Fálkinn


Fálkinn - 04.01.1930, Blaðsíða 8

Fálkinn - 04.01.1930, Blaðsíða 8
8 F Á L K I N N Iijer í blaðinu hcifa úður birst nokkrar myndir, frá Rínarlöndunum, teknar í sambandi við f>að, að setuliðsher Be.lga, Frakka og Englendinga hefir verið að kveðja þar, eftir að hafa verið þar til eftirlits síðan vopnahlje var gert með stríðsþjóðunum, 11 nóvem- ber 1918. Iljer úti á íslandi finstmönn- um ef lil vill, að þetta sjeu ekki nein stórtíðindi. En þá ber að setja sig í spor þeirra, sem hjer e.iga hlut að rnáli: Þjóðverja. Friðarsamningarnir, sem gerðir voru við þá í Versailles að ófriðnum loktium, voru að ýmsu leyti þess efnis, að þeir báru á sjer merki hins forna orðtaks frá rómverskum stríðsveldistíma: Sigraðir menn verða að sætta sig við alt. Og í friðarsamn- ingnum var ákveðið, að Þjóðverjar, — því á þeim einum kom niður öll sú hefnd, sem ftjrirhuguð liafði verið miðveldunum í heild — urðu að gang- ast undir að hafa selutið í hinum her- numdu hjeruðum um ófyrirsjáanlegan tima. Þremur árum eftir ófriðarloktók við í Frakklandi stjórn, sem einsetti sjer að beita öllum refsiákvæðum, sem heimiluð voru með f riðarsamning- unum, og gerði hún það, og bætti við her þann, sem settur liafði verið á vesturjaðra Þýskalands. Horfði því itla við fyrir friðsamlegri endurkynn- ingu Þjóðverja við hina fornu fjendur, því vitanlega vakti það nýtt hatur þjóðarinnar, að mótherjar hennar kúguðu hana til að líða óvinaher í landinu, og það meira að segja her, sem Þjóðverjar sjálfir urðu að hafa allan kostnað af. En þegar hinn ný- tátni þjóðhöfðingi Þjóðverja, Gustav Stresemann tók við völdum breyttist skjótléga veður í lofli. Svo mikill mað- ur var hann, að þráitt fyrir erfiða að- stöðu gagnvart þjóð sinni, tókst lion- um að efna til nýrrar stefnu í viðskift- um Þjóðverja og höfunda Versal- samninganna. Og síðan hans orð náðu viðurkenningu hefir æ skipast betur og betur í friðarmálum Evrópu. Er nú svo komið, að Þjóðverjar hafa verið teknir í alþjóðabandalagið, sem fullgildur stórþjóðaaðili og fastriskip- un komið á skaðabótagreiðslur þeirra, og setulið bandamanna e'r sem óðasl að hverfa heim. Hjer á myndinni sjásl (að ofan) enskir liðsforingjar gera heiðursmerki fyrir þýska fánanum, er hann er dreginn að hún á Ehrenbreit- stein-kastala, eftir að franski fáninn, sem hafði verið á slönginni síðan 1918 var dreginn niður. Á neðri myndinni sjást ármót Rínar og Mosel, sá staður, sem talinn er hafa einna mesta hern- aðarþýðingu allra staða við Rín. Myndir hjer lil vinstri sýnir eitt af feg- ustu torgum veraldarinnar, Vendome- torgið í París. Eins og sjá má af mynd- inni hefir fögrum skrautbyggingum verið skipaður staður kringum torgið og fögur standmynd á súlu sett á það mitt, enda álti torgið að vera borgar- prýði og frjáls reitur fólki til þess að dvelja á sjer til tilbreytingar frá hinni ægilegu umferð í hinum þrengri göt- um borgarinnar. En bifreiðaumferðin í París hefir gerbreylt titgangi þessa torgs, þvi lögreglustjórnin hefir neyðst til þess, að nota það sem dvalarstað fyrir bifreiðar. Og má því nærri geta, að lítill friður muni vera þar.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.