Fálkinn - 07.02.1931, Qupperneq 8
8
P Á L K I N N
/ þorpinu Veltendorff viðBrúns-
vík hefir verið gerð kirkja úr
gamalli vindmyllu. Myllustein-
arnir eru altari í kirkjunni og
krossinn hefir verið settur á
myllutoppinn.
1 vetrarstormum er mjög brima-
samt víða við vesturströnd Eng-
lands; er þar víða útgrynni mikið
og fyrir opnu hafi. Myndin hjer að
ofan til vinstri er frá hinum fræga
baðstað Blackpool, sem liggur
skamt frá Fleetwood.
I Þýskalandi eru mestu viðsjártím-
ar. Atvinnuleysið er svo mikið að
þjóðinni liggur við að sligast undir
því og stjórnmálagikkir og flauta-
þyrlar nota jafnan neyðartímana tit
þess að ryðja öfgakenningum sínum
braut. Nýjasta dæmið er frá þýsku
kosningunum síðustu, þegar naz-
istarnir svonefndu unnu stórkost-
tegan sigur. Láta þeir nú ófriðlega
og þykjast ætla að taka völdin í sín-
ar hendur og koma á einræðis-
stjórn, ógilda friðarsamningana við
bandamenn og hætta að greiða
þeim skaðabætur. Stofna þeir fjelög
um land alt, æfa herlið og fara
kröfugöngur til þess að sýna al-
menningi, að þeir eigi eitthvað und-
ir sjer. lljer á myndinni sjest einn
bessara flokka í kröfugöngu í Lust-
garten í Berlín.
Billiard-golf heitir nýjasta inniíþróttin, sem farið er að iðka er-
lendis og er einskonar sambland af billiard og golf og reglurnar
löluverl flóknar. Með því að þessi leikur gerir ekki kröfur til
mikils húsnæðis er ekki ósennilegt, að hann geti náð mikilli
útbreiðslu.
Franco, spánski majórinn sem frægur hefir orðið fyrir flugaf-
rek sín, var bendlaður við síðustu uppreisnartilraunina á Spáni
og sá þann kost vænstan að flýja til Portúgat — í flugvjel. Hjer
sjest hann í útlegðinni (með derhúfu), umkringdur af blaða-
mönnum, sem eru að spyrja hann.