Stúdentablaðið - 01.02.1988, Blaðsíða 42
Silkiáferð
með
Kópal
Flos
Kópal Flos innimálningin hefur gljástig
30, sem gefur silkiáferð. Kópal Flos er
sterk málning sem hæfir þar sem mikið
mæðir á. Viljir þú hærri gljáa á veggi sem
meira mæðir á, skaltu velja Kópal Geisla.
málningh
^VEOGi, HURÐIR, HÚSOÖGN, GLUGQ. ,N
^"NANLEGT Sll.KIMATT AKRÝLLAKK, 81
6LJA ST/q
30
Bóksala stúdenta
mai^faldast
„Bókritið verður ekki í
askana látið“ sögðu for-
feður okkar. Upp á síð-
kastið höfum við verið að
reyna að snúa út úr þess-
um málshætti og segja að
ójú, víst verði bókvitið í
askana látið. Pá höfum við
átt við að menntun og nám
skilaði bæði einstaklingi
og samfélagi einhverju í
askana, þ.e. einhverjum
fjárhagslegum ábata. En
nú gefst okkur í Háskóla
Islands tækifæri til að snúa
enn frekar út úr þessum
gamla málshætti. Bóksala
stúdenta er flutt í það
húsnæði í Félagsheimilinu
þar sem áður var troðið í
mataraska stúdenta,
húsnæði Matsölu stúd-
enta, sem eitt sinn var og
hétogernúekki lengurtil.
Með tilkomu nýs hús-
næðis fær Bóksalan nú
loks það olnbogarýni sem
hana hefur sérlega vantað
undanfarin ár. Pað er mik-
ill munur hvað allt er þar
nú miklu aðgengilegra en
áður og fjölbreytnin i
bókavali hefur aukist
mjög. Hluti skýringarinn-
ar á því má leita í því að
áður þurfti að geyma
bókalagerinn að meira eða
minna leyti í kjallara bók-
sölunnar, en nú kemst allt
í hillur í búðinni.
Fleiri vörur fá nú rými
en áður. Mörgum hefur
þótt ritfanga- og tækjaúr-
val bóksölunnar síðustu
árin heldur rýrt og raunar
allsendis ófullnægjandi. Á
þessu verður nú mikil
breyting til batnaðar.
Fleiri vörutegundir
munu eflaust fara að sjást í
hillum Bóksölunnar næstu
vikur og mánuð. Þannig er
áformað að auka mjög
úrval af tölvuvörum, tíma-
ritum, skýrslum, gjafa-
bókum o. s. frv. o. s. frv.
Stúdentablaðið hvetur
stúdenta til að sækja Bók-
sölu sína heim. Vörur
hennar eru yfirleitt ódýr-
ari en annars staðar. Og
nú er ekki lengur ástæða til
að vorkenna henna vegna
plássleysis og hlífa henni
við ábendingum um vörur
sem hún þyrfti að eiga.
Pvert á móti, - starfsfólki
er einmitt mjög í mun á
þessum tímamótum að fá
ábendingar og tilmæli frá
stúdentum, kennurum og
öðrum starfsmönnum
Háskóla Islands.
42 STÚDEbTABLAÐIÐ