ekki aðrar áhyggjur en þær, að tungl- ið fái ekki að vera í friði fyrir geimskotum og geti því truflast og geti því konur orðið ófrjóar. Þetta á lítið skylt við málara- kúnst, og teljum vér hitt mikið hættulegra ,að geim-konur verði frjóar, ef skotið er á þær. ÚR FRÉTTABRÉFI FRÁ KARDEMOMMUBÆ. Veðurfar hefir verið með hinu bezta móti, nema á hinu póli- tízka sviði, þar vill hlaupa í garra öðru hvoru. Kirkjusókn er með versta móti ,enda er krist- indómur í lakasta lagi í plássinu. En einhverjir urðu til að halda borgarafund um atvinnumál og þar varð öllu meiri aðsókn, því þar varð messaö fyrir fullu húsi af miklu fjöri. T.d. um fjörið og fjálgleikinn, þegar rætt var um vesöld bæj- arútgerðar Kardemommubæjar þá varð heilbrigðisfulltrúa stað- arins á að fullyrða að fyrrver- andi framkvæmdastjóri útgerð- arinnar, sem var látinn fyrir nokkru, myndi snúa sér við í gröf sinni — ef hann væri lif- andi. Ef þú ekur bíl, og vilf vera stundvis, pg á það einhver stólar, þá skaltu kaupa PÓLAR. „FÓR ÚR BUXUNUM 4 OG BIARGAÐI HESTINUM“, hljóðaði hin snaggaralega fyrir- sögn í Vísi fyrir skömmu. Oss datt í hug að verið væri að bjarga hesti frá kulda og um- ræddur lögregluþjónn hefði því þrætt brækur sínar upp á bak- hluta hestsins, svo langt sem þær náðu, en það var ekki svo. Vísir rakti atburðarásina ná- kvæmlega, en lögregluþjónninn fór hreinlega úr buxum sínum til að bleyta þær ekki, áður en hann óð út í Hólsá til að sækja þennan ósjálfbjarga hest, sem um var rætt, en hann komst ekki af eigin ramleik upp úr ánni. Fréttin endar svohljóðandi: „Þótti þetta vera hið mesta þrek- virki, en Einar (lögregluþjónn- inn buxnalausi) fór í ána að eigin frumkvæði". Vér dáumst nú mest af snyrti- mennskunni. RÉTT BOÐLEIÐ. Daginn sem sjónvarpið hóf göngu sína, sagðist Alþýðublað- inu svo frá: „Eins og við er að búast er mjög vandað til dagskrár fyrsta sjónvarpskvöldsins, og í kvöld mun bera fyrir augu hvert augnayndið af öðru. Fyrst oí fremst sjáum við náttúrlega út varpsstjóra og þar á eftir fof sætisráðherra. Síðan verða sýnd ir Eskimóar". Þjóðólfur. GÓÐAR MINNINGAR. Opinskáar minningar Stefáns Jóhanns eru komnar út, og eI talið að mikll og skemmtilegu' úlfaþytur sé í vændum. Betur að satt væri, því nóg eí af lognmollunni, og fæstir þofa að segja frómt frá — vegn^ sjálfs síns og annarra. FRÍSTUNDABÚÐIN SPORTVÖRUR LEIKFÖNG VELTUSUNDl I- *MMI 18722 - SENDUM GEGN PÓSTKRÖEU UM LAND ALLT

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.