Stúdentablaðið

Ukioqatigiit

Stúdentablaðið - 17.04.1980, Qupperneq 4

Stúdentablaðið - 17.04.1980, Qupperneq 4
Stúdentablaðið Útgefandi SHI og SINE Ritstjórar: Björn Jónasson og Magnús Guðmundsson. Útgáfustjórn: Stjórn SHI og SiNE. Ritstjórn og afgreiðsla: Félagsheimili stúdenta við Hringbraut/ 101 Reykjavík. Simar 15959 og 25315. Verð: 300 kr. i lausasölu/ áskriftargjald á ári 3000 kr. Prentun: Blaðaprent. 85% jafnrétti til náms Það lifir enginn á orðinu einu saman. Það er ömurlegt til þess að vita að mikill hluti tima og orku fulltrúa námsmanna undanfarin tiu ár skuli hafa farið i að reyna að sanna fyrir ráðamönnum að námsmenn, rétt eins og hverjir aðrir, þurfi á næringu, fæði og húsaskjóli að halda. Þrátt fyrir alla þessa vinnu hefur enn ekki tekist að sannfæra téð yfirvöld nema áttatiuogfimm prósent. Þau virðast álita að námsmenn þrif- ist best á vondum mat, að þeim liði best i ljótum fötum, loft- lausum kjöllurum eða saggasælum risherbergjum. Þetta sýnist ráðamönnum vera sjálfsagt hlutskipti Hvar á að taka peningana? Námsmenn héldu fjölmennan útifund á Arnarhóli á dögun- um þar sem þeir kröfðust úrbóta á málum sinum og kölluðu fjármálaráðherra Ragnar Arnalds út úr skrifstofu sinni til viðtals við sig. Ragnar sagði að það þyrfti endilega að gera eitthvað fyrir námsmenn, en þvi miður stæði svolitið illa á hjá þeim i rikissjóði og það yrði þess vegna ekki alveg i augnablikinu. „Hvar á að taka peningana”, sagði ráð- herrann. Þessi sami maður litur á sig sem einn af fulltrúum sósialista á Alþingi. Námsmenn og verkafólk lætur vart blekkja sig lengur á þennan hátt. Allur almenningur veit að það er nóg til af pen- ingum i buxnavösum islenskra auðmanna. Hvernig væri að skera tekjur þeirra manna niður þó ekki væri nema niður i áttatiuogfimm prósent. Augljós réttindi Jafnrétti til náms, það að fólki úr verkalýðsstétt verði gert kleift að afla sér menntunar á að vera augljóst réttlætismál. Jafnrétti til náms telst til grundvallarmannréttinda. Þess vegna krefst námsmannahreyfingin þess að rikisvaldið tryggi hundraðprósent brúun framfærslu tafarlaust. Þessari kröfu munu námsmenn fylgja fasteftir og herða baráttu sina enn. Skilafrestur í næsta blað er til 1. maí Að blaðinu unnu auk ritstjóra eftirtaldir: Þorgeir Pálsson, Helga Jónsdóttir, Pétur Reimarsson og Sigurður Sigurðsson

x

Stúdentablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.