Stúdentablaðið - 01.02.1988, Qupperneq 36
TRÚMÁL B
WARNING!
-^This Man Is Dangerous
UTLITS-
EINKENNI:
-VAFASAMT
AUGNATILLIT
-GLOTTIR
HROAR HALLDORSSON
r
^Oróaseggur
-^Einhlioa x4ró&ur
^Nióurbrjótandi Frásagnir,
(ekki við hæfi barna)
'THsettulegur Vi5kvsemum Sálum
^Morbmaour
KEMURTIL ÍSLANDS Ver'
INNRITUN OG UPPLYSINGAR
Kristilegt
stúdentamót
Dagana 12.-14. febrúar verð-
ur kristilegt helgarmót fyrir stúd-
enta í Ölveri undir Hafnarfjalli.
Slík mót eru haldin tvisvar á
ári á vegum Kristilegs stúdenda-
félags og eru mörgum kærkomið
tækifæri til að slaka á eftir prófin
og endurnærast á líkama og sál.
Gestur mótsins verður Roar
Halldorsen, framkv.stj. „Oper-
ation Mobilisation“ í Noregi, en
það er alþjóðahreyfing ungs
fólks, sem þj álfar og fær til starfa
kristið fólk frá mörgum löndum
og trúarsamfélögum.
Á mótinu mun Roar einkum
fjalla um lifandi boðun kristinn-
ar trúar í nútímanum og um það
hvernig kristnir menn geta vaxið
í trúnni á Drottin.
Hugsjón „OM“ -hreyfingar-
innar er að efla löngun fólks til
að fylgja Jesú og boða trú án til-
lits til landamæra. Roar hefur
mikinn áhuga á smíðum og í
þetta sinn mun hann fjalla um
fræga smíði gegnum tíðina. Mál
hans verður túlkað fyrir þau sem
þess óska.
Á kristilegum grundvelli er
alltaf margt til gamans gert og
góðar samfélagsstundir og allar
ytri aðstæður í Ölveri ættu að
gera sitt til þess að öllum líði vel.
Mótið er öllum opið.
Skrifstofa KSF, Freyjugötu
27, s. 28710 veitir allar nánari
upplýsingar.
Innritun er á opnunartíma
skrifstofunnar kl. 14-16 til mið-
vikudags 10. febrúar. (Einnig er
hægt að hringja á öðrum
tímum). Björg Þórhallsdóttir, s.
23786 tekur einnig á móti innrit-
unum.
Verð er ráðgert á bilinu 2.300-
2.500 kr. í þvi er innifalið matur,
gisting og ferðir.
Kemur þú... .
KOSN*
INGAR!
Þriðjudaginn 15. mars n.k. fara fram kosningar til Studentaráðs Háskóla
íslands og kosning tveggja fulltrúa stúdenta til Háskólaráðs.
Stúdentaráö er skipað 30 fulltrúum stúdenta. Til Stúdentaráðs eru nú kosnir 13 full-
trúar og jafn margir til vara. Til Háskólaráðs eru kosnir tveir fulltrúar, sem jafnframt
eiga sæti í Stúdentaráði, sbr. 7. gr. laga um Stúdentaráð. Kjörtímabil ertvö ár.
Kosningin er leynileg, hlutbundin listakosning, sbr. 6. gr. og verðurkjörfundurfrákl.
9.00 til kl. 18.00 þriðjudaginn 15. mars n.k. Kjörstaðir verða auglýstir nánar síðar.
Kosningarétt og kjörgengi til Stúdenta- og Háskólaráðs hafa allir sem eru
skráðir til náms í Háskóla íslands skv. reglugerð Háskólans sbr. 15. gr. laga um
Stúdentaráð.
Utankjörstaðaatkvæðagreiðsla fer fram þriðjudag 8. mars og föstudaginn 11. mars
kl. 12.00 til 15.00 báða dagana og fér kosningin fram á skrifstofu Stúdentaráðs.
Frestur til að skila inn framboðum til kjörstjórnar rennur út föstudaginn 4. mars sbr.
11. gr. laga um Stúdentaráð.
Kjörskrá liggur frammi á skrifstofu SHÍ 1. mars og 11. mars. Kærufrestur vegna
hennar rennur út kl. 12.00 14. mars.
Kjörstjórn.
36 STÚDEMTABLAÐIÐ