Spegillinn - 01.03.1968, Side 11

Spegillinn - 01.03.1968, Side 11
SPEGILLINN 11 Loksins tók að lifna við laut og hóll og bali, þjóð af kindum þáði svið, þaut í holti smali. IVormenn íslands stigu á stokk og stungu saman nefjum, hross af kæti hlupu á brokk, hrökk þá flest úr skefjum. Lýðnum tókst að losna við ljóta, danska helsið, þjóðin enga þoldi bið, þaut í holti frelsið. Táp og fjör og frískir menn fjötruðust tryggðaböndum, langir og stuttir landsmenn senn læstu saman höndum. Menntagyðjan bar á borð bæði frónskt og útlent, þjóðin lærði þjóðlegt orð, þaut 1 holti stúdent, og þá sagði maður við mann: „Margt ég forðum hnaut um, ó, þá náð að eiga þann einkavin í þrautum.“ Upp reis hæstur háskóli, herti menntir stórar. Þutu um holt á hnjáskjóli hundrað prófessórar. Svo var loks á síðkveldi síðust kveðin ríman, lýðurinn stofnaði lýðveldi löngu fyrir tímann. Nú er allt í unaðsdúr undir sól að skoða, bráðnar áll og brennur gúr bjart í sólarroða, laufin grænu litka börð, leikur hjörð í haga, fögur er vor fósturjörð flesta sumardaga. Bégé.

x

Spegillinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.