Stúdentablaðið - 01.02.1988, Blaðsíða 11
Heimsókn í Háskólann á Akureyri
Tili*mm sem tekst
í septembertölublaði Stúdentablaðsins var frá því skýrt að Háskól-
inn á Akureyri hefði verið settur í fyrsta sinn og kennsla hafin. Okkur
þótti við hæfi nú - 4 mánuðum síðar - að sækja skólann heim og kanna
ástand mála.
Frá því er skemmst að segja að enn er þar flest á undirbúningsstigi.
Húsnæði það sem skólanum var ætlað er ennþá í notkun á vegum
annars aðila, Verkmenntaskólans, sem fær ekki nægar fjárveitingar
til að Ijúka nýbyggingu sinni. Skrifstofum var þó holað niður í téðu
húsi og einhver lítill hluti kennslunnar fer fram þar. Að öðru leyti er
kennt í Iþróttahöllinni á Akureyri og á Fjórðungssjúkrahúsinu.
Kennarar hafa enga vinnuaðstöðu og nemendur litla til félagsstarfs
og námsvinnu. Brautarstjórar hafa eitt sameiginlegt skrifstofuher-
bergi - lítið þó -, og rektor kemur sínum eigin bókakosti ekki fyrir í
skrifstofu sinni. Reyndar var rektor skólans Haraldur Bessason að
bera inn bækur, daginn sem Stúdentablaðið bar að garði.
Einhverja hefði grunað að slíkar aðstæður drægju úr mönnum
mátt, fremur en hvettu. Sú virðist þó ekki raunin. Þeir sem tíðinda-
maður Stúdentablaðsins hitti að máli voru óvenju hressir og bjartsýn-
ir, jafnt kennarar sem nemendur.
Iðnrekstrarfræði
Námið við Háskólann á Akureyri
skiptist í 2 brautir: iðnrekstrarbraut
og hjúkrunarbraut. Á Iðnrekstrarb-
raut er kennd iðnrekstrarfræði, sam-
bærileg þeirri sem kennd er við
Tækniskóla íslands í Reykjavík.
Nemendur brautarinnar eru um 20.
Fyrstu próf voru þreytt nú í janúar
og stóðu reyndar yfir, þegar Stúd-
entablaðið bar að garði. Námsskrá
T.í. er að mestu fylgt nú í upphafi
námsins, en síðar er ætlunin að gera
ýmis frávik, að sögn Stefáns Jóns-
sonar, brautarstjóra.
Hjúkrunarfræði
Hjúkrunarfræðinámið styðst við
hjúkrunarfræðina í H.Í., en þó eru
ýmis veigamikil frávik gerð frá
skipulagi námsins, að því er Margrét
Tómasdóttir, brautarstjóri tjáði
okkur. Námskeið eru færð milli mis-
sera og ára, og til að geta nýtt
aðfenginn starfskraft til kennslu eru
fáar greinar teknar fyrir í einu, jafn-
vel bara ein, og próf tekið strax að
yfirferð lokinni. Með þessu móti
tókst að ljúka öllum prófum braut-
arinnar fyrir jól, auk þess sem hæfir
kennarar hafa fengist í ríkara mæli
en annars hefði verið hægt. Flestir
kennarar brautarinnar eru þó
búsettir á Akureyri og munar þar
mest um læknana.
Kennsla á hjúkrunarbraut fer
fram í íþróttahöllinni og á sjúkra-
húsinu, en þar hefur verið innréttuð
kennslustofa og lesstofa fyrir nem-
endurnar. Margrét sagði þetta ágæta
framlag sjúkrahússins hefði bjargað
miklu fyrir sína braut.
Hugmyndin er sú að auk beinnar
háskólakennslu og rannsókna verði
á vegum Háskólans á Akureyri fyrir-
lestrahald um ýmis málefni
menningar og vísinda. Þessi starf-
semi er þegar hafin, og má m.a.
nefna fyrirlestraröð Gísla Jónsson-
ar, menntaskólakennara um
íslenskar bókmenntir og erindi
Þorbjörns Broddasonar um uppeld-
isfræði; hvort tveggja í haust. Að
sögn Haraldar Bessasonar, rektors,
er ætlunin að halda þessu áfram, auk
þess sem vonast er til að nýjar
háskólagreinar bætist við á ári
hverju næstu árin.
Vcrk iyrir höndum
Það er ljóst að mikið verk er fyrir
höndum í uppbyggingu skólans.
Stofnun hans er enn aðeins á til-
raunastigi og tæplega það, ef tekið
er mið af aðstöðunni. Hins vegar er
engin ástæða til annars en að ætla að
tilraunin takist.
Guðmundur Sœmundsson
STÚDENTABLAÐIÐ 1 1