Stúdentablaðið - 01.02.1988, Qupperneq 45
FRÉTTIR
hz:
Samstaða
fyrir mestuS
p
— scgir Runólfur Agústsson,
nýrádinnfrkv.stj.
Stiidcntaráds
Runólfur Agústsson hefur tekið
við framkvæmdastjórastarfi hjá
Stúdentaráði. Hann er 24 ára laga-
nemi, útskrifaður úr MH vorið 1984.
Hann starfaði sem leikhúsritari hjá
Leikfélagi Reykjavíkur í 2 ár, áður
en hann hóf nám í Háskólanum.
Runólfur er í sambúð og á eitt barn.
Hann situr í Stúdentaráði og var
efstur á lista vinstri manna sl. vor.
Við tókum Runólf tali og báðum
hann að lýsa helstu áhugamálum
sínum í nýju starfi.
Vcrkalyðsíclag
stúdeuta
- Við þurfum að líta á starf okkar
i Stúdentaráði sem starf í verkalýðs-
félagi. Stúdentaráð er okkar verka-
lýðsfélag. Það er tæki sem við höfum
í hagsmunabaráttu okkar og verðum
að nýta sem slíkt.
Láuamál
- Helstu baráttumálin í dag eru
þrenn. Fyrst eru það framfærslumál-
in. Þau eru í biðstöðu eins og er.
Næst má nefna lögbrot Lána-
sjóðsins gagnvart einstæðum for-
eldrum. Það mál er í gangi sem
stendur og er verið að vinna að því.
Dagvistarmál
- Þriðja atriðið er dagvistarmál
sem eru mjög brýn. Það er ekki
fyrirsjáanlegt að Félagsstofnun
stúdenta taki nýtt dagheimili í
notkun, næstu tvö-þrjú árin. Hvern-
ig er hægt að brúa þetta bil? Þarna
held ég að mikilvægt sé að þeir stúd-
entar sem eru foreldrar sameinist í
foreldrafélagi og knýi á um úrbætur.
Þeir gætu jafnvel farið út í eigin
rekstur, þar sem þeir mundu vinna
sjálfir og reyna þannig að lækka
kostnað í dagvistun.
Söluaöilar
Einar J. Skúlason hf„ Grensásvegi 10, Reykjavík, S: 68 69 33
Rafreiknir hf„ Ármúla 40, Reykjavlk, S: 68 10 11
Skrifstofuvélar hf„ Hverfisgötu 33, Reykjavík, S:20560
Atlantis, Skúlagötu 51, Reykjavík, S: 62 11 63
Heildi — Níels Karlsson, Steinbergi, Akureyri, S: 96-25527
Þeim fjölgar sem nota
Bókarann
Þaö eru ekki mörg bókhaldsforrit á markaönum sem henta
jafn vel byrjendurm sem fagmönnum. Bókarinn hefur algjöra
sérstööu aö þessu leyti. Kerfi sem allir geta notaö.
STÚDEMTABLAÐIÐ 45