Stúdentablaðið - 01.02.1988, Side 22
KYNNING: ORATOR
Lögfræðiaöstoöin aö störfum.
Lögfræðiaðstoð Orators
Lögfræðiaðstoðin hefur nú verið
starfrækt á áttunda ár en einungis
yfir vetrarmánuðina (fólk er hvatt til
að gæta ýtrustu varúðar á sumrin og
lenda frekar í vandræðumá vet-
urna).
Lögfræðiaðstoðin er eingöngu
veitt í formi símaráðgjafar. Mark-
mið þessarar þjónustu er að
almenningur eigi þess kost að geta á
skjótan og ódýran hátt fengið upp-
lýsingar um réttarstöðu sína, ef
eitthvað kemur upp á, s.s. andlát,
skilnaður, meint svik í samningum
o.s.frv. Fólk fær einnig upplýsingar
um hvert það getur snúið sér til að fá
úrlausn mála sinna og ráðleggingar
um að leita til lögmanna ef þess er
talin þörf, en laganemar hafa ekki
leyfi til málflutnings og geta því ekki
fylgt málum eftir í dómskerfinu.
Aðstoðin fer þannig fram að á
hverju fimmtudagskvöldi kl. 19.30
til kl. 22.00 sitja nokkrir rétt óút-
skrifaðir laganemar við símann í
kjallaraherbergi í ónefndu húsi
Lagadeildar, umkringdir stöflum af
lagaskræðum, og reyna að fremsta
megni að leysa úr þeim lögfræðilegu
vandamálum sem síminn færir þeim.
Vandamálin sem berast eru af marg-
víslegasta tagi og spanna flest svið
lögfræðinnar. Reynir því oft mjög á
kunnáttu laganema á námsefninu og
síðan á uppflettihæfileika er utan-
bókarlærdómurinn þrýtur. Ef
hvorki utanaðlært bókvitið né upp-
flettivitið dugir til þá hafa laganemar
í bakhöndinni nokkra fórnfúsa lög-
menn sem þeir geta leitað til. Flest-
um spurningum er því svarað. Laga-
nemar á síðari hluta námsins hafa
sótt mjög í að starfa í Lögfræðiað-
stoðinni og telja sig enda fá þar
ágætis æfingu og forsmekkinn af
þeim úrlausnarefnum sem bíða
þeirra í starfi eftir útskrift. Virðast
mál sem varða fjölskylduna eins og
sifja- og erfðaréttur vera algengust.
Mörg mál er hægt að afgreiða
strax en ef þau eru flókin er tekinn
nokkur frestur til að svara þeim, og
þá er hringt í fólk síðar. Aðsóknin
hefur verið mjög mikil og sýnir að
full þörf er á þjónustu sem þessari.
Að endingu eru stúdentar hvattir
til að notfæra sér þessa ókeypis
aðstoð á tímum ört rýrnandi kaup-
máttar námslána og minnir á að
símanúmerið er 1 10 12.
Pórey Aðalsteinsdóttir
frkv.stj. (starfsmaður)
lögfrœðiaðstoðar
StúcCetita-
Kjallaranum
er tilvaliö að tylla sérð... fá sér kaffibolla je... kíkja
r
I
Opiö kl. 11-14
og til útleigu á
kvöldin og um
helgar
sími 14-789
blöðin|H... narta í samloku, eða hamborgarag^ ...
hlusta á útvarpiðJ^... smakka á súpunni og smárétt-
unum||... taka eina skákH... kanna kökuúrvalið^i...
spjalla við félagana?B0... fá sér meira kaffi^...
slappa af^...
FS-augýdng 001-©i
22 STÚDEnTABLAÐIÐ