Stúdentablaðið

Ukioqatigiit

Stúdentablaðið - 17.04.1980, Qupperneq 5

Stúdentablaðið - 17.04.1980, Qupperneq 5
Stúdentablaðið NY NEFND Pétur Reimarsson formaður SÍNE: Hreyfinger nú að komastá lánamálin aftur. Þannig hefur menntamálaráð- herra i hyggju að skipa nefnd til að endurskoða lög og reglur um námslán ognámsstyrki. Þar mun eiga að leggja til grundvallar „samkomulag” við námsmenn frá liðnu vori. Eins og mönn- um er i fersku minni kom samkomulag þetta fram i frumvarpi á Alþingi og byggði einkum á tveimur atriöum, þ.e. annars vegar að námsmenn fái 100% lán (árið 1982) og hins vegar að endur- greiöslur verði hertar hjá þeim sem háarhafa tekjur, en lækki hjá þeim sem hafalægstartekjur. Telja má aö tillögur þessar hafi eftir atvikum verið sann- gjarnarog hljóta námsmannafulltrúar í ofannefndri nefnt að leggja áherslu á að viö þetta „samkomulag” veröi staðið. Það er hins vegar alveg ljóst aö ýmsir einstaklingar úr öllum þingflokkunum hafi verið mjög tortryggnir gagnvart nýju endurgreiöslureglunum og má búast við aö stift verði haldiö fram stefnu krata og ihalds um raunvexti og aðmenn borgi lánin aö fullu til baka við allar aðstæður. Gegn slikum tillögum verða námsmenn að berjast í samræmi við kröfuna: „Engar endurgreiðslur á þurftarlaun”. Einnig mun nefnd þessi eiga aö fjalla um reglugerð lánasjóðsins. Ekki er ljóst með hvaða hætti endurskoðun reglu- gerðarinnar á að vera, en þó má ætla að ráðamenn, sem sjá nokkrum ofsjónum yfir fjölda þeirra sem njóta aðstoðar sjóðsins, muni jafnvel hafa i hyggju einhverja flokkun á námsmönnum eftir þvf hvort þeir stunda þaö sem kallað er „æðra” og „öæðra” nám. Slikar aftur- haldstillögur eiga heldur ekki upp á pallborðið hjá námsmönnum. Hins vegar gæti slik endurskoðun kannski haft ýmislegt gottí för með sér, ekki sist ef mönnum yrði leyft að afla sér tekna án þess að slikt komi til beins frádráttar á námslánum. Spyrja má hvers vegna ekki hafi orðið úr að frumvarp það sem menntamála- ráðherra (sá næstsiðasti) létsemja, hafi veriðlagtfram og samþykkt á vetrinum sem núer að liða. Til þess liggja einkum tvær ástæður. Sú fyrsta og veigameiri er að i vetur hefur þing litið starfað og ekki sinnt nema brýnustu málum rikiskassans og mun ætlunin aö ljúka þingstörfum í byrjun mai, svo rikisstjórnin geti starf- að án afskipta þings að þvi aö leysa vinnudeilur. 1 öðru lagi var frumvarp þetta ákaf- lega litið kynnt og eins og áöur hefur verið gagnrýnt reyndi þáverandi menntamálaráðherra ekkert til að afla frumvarp sinu stuðnings meðal þing- manna. Einnig má álasa námsmönnum ' og námsmannaforystunni sérstaklega fyrir að hafa ekki kynnt kjaramál námsmanna út á viö. Þaö er sama viö hvern er rætt um námslán og námsmenn aö uppi eru alls kyns fordómar gagnvart þessu sem einkum byggjast á vanþekkingu. Þannig hefði þessi vetur sem nú er að liða átt að einkennast af miklum blaöa- skrifum um námslánakerfiö, endur- greiðslur, úthlutunarreglur og svo framvegis. Vegna þessara tveggja atriða kemur nýtt frumvarp um námslán og náms- styrki til að hljóta afgreiðslu 1—11/2 ári seinna en ef vel hefði verið. Vonandi er að þeir fulltrúar sem þing- flokkarnir skipa i nefnd menntamála- ráðherra beri gæfu til að ganga að kröf- um mánsmanna i sem allra flestum atriðum, þvi reynslan hefur kennt að námsmannahreyfingin er sterk sé að henni vegið. Nú riður á að námsmenn veiti nefnd- inni mikið og gott aöhald með ályktun- um, tillögum og sérstaklega með þvl aö fylgjast vel með því sem frá nefndinni kemur. Vonir standa til aö I næsta Stúdentablaöi verði hægt aö greina frá þvl