Fálkinn - 16.02.1929, Blaðsíða 1
16 áir 4ö aiira.
EINVALDSSTJÓRN í MONACO
Vm sama leyli sem Alexander konungur gerðist einvaldur í Jugoslaviu lýsti Lúðvík fursti í Monaco yfir því, að hann tæki
öll völd furstadæmisins í sínar hendur og setti framkvæmdaráðið — sem skipað er honum til meðstjórnar éins og eins-
konar ráðuneyti — af. Ilafa lengi verið erjur milli furstans og framkvæmdaráðsins, og vill furstinn nú sýna hvor megi sín
meira. — / Monaco búa um 25 þúsund manns og er ríkið aðeins ÍV2 ferkílómeter að stærð. Höfuðborgin er samnefnd rík-
inu og búa þar aðeins 2h00 manns, er þar aðsetur furstans og sjest höllin ofarlega á miðri myndinni hjer að ofan. Ligg-
ur höfuborgin á 60 metra háum kletti og er sjór á þrjá vegu. Stærstu bæirnir í furstadæminu eru La Condamine með 11
þúsund og Monte Carlo — aðsetur spilavítisins —- með 10 þúsund ibúum. Nálega allar tekjur ríkisins eru frá spilabank-
anum og furstinn lifir eingöngu á afrakstri hans. Hefir fjelagið sem á hann sjerleyfi til rekstursins til ársins 1947. Monaco
hefir eigin myntsláttu og frímerki en er í tollsambandi við Frakkland. Landsbúar eru allflestir ítalir eða Fralckar, nálega
jafn margt af hvorum.