Stúdentablaðið - 01.02.1988, Blaðsíða 35
STÚDENTAR HAFA ORÐIÐ
á eigi aðgang að því og geti komið
sínum málefnum á framfæri beint og
milliliðalaust.
Hver einstakur þáttagerðaraðili
ber fulla ábyrgð á útsendum þáttum
sínum og það er því hin argasta firra
þegar því er haldið fram að með
aðild sinni að Rótinni beri SHÍ
ábyrgð á öllu sem þar er sagt, hvort
sem að Borgaraflokkurinn eða Bú-
seti eigi í hlut. Þvert á móti, þá ber
Stúdentaráð aðeins ábyrgð á sínum
eigin þáttum.
Að lokum þá er stúdentum og
öðrum aðilum innan Háskólans sem
áhuga hafa á að vinna að eða við
Utvarp Rót bent á að hafa samband
við skrifstofu SHÍ hið fyrsta. Við
eigum útvarpsstöð. Hún er öllum
opin. Við skulum nota hana.!
Runólfur Ágústsson.
^ÖúfvARP
F M 10 6*
Ilvcrjii* emt
Útvarp Iiót?
Pví hefur verið haldið fram að ein-
ungis vinstri menn standi að útvarp-
inu og að það sé í raun miðstöð
alheimskommúnismans eða eitt-
hvað þaðan af verra. Til að leiðrétta
þessa rangfærslu þá má nefna eftir-
farandi dæmi um félagasamtök sem
eiga hlut í stöðinni eða eru með fasta
þætti í henni:
Stúdentaráð Háskóla íslands,
BÍSN,
SÍNE,
Sjálfsbjörg,
Búseti,
Samtök um kvennaathvarf,
Samtök kvenna á vinnumarkaði,
Esperantistar,
Lífsvon,
Samtökin ’78,
Alþjóðleg ungmennaskipti,
Mið-Ameríkunefndin,
Borgaraflokkurinn,
Samband ungra jafnaðarmanna,
Kvennalistinn,
Æ.F.A.B.
1' fíWBMW-rljSSU [WiWmJ jjmu*,,.,, 1 > "v frrSF,
V \ » m j| fí* >k‘'wí! 1
f 1 < 1 M l -v! y
1'i"TT
; if, wáZ" • •
Gangbrautar^ós
við gangbraut á Suðurgötu,
rétt hjá Hjónagörðum
Eins og margir íbúar Hjónagarða
muna gekk undirrituð ásamt fleirum
í þau hús hér austan Suðurgötu þar
sem börn búa með undirskriftarlista
að vopni s.l. haust. Bað ég fólk að
lýsa yfir stuðningi við þá ósk mína,
er ég beindi til Umferðarnefndar
Reykjavíkur, að sett yrðu gönguljós
við gangbrautina í Suðurgötu, til
móts við sjoppuna. Lét ég listana
fylgja beiðni minni, þar sem fram
kom ítarlegur rökstuðningur. Lagði
ég þó höfuðáherslu á vanda þeirra
barna sem eru að hefja skólagöngu
sína og þurfa að berjast við umferð-
arþungann þarna.
Nokkru eftir að ég sendi þetta,
hringdi >ég í starfsmann umferðar-
nefndarinnar og spurðist fyrir um
örlög þessa erindis. Sagði hann það
hafa verið tekið fyrir á fundi nefnd-
arinnar og var ákveðið að rannsaka
umferðarþunga o.fl. á þessum stað.
Taldi hann líklegt að erindinu yrði
svo frestað og tekið fyrir ásamt fleiri
erindum sem borist hefðu frá íbúum
í næsta nágrenni Suðurgötu en
umferðarskipulag vesturbæjar yrði
endurskoðað í heild sinni. Kvaðst
hann vonast til að það yrði gert síð-
sumars 1988. Ræddum við nokkuð
aðgerðir sem grípa mæti til í millitíð-
inni með tilliti til skólabarnanna.
Taldi hann hugmyndina um skólabíl
úr skóla, með viðkomu á bílastæði
Hjónagarða, athyglisverða. Þar
með mætti draga úr hættunni á gagn-
brautarslysi á þessum stað. Margt
annað bar á góma í samtali okkar
Valborg Snævarr.
varðandi umferðarmál á háskól-
asvæðinu og í vesturbænum
almennt.
Vil ég taka það sérstaklega fram
hversu vel þessarri ábendingu var
tekið og hvet ég fólk að láta heyra í
sér til nefndarinnar hafi það fleiri
hugmyndir um það sem betur má
fara. Auðvitað erum við sem hér
búum og störfum þeir einu sem geta
gefið slíkar ábendingar.
Einhver árangur náðist semsagt.
Nú hefur a.m.k. formlega verið ósk-
að eftir þessu og búast má við ein-
hverjum úrbótum þarna. Hvort það
verða gönguljós eða eitthvað annað
verður tíminn að leiða í ljós.
Með kveðju og þökk fyrir stuðn-
inginn.
Valborg Snœvarr, laganemi
STÚDEMTABLAÐIÐ 35