Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.02.1988, Blaðsíða 13

Stúdentablaðið - 01.02.1988, Blaðsíða 13
málum. Þeir voru að stofna háskóla í Tromsö, sem þá hefur verið bær á borð við Akureyri nú á dögum, en þar hefur fjölgað mikið síðustu árin. Einnig barst mér í hendur afar merkileg skýrsla til þingsins, en í henni voru meðal annars talin vand- kvæði á því að flytja ráðuneyti og stjórnarskrifstofur frá Osló. Hins vegar væri hægt að gera miklu meira af því að byggja upp skólakerfið víð- ar í Noregi heldur en að hnappa því saman í Osló og öðrum stórbæjum. Málið lagt iyrir þing - Þessar vangaveltur enduðu með því að ég flutti þingmál um að efla Akureyri „sem miðstöð mennta og menningar utan höfuðborgarinnar“, eins og ég orðaði það þá og lengi síðar. Þessum málum var að mörgu leyti mjög vel tekið. Þar á meðal var gert ráð fyrir því, að háskólakennsla yrði á Akureyri áður en langt um liði. Þetta fór mjög í taugarnar á mörgum, sem töldu þetta eins og hverja aðra draumóra. M. a. var hæðst mjög að þessari hugmynd í blaðagrein, og hafði það nokkuð áhrif. En auðvitað var ég ekki fyrsti maður til þess að láta sér detta þetta í hug. Þórarinn Björnsson, skóla- meistari, hafði vakið máls á því, að að þessu gæti komið og einnig Davíð Stefánsson, skáld, sem gat þess í ræðu 1962, að mönnum mætti ekki bregða, þótt Akureyri hefði sinn háskóla á 200 ára afmæli sínu. Tillaga mín á þingi um skólamálin og eflingu Akureyrar sem skólabæj- ar, eflingu menningarstarfsemi á Akureyri og að stefnt skyldi að því að koma þar upp háskóla var loksins samþykkt 1971 eða 1972. Skriður á málið - Svo vill til að ég varð mennta- málaráðherra 1980 og þá fer ég að velta þessum málum fyrir mér í fullri alvöru. Ég lét kanna þetta sem ráð- herra eftir að hafa rætt við ýmsa góða menn, þar á meðal þáverandi rektor Háskóla íslands, Guðmund Magnússon, sem var mér alveg sér- staklega velviljaður í þessu máli. Nefnd, en í henni voru Birgir Thor- lacius ráðuneytisstjóri, Guðmundur Magnússon háskólarektor og Tryggvi Gíslason skólameistari á Akureyri, vann að þessu verki í ÞEMA: AKUREYRI mmm' næstum eitt og hálft ár. Hún vildi tengja þetta upphaf háskólastarfs á Akureyri við Háskóla íslands, sem mér fannst á þeim tíma mjög eðli- legt, eins og flestum þá. Síðan var þessu haldið áfram og það komu fleiri menn inn í þetta. Þetta varorð- ið áhugamál Fjórðungssambands Norðurlands og Akureyrarbæjar, þannig að farið var að reka á eftir því. Ragnhildui* meiuita- málaráðherra - Að því kom að þáverandi menntamálaráðherra Ragnhildur Helgadóttir, setti nýja menn inn í þetta og kom þessum málum að meðal þróunarverkefna. Nú gerðist lítið um tíma, enda ekki óeðlilegt að hún skoðaði þetta mál nokkuð. Sverrir nieiinta- málarádherra - Fjórðungssamband Norðurlands stóð fyrirfundi í júní 1985. Þarvoru fluttar margar og merkar ræður um háskólamálið. Svo merkilega vildi til að Sverrir Hermannsson, þá iðnað- arráðherra, var staddur á Akureyri við opnun sýningar eða eitthvað í þeim dúr. í framhaldi af fundinum um kvöldið grípur fréttamaður Sverri og spyr hann um það hvernig honum lítist á háskóla á Akureyri. „Alveg prýðilega,“ sagði Sverrir. „Mér finnst það bara alveg sjálfsagt mál, ég stend algerlega með ykkur í því.“ En svo gerist það um haustið, að hann er allt í einu gerður að mennta- málaráðherra og þeir voru fljótir að grípa það, vinir mínir á Degi, og hringdu í Sverri og spurðu hvort hann ætlaði ekki að beita sér fyrir háskóla á Akureyri og hann svaraði stundarhátt, að hann gerði það, vegna þess að hann var búinn að segja það áður. Og síðan vann Sverrir myndarlega að þessu máli. - Ú.A. Óskum Norðlendingum til hamingju með nýja háskólann! Amaró hfHafnarstræti 99—101, Akureyri Arkitektastofan, Ráðhústorgi 1, Akureyri Bílasalan hf., Skála v/Laufásgötu, Akureyri Kbóhend/f 6 0 K H A L O OO EHDURSKOÐUN Tryggvabraut 1, Akureyri Rammagerðin, Langholti 13, Akureyri Sana, Norðurgötu 57, Akureyri Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen hf., Glerárgötu 2, Akureyri ísten hf., Glerárgötu 30, Akureyri Slippstöðin hf., Akureyri Iðanaðarbanki íslands, Geislagötu 14, Akureyri Bílaleigan Örn, gegnt flugvelli, Akureyri Sparisjóður Hríseyjar, Hrísey Hótel Reynihlíð, Hrísey Útgerðarfélag N-Þingeyinga, Eyrarvegi 2, Þórshöfn Félag verslunar- og skrifstofufólks, Skipagötu 14, Akureyri Bókaverslun Snæbjarnar, Reykjavík. STÚDEHTABLAÐIÐ 13

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.