Spegillinn - 01.10.1966, Page 26

Spegillinn - 01.10.1966, Page 26
MÁNAÐARINS Vér höfum kjörið Dr. Sigurð Nordal fugl mónaðarins, að þessu sinni. Vér bregðum honum í gervi sumarfugls- ins, þó að haustið sé komið, enda fylgir haustið sumrinu, eins örugglega og ellin æskunni. Kærleikssöngur (Lag: Ég hef elskað þig frá okkar fyrstu kynnum). Ég hef dáð þig frá þeim degi, er fyrst ég sá þig, og mig dreymdi þig í svefni marga nótt. Ég fann ég yrði endilega að fá þig, og yrði það að gerast fljótt, fljótt, fljótt. Og svo fékk ég þig, er fór að líða að vetri og fögnuð minn ég naumast hamið gat. Ég fann, að þú varst öllum öðrum betri og alsæll hjá þér marga stund ég sat. Ég gleymi aldrei okkar fyrstu jólum, er allir þínir kostir birtust mér. Ég utan um þig allur var á hjólum og öllum virtist geðjast vel að þér. En vetur leið og vorið kom til okkar, þá vermdi sól og kyssti blómin sín, og góðviðrið til gönguferða lokkar — þá gauztu stundum hornauga til mín. Oti á túni alsæll sat ég hjá þér, eða í brekku, gili, lautu, mó. Ég gat ei hugsað til að fara frá þér. Mér fannst ég verða að passa þig — og þó. Nú hef ég okkar sögu sagt og rakið — en sorglegur þó gerðist endirinn, Því úti í lautu lagðist þú á bakið og lást þar — alveg dauður hrússi minn. pós. 26 S p e g i 11 i n n

x

Spegillinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.