Stúdentablaðið - 01.02.1988, Blaðsíða 16
ÞEMA: AKUREYRI
Við viljiun hagnýtan
og íiotaclrj lígan háskóla
segir Halldór Blöndal, alþingismaður
Halldór Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins fyrir Norður-
landskjördæmi eystra hefur verið mikill stuðningsmaður mennta-
mála á Akureyri. Hann hefur einkum sótt röksemdir sínar í þarfir
norðlensks atvinnulífs fyrir menntastofnun á borð við háskóla. Við
gefum honum orðið.
Hagnýt rckstrar-
frædimenntun
- Þegar við vorum að undirbúa
stofnun Háskólans, þá vakti það fyr-
ir okkur fyrst og fremst, að sú
menntun sem þar yrði látin í té, yrði
hagnýt og kæmi sér vel fyrir atvinnu-
lífið hér fyrir norðan og mannlífið á
staðnum. Af þeim sökum festum við
fljótt augu á viðskiptafræði, rekstrar-
fræði eða einhverju námi því tengdu
og í samráði við Bjarna Kristjáns-
son, rektor Tækniskóla íslands, var
ákveðið að setja hér á fót iðnrekstr-
arfræði, sem nú er verið að þróa
áfram þannig, að þeir sem leggja
það nám fyrir sig fái mjög hagnýtt
nám, sem á að vera gagnlegt fyrir þá
sem standa fyrir rekstri, ekki síst
einkafyrirtækja.
Hagnýt kjúkmnar-
fræðimenntun
- í öðru iagi ákváðum við, mest
fyrir forgöngu Gauta Arnþórssonar,
yfirlæknis, að hér yrði sett á fót
námsbraut í hjúkrunarfræðum. Var
rökstuðningur sá, að mjög væri tví-
sýnt um að okkur tækist að manna
spítalana hér sem skyldi af hjúkrun-
arfræðingum. Við vissum, að hér
fyrir norðan voru ýmsir einstakling-
ar, sem ekki treystu sér til að fara
suður, en voru reiðubúnir og langaði
að stunda þetta nám.
Ég fullyrði að þessi tilraun hafi
tekist mjög vel. Margréti Frímanns-
dóttur hefur tekist að byggja braut-
ina upp með nokkuð öðrum hætti en
fyrir sunnan, í samráði þó við hjúkr-
unarfræðina þar, þannig að ég full-
yrði að hjúkrunrbrautin hér hafi gert
sitt gagn og eigi eftir að láta gott af
sér leiða.
Sjávarutvegsfræði
- í þriðja lagi hefur verið ákveðið
að háskólinn hér fyrir norðan ein-
beiti sér að sjávarútvegsfræðum og
hefur dr. Pétur Bjarnason verið
skipaður formaður nefndar til að
undirbúa nám í sjávarútvegsfræð-
um. Að sjálfsögðu mun námið snúa
bæði að útgerð, fiskvinnslu og
fiskeldi og öðru sem tengist þessarri
atvinnugrein. Ég þori ekki að full-
yrða á þessarri stundu hvort mögu-
legt reynist að hefja kennslu í haust
eða haustið 1989. En þetta mun
verða mikil lyftistöng fyrir byggð-
ina. Ég hygg að ég fari rétt með það,
að útgerð við Eyjafjörð og á þessu
svæði hefur vaxið svo mikið á síðast-
liðnum árum, að sennilega er þetta
kjördæmi hæst í þorskútflutningi.
Háskóli atvinuulífs
og byggðarlaga
- Ég er sannfærður um að það er
nauðsynlegt að auka menntunar-
möguleika fólks úti á landsbyggð-
inni, ef við ætlum okkur á annað
borð að halda uppi byggðastefnu,
sem ekki verður ómagi á ríkinu. Það
er sú hugsun sem liggur til grundvall-
ar Háskólanum á Akureyri. Starf-
semi hans mun því fyrst og fremst
beinast að þeim þáttum sem koma
að mestu gagni, bæði fyrir atvinnu-
lífið og með hjúkrunarfræðinni fyrir
byggðarlögin sjálf. Við sjúkrahúsið
á Akureyri eru nú starfandi sér-
fræðingar í 37 eða 38 undirgreinuni
læknisfræðinnar. Það er sjúkrahús-
inu mikill styrkur að hjúkrunar-
brautin skuli nú vera starfrækt.
- Ú.A.
16 STÚDEMTABLAÐIÐ