nákvæmlega hvað þessi nefnd á að gera og hvaða hugmyndir verða þar á lofti. P.S. Námsmannafulltrúarnir hafa nú verið tilnefndir og eru: Þorgeir Pálsson, SHl Pétur Reimarsson, SINE Einar B. Steinþórsson, BISN Sameining stúdentablaðanna ÞaO hefur sjálfsagt ekki fariD fram- hjá öllum, aö fyrsta tölublað Stúdenta- blaðsins á þessu ári var sameiginlegt blað Stúdentaráðs Háskóla Islands og Sambands tslenskra Námsmanna Er- lendis. t þessu sama blaöi var at- kvæðaseðill sem StNE félagar gátu fyllt út og þannig sýnt hug sinn til þessarar sameiningar. AIIs bárust 40 atkvæði til kjörstjórn- ar og voru 39 fylgjandi sameiningu blaðanna og 1 á móti. Þegar aðeins einn StNE félagi, af rúmlega 1500, er andvlgur sameiningunni litum við svo á að meirihluti StNE félaga sé fylgjandi áframhaldandi samvinnu við Stúdentaráð um útgáfu sameiginlegs Stúdentablaðs. Ráðgert er að gefa út eitt blaö til við- bótar á þessu misseri. Stjórn StNE Félag Kvikmy ndaáhuga- manna í Háskóla Islands: Framhaldsstofnf undur Fé- lags Kvikmyndaáhuga- manna í Háskóla Islands verður haldinn fimmtudaginn 24. apríl kl. 20.30 í fundarher- bergi Félagsstofnunnar (við hliðina á matsalnum). Lögð verða fram þau drög að lögum félagsins, sem hafa verið til umræðu undanfarið, og þau borin upp til samþykktar. Ennfremur verður stjórn félagsins fyrir næsta starfsár kjörin og rætt um starfið til þess og í framtíðinni. Stjórnin. Humboldt- styrkur Þýskasendiráðið í Reykjavik hefur tilkynnt að Alexander von Humboldt- stofnunin bjóöi fram styrki handa er- lendum vísindamönnum til rann- sóknarstarfa viö háskóla og aðrar vís- indastofnanir i Sambandslýöveldinu Þyskalandi. Umsækjendur skulu hafa lokiö doktorsprófi I fræöigrein sinni og eigi vera elá-i en 40 ára. — Sérstök umsóknareyöublöð fást I menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavik, en umsóknir skulu sendar til Alexander von Humboldt- Stiftung. Jean-Paul-Strasse 12, D-5300 Bonn 2. — Þá veitir þýska sendiráöiö (Túngötu 18, Reykjavik) jafnframt nánari upplýsingar um styrki þessa. Menntamálaráðuneytið, 25. mars 1980. Styrkir 1. Styrkir til framhaldsnáms i Pól- landi i 12 mán. skólaárið 1980-1981 i tengslum við UMESCO. Styrkirnir, fimm að tölu eru veittir til náms i pólskri sögu, pólskri málfræði, slavneskri málfræði. Umsóknar- frestur til 20.4 1980 . 2. Styrkir, tlu að tölu, til framhalds- náms eða rannsókna I þeim fræðum sem tengjast störfum visindamanns- ins Kópernikusar svo sem stjörnu- fræöi, eðlisfræði, stærðfræði, einnig tengd svið svo sem heimspeki, félags- fræði og saga visindanna. Umsóknar- frestur til 20.4 1980. 3. Styrkur til sumarnámskeiös i ensku við háskólann I Kiel. Frá 15.6- 19.7 1980. Umsóknarfrestur til 30.4 1980. 4. Flugmálastofnun Evrópu efnir til ritgerðasamkeppni meðal háskóla- stúdenta um þróun og framtiö flug- starfsemi I Evrópu. Verðlaun i boði. Skilafrestur 1.8 1980 . Nánari upplýsingar um styrki þessa eru veittar á skrifstofu rektors Hí. AÐEINS 82.000 KR. Kaupmannahöfn fram og til baka Félagsstofnun stúdenta f.h. S.H.I. og S.f.N.E. hefur skipulagt i samstarfi við námsmannafélögin í Danmörku og S-Svíþjóð eftirtaldar ferðir: 9 vikna ferð 26/6 — 28/8 3 vikna ferð 30/6 — 21/7 6 vikna ferð 30/6 — 11/8 3 vikna ferð 5/8 — 26/8 I verðinu felast allir þekktir skattar og gjöld, þ.m.t. flug- vallarskattur, þó er verðið háð breytingu á f lugvallarskatti og olíuverði. Pantið far strax í síma 15918 f rá kl. 10-12 og 14-16. Til staðfest- ingar pöntunar þarf að greiða kr. 12.000 í tryggingargjald.

x

Stúdentablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.