Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.02.1988, Blaðsíða 40

Stúdentablaðið - 01.02.1988, Blaðsíða 40
FRÉTTIR 2gZ'-g-SZÍ r. :' '^í ;§í ^.r) * ' i: Ur l Átak Byggingarsjóðs Byggingarsjóður stúd- enta er enn í fullum gangi. Við höfðum samband við Helga Lárusson, fjármála- stjóra Félagsstofnunar stúdenta og ritara Bygg- ingarsjóðsins. Hann skýrði svo frá: Fundur 4. febrúar - Átak Byggingarsjóðs stúdenta hófst 4. febrúar með fundi sem rektor Háskólans hélt með for- svarsmönnum 100 stærstu fyrirtækja og sveitar- stjórna og fjölmiðlum. Sölumenn taka að sér starfið - Upphaflega var í átaki Byggingarsjóðs rniðað við að stúdentar hefðu sam- band við 1.100 fyrirtæki og sæju að mestu um fram- gang mála. Ýmsir mein- bugir voru þó á því, þar sem virkja þufti mikinn fjölda námsmanna við sjálfa söfnunina, auk þess sem skipulag þurfti að vera verulegt og óvíst var á hvers vegum það væri. Fyrir tilviljun höfðu tveir sölumenn samband við skrifstofu Félagsstofn- unar og buðust til að taka að sér alla undirbúnings- vinnu við átakið, sjálfa söfnunina og rukkun söfn- unarinnar. Pessi hugmynd féll strax í mjög góðan jarðveg. Var hún kynnt á fundi Byggingarsjóðs 19. janúar og var samþykkt að ganga að henni. Tveir flokkar fyrirtækja - Segja má að skipta megi þeim fyrirtækjum sem leita á til í 2 flokka. Flokkur A eru stærri fyrir- tæki sem geta gefið 100- 200 þúsund krónur. Flokkur B eru meðalfyrir- tæki sem ætla má að gefi 10-30 þúsund krónur. Mikilvægt er að þessir hópar séu meðhöndlaðir á sinn hvorn veginn, þ.e. að meiri vinna verði lögð í hóp A, en hóp B. SHÍ og FS munu taka að sér 50 stærstu fyrirtækin og 50 stærstu sveitarstjórnir. Sölumenn taka hins vegar að sér 1050 önnur fyrirtæki og sveitarstjórnir. Sokn cr besta vöniiu! Nýjar tillögur frá Vöku að breyttum úthlutunarreglum Lánasjóðsins Vaka, félag lýðræðis- sinnaðra stúdenta, hefur sent frá sér ítarlegar tillögur um breytingar á úthlutunarreglum Lánasjóðs námsmanna. Tillögur þessar hafa verið teknar til umræðu í Hagsmunanefnd Stúdentaráðs og í stjórn þess, ásamt öðrum tillögum. Frumkvæði Vökumanna og sú vinna sem þeir hafa lagt í málið er lofsverð, einkum þegar tillit er tekið til þess að þeir eiga ekki aðild að meirihlutasamstarfi innan Stúdentaráðs. Helstu nýmæli I inngangi að tillögum sínum segja Vökumenn: „Helstu nýmælin í þessum tillögum varða framfærsluna. Einnig má geta breyttra reglna um það hvað teljist til tekna. Annað það helsta má nefna: breyttar reglur varðandi tekjur maka, rýmkun á reglum um námsframvindu, breyting á talningu aðstoðarára, tilhliðrun til svigrúms í tekjufrádrætti, lánveit- ingu vegna greiðslu innritunargjalda í H.í. rýmkun á lánum til bókakaupa og námsferða og aukning ferðastyrkja úr einu fargjaldi í tvö. Síðast en ekki síst má nefna þá tillögu, að hafið verði að lána til náms erlendis, burt séð frá því, hvort sambærilegt nám verði stundað hér álandi.“ Og í lok inngangsins: „Áríðandi er að námsmenn komi fram með fastmótaðar tillögur, áður en fulltrúar ríkisvaldsins hafa gengið frá sínum hugmyndum, eða eins og skákmennirnir segja: „Sókn er besta vörnin“. iVýír Lánasjóðsfulltniar Nýr fulltrúi Stúdenta- ráðs hefur verið skipaður í stjórn Lánasjóðs islenskra námsmanna. Sá heitir Ólafur Darri Andrason. Varamaður hans var kjörinn Guðmundur Auðunsson, sem þegar hefur tekið sæti í framfærslunefnd Lánasjóðsstjórnar. Ólafur Darri er viðskiptanemi og hefur átt sæti í Stúdentráði frá 1986, kosinn af lista Félags vinstri manna. Hann hefur verið varafulltrúi um hríð, en tekur nú sæti aðalmanns í fyrsta sinn. Guðmundur er félagfræðinemi. Hann átti Ólafur Darri. sæti í Stúdentaráði fyrir hönd Félags vinstri ntanna 1985-87, og var kosinn fulltrúi í stjórn Lánasjóðs án þess að komast þar að, þar sem fráfarandi fulltrúi Guðmundur. neitaði að víkja, „af stjórnmálaástæðum" (vegna óska Sverris Hermannsonar, þáverandi menntamála- ráðherra). 40 STÚDEMTABLAÐIÐ

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.