Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.02.1988, Blaðsíða 39

Stúdentablaðið - 01.02.1988, Blaðsíða 39
ÍÞRÓTTIR menni á hátíðina. Ekki spillir það fyrir að Háskólaráð hefur gefið frí frá kennslu í H.í. eftir hádegi þennan dag. íþróttaball í Hollywood Eftir íþróttahátíðina verður stiginn villtur dans fram eftir nóttu í veitinga- húsinu Hollywood. Mikið verður um dýrðir þetta kvöld þar sem u.þ.b. tvöhundruð verðlauna- peningar, ásamt fjölda farandbikara, verða afhentir. Allir stúdentar eru að sjálfsögðu vel- komnir á þennan dansleik sem vænta má að verði mjög fjölsóttur þar sem hátt á þriðja tug deildar- félaga standa að honum í sameiningu. Ekki þarf að taka það fram að tónlistarmenn týndu kynslóðarinnar munu sitja hcima þetta kvöld og öll tónlist kemur til með að verða fram reidd af glænýjum nylon- og geisladiskum sem stjórnað verður af eitur- hressum diskasnúðum. Miðaverð er aðeins kr. 450. Skemmtiskokk HALLÓ, HALLÓ, ertu ekki hress ???? Við í Lagadeildinni erum alveg dúndurhress og erum viss um að þú sért það líka. Þess vegna ætlum við að hafa alveg rosalega spennandi SKEMMTISKOKK sunnudaginn 6. mars næstkomandi. Keppt verður í einstaklingskeppni og deildarkeppni (4 manna sveitir), í kvenna- og karlaflokki, en allir látnir hlaupa saman. Vegleg verðlaun i boði. Skráning fer fram í aðalbyggingu HÍ kl. 12.00-13.30 sama dag. Mun fjöldinn allur af fólki sjá um skráningu. Þátttökugjald verður aðeins kr. 100,00 (just a piece of cake). Hlaupið byrjar og endar fyrir framan HÍ og hlaupnir verða 5 km. Þetta er alveg tilvalið tækifæri fyrir nemendur, kennara, prófessora og almenning, hvort sem þeir eru mjóir, feitir, í toppformi eða lélegu formi, að mæta og taka þátt í heilsusamlegu og SKEMMTILEGU skokki. KOMIÐ, SJÁIÐ OG VERIÐ MEÐ EÐA SIGRIÐ þvi að þið hafið engu að tapa, heldur allt að vinna. Einnig er þetta alveg tilvalið tækifæri fyrir alla þreytta nemendur til að hita sig upp fyrir allar greinarnar sem keppt verður í helgina á eftir. Hengd verða upp auglýsingaspjöld víðs vegar um bæinn með nánari upplýsingum. f.h. Orators Linda Bentsdóttir •IlZ ■JLj 10 1« STÚDEMTABLAÐIÐ 39

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.