Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.02.1988, Blaðsíða 19

Stúdentablaðið - 01.02.1988, Blaðsíða 19
LÁNAMÁL aðan mat ætti jafnstór lágtekjufjöl- skylda að þurfa 1.800 kr. á mán í tekjuauka til að eiga fyrir matar- skattinum miðað við hækkun fram- færslukostnaðar. Rök hníga að því að sé útreikn- ingur Bolla nærri lagi, geti náms- menn farið fram á það með góðri samvisku að þeim verðu bættur matarskatturinn, t.d. á svipaðan hátt og lífeyrisþegum, en bætur þeirra hækka um 7% vegna matar- skatts. Lágmark er að þeim verði bættar þessar 1.800 kr. miðað við hjón og 1 barn. Raunar er sjálfsagt hægt að hækka þessa tölu í um 2.500 kr., miðað við þær hækkanir á verði matvara sem orðið hafa og hafa komið flatt upp á fjármálaráðherra og talsmenn hans. Sjálfsagt eru þær hækkanir þá ekki inni í útreikning- um Bolla. 2.500 kr. á hjón og 1 barn gera nákvæmlega 1.000 kr. hækkun á grunnframfærslutölu LÍN. Pað sem einnig styður þessa kröfu er að þær aðgerðir sem gerðar voru til að bæta láglaunafólki þessar hækkanir, koma námsfólki til lítilla nota, - hækkun barnabóta og barna- bótaauka (aðeins hluti námsmanna á börn), lífeyrisgreiðslna o.þ.h. Krafa Stúdentaráðs 7 % liækkiiii vegna matarskatts Á fundi stjórnar LÍN fimmtud. 28. janúar s.l. lagði fulltrúi Stúdenta- ráðs fram eftirfarandi tillögu: „Geri það að tillögu minni að grunnframfærsla námsmanna hækki um 7% frá og með 1. janúar 1988 og verði þannig kr. 29.457 miðað við verðlag 1. desember 1987. Þessi hækkun verði til að mæta útgjald- aaukningu námsmanna vegna áhrifa álagningar söluskatts á matvæli." í greinargerð segir: „Um síðustu áramót komu lög um breytingar á söluskatti, tollum og vörugjöldum til framkvæmda. Vegna þessar breytinga hækkuðu útgjöld einstaklingsins vegna matar- kaupa verulega, en á móti komu lækkanir á öðrum vöruflokkum. Pannig að skv. opinberum upplýs- ingum er ekki gert ráð fyrir að fram- færsluvísitalan hækki þegar áhrif þessara aðgerða eru skoðuð í heild Það er augljóst að þeir sem eru tekjulægri verja stærri hluta tekna sinna til kaupa á matvörum, en þeir tekjuhærri. Til að mæta þessari kjararýrnum lágtekjuhópa hefur ríkisvaldið leitast við m.a. að hækka lífeyrisgreiðslur og barnabætur. Með tilvísun til þess sem hér hefur verið rakið, þá er hér lagt til að námslán hækki til samræmis við hækkun lífeyrisgreiðslna, þar sem ekki getur talist óeðlilegt að sjóðs- stjórn taki mið af þeim leiðrétting- um sem aðrir lágtekjuhópar hafa fengið." Sumt í lífinu er tilviljun -annað ekki. Til dæmis getur tilviljun ráðið því við hvaða banka þú skiptir. Það er hins vegar ekki tilviljun að hjá Alþýðubankanum er hærra hlutfall útlána til einstaklinga en hjá nokkrum öðrum banka. Þess vegna ættir þú ekki að láta tilviljun ráða því við hvaða banka þú skiptir. Alþyóubankínn hf </> STÚDErtTABLAÐIÐ 19

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.