Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.02.1988, Blaðsíða 9

Stúdentablaðið - 01.02.1988, Blaðsíða 9
STÚDENTAPÓLITÍKTgggi Stjnridr félagsfay^fu' öilin í Háskölanum Formaður framkvæmdanefndar Félags vinstri manna er Margrét Einarsdóttir. Við tókum hana tali í tilefni sameiningar og báðum hana að útskýra hana frá sínu sjónarhorni. - Það hefur komið í ljós í sam- starfi félaganna tveggja, að á milli þeirra er mjög lítill málefnalegur ágreiningur. Bæði hafa þau félags- leg sjónarmið að leiðarljósi. Það hlýtur því að vera heillavænlegast fyrir alla aðila að sameina þau. Kraftar okkar fara þá ekki lengur í að búa til einhvern ágreining og berjahvertáöðru, heldurgetum við nú eytt allri orku okkar í hagsmuna- baráttu stúdenta. Útkoman verður öflugra Stúdentaráð sem gætir betur að hagsmunum stúdenta en ella. Er ekki hreinlega verið að innlima umbótasinna í Félag vinstri manna? - Nei, eins og ég sagði hefur stefnan verið svo lík í hagsmunamál- um að það er ekkert vit í að starfa áfram í tveim hópum þar. Hvað með önnur mál en hags- munamálin? Verða umbótasinnar ykkur ekki erfiðir í taumi þar? - Ég óttast ekki ágreining. For- maður Stúdentaráðs, sem er umbóta- sinni, hefur sagt að ómögulegt sé að reka hagsmunabaráttu stúdenta nema tengja hana því sem er að ger- ast í samfélaginu. Við erum sam- mála þessu, og sjáum því alls ekki fram á að þurfa að bakka með neitt í okkar stefnu. Verður áframhaldandi starfá veg- um Félags vinstri manna? - Það gæti farið svo, ef fólk hefur áhuga á því. Félagið verður að vísu að vera til áfram vegna þess að það á fulltrúa í Stúdentaráði. En þar fyrir utan þarf að sinna ýmsum málum. Annað hvort gerum við það á vegum Félags vinstri manna eða nýja félag- ið tekur þau yfir smátt og smátt. Er þetta nýja félag eins konar hrœðslubandalag gegn Vöku? - Við erum að sameina félags- hyggjuöfl innan skólans og þar með styrkja þau. Það er óhjákvæmileg afleiðing ef félagshyggjuöflin eflast, að hægri öflin veikist. Lítið þið svo á að umbótasinnar, sem upphaflega klofnuðu út úr Félagi vinstri manna, séu nú komnir heim aftur? - Frá sjónarhóli okkar vinstri manna er auðvelt að líta svo á. Við föi*iim ekkií iicinii Sííi»andii'leik Formaður Félags umbótasinna er Ágúst Ómar Ágústsson. Við spurðum hann hvers vegna þessi sameining kæmi til nú. - Samstarf okkar við vinstri menn hefur verið með ágætum í þessum meirihluta sem við stöndum að nú. Við höfum verið samstiga í þeim verkefnum sem hann hefur tekist á hendur. Því finnst mér eðlilegt að fylkingarnar sem að honum standa sameini krafta sína og bjóði fram saman á nýjum lista. Stefnuskrá þessa nýja félags verður mjög í anda þess málefnasamnings sem gerður var í vor. Hvernig verður fyrir „ópólitíska“ umbótasinna að starfa með þrœlpóli- tískum vinstri mönnum? Er sam- starfið ekki svik við þá sem vilja halda hagsmunum stúdenta utan pólitískra deilna? - Samstarfið í vetur hefur sýnt að það er hægt að halda pólitískum málum utan Stúdentaráðs. Nýja félagið mun ekki boða aðra pólitík en þá sem tengist hagsmunabarátt- unni. Félag vinstri manna mun sjálf- sagt fjalla áfram um sérstök áhuga- mál sín á sínum eigin fundum. Það sama getum við gert. Ef okkur grun- aði að málefni Mið-Ameríkunefnd- ar eða slík mál yrðu tekin til umræðu, mundum við ekki fara út í þetta samstarf. Ætlið þið að haga ykkur svipað og Stíganda-menn, þ.e. láta fulltrúa umbótasinna í Stúdentaráði verða fulltrúa nýsfélags? - Nei, við förum ekki í neinn Stíg- anda-leik. Þeir fulltrúar okkar sem sitja áfram í Stúdentaráði eru full- trúar Félags umbótasinna og verða það þar til þeir hætta. Við leggjum félagið ekki niður, heldur munum við m.a. nota það sem vettvang til að ræða og meta reynsluna af þessu nána samstarfi við vinstri menn. Við brennum engar brýr að baki okkar. Hvers vegna ekki alveg eins sam- einingu við Vöku? Eigið þið ekki jafnmikið sameiginlegt með þeim, t.d. hvað varðar stefnuna í hags- munamálum stúdenta? - Nei. Samstarf við Vöku hefur verið reynt ítrekað. Að nokkru leyti hefur það tekist vel, að öðru illa. Við höfum ekki getað fallist á baráttuað- ferðir þeirra, svo að breið samstaða hefur ekki náðst. Þegar Vaka hefur gert upp við þessar aðferðir sínar, eru þeir auðvitað velkomnir í hópinn. Lítið þið svo á að umbótasinnar séu nú komnir heim aftur? - Nei. Það eru allt aðrir tímar nú. Baráttustaðan er allt önnur, og félögin eru bæði breytt. Nýja félagið verður því ólíkt báðum félögunum sem að því standa. Þetta er tilraun til samstöðu á tíma þegar búast má við áföllum og árásum á kjör okkar. STÚDEbTABLAÐIÐ 9

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.