Stúdentablaðið - 01.02.1988, Síða 5
í-iÉH*.
STÚDENTAPÓLITÍK rlwlw
Undir regnhlíf
félagshyggjunnar.
Það ríkir bjartsýni
og gleði í hópi
þeirra sem standa
að nýja félaginu.
Þórunn Svein-
bjarnardóttir, for-
maður félagsins, er
í miðjunni. Til
vinstri er Margrét
Einarsdóttir, for-
maður Féiags
vinstri manna, til
hægri Ágúst Ómar
Ágústsson, for-
maður Félags
umbótasinna.
Mynd: Kópía.
011 hagsmimabarátta
erpólitík
— segir formaður félagsins, Þórunn Sveinbjarnardóttir
Er það talandi tákn þess sem er að
gerast að þú sem ert úr forystuliði
Félags vinstri manna tekur við for-
mennsku í nýja félaginu?
- Pað fer ekki á milli mála hvort
félagið hefur verið stærra í vetur.
Það er því ekkert skrítið þótt meira
beri á fólki þaðan fyrst í stað. Þaðan
koma fleiri til starfa. En ég vil undir-
strika að umbótasinnar eru mjög
sterkir innan nýja félagsins, bæði að
mannvali og málefnum.
Hvaða gagn verður að nýja félag-
inu þegar til lengri tíma er litið?
- Ég vona að félagið geti nú og í
framtíðinni verið skýr og ótvíræður
valkostur fyrir allt félagshyggjufólk,
þannig að menn geti kosið á milli
hægri stefnu Vöku og okkar. Við
viljum gjarnan forða stúdentapó-
litíkinni undan þeim stimpli að hún
sé, eigi að vera eða geti verið „ópóli-
tísk“. Öll hagsmunabarátta er póli-
tísk í eðli sínu, burtséð frá daglegu
þrasi. Ég vona svo sannarlega að
félagið lifi sem lengst til að sinna
þessum verkefnum.
Þetta er ekki ífyrsta sinn sem reynt
er að sameina alls konar vinstri menn
í einum og sömu regnhlífarsam-
tökunum. Hingað til hefur þetta all-
taf mistekist. Er ekki eins líklegt að
stúdentar tvístrist aftur, t.d. eftir
flokkslínum?
- Það held ég ekki. Ég er viss um
að fólk hefur þroska til að haida
skoðunum sínum á flokkapólitík-
inni utan hagsmunabaráttu stúd-
enta. Ég lít í rauninni svo á að þetta
félag byggi á samstöðu félagshyggju-
fólks gegn íhaldinu, í þessu tilfelli
Vöku og þeirri stefnu sem hún boðar.
Röskva — samtök félagshyggjufólks í Háskóla íslands hefur kosið
sér formann. Hún heitir Þórunn Sveinbjarnardóttir, nemi á 3. ári í
stjórnmála- og fjölmiðlafræði. Þórunn hefur komið nálægt félgas-
störfum áður. Árin 1985-86 og 1986-87 sat hún í stjórn Samfélagsins,
síðara árið sem formaður. Vorið 1987 tók hún sæti á lista Félags
vinstri manna til Háskólaráðs og er nú varamaður á þeim bæ. Við
fengum Þórunni í snöggsoðið viðtal rétt áður en blaðið fór í prentun.
Við lögðum fyrir hana þrjár erfiðar spurningar.
STÚDEMTABLAÐIÐ 5