Fálkinn - 12.09.1931, Síða 3
F Á L K I N N
3
VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM.
Ritstjórar:
Vilh. Finsen og Skúli Skúlason.
Framkvæmdastj.: Svavar Hjaltested.
Aðalskrifstofa:
Bankastræti 3, Reykjavík. Sími 2210.
Opin virka daga kl. 10—12 og 1—7.
Skrifstofa í Osto:
Anton Schjöthsgade 14.
Blaðið kemur út hvern laugardag.
Áskriftarverð er kr. 1.70 á mánuði;
kr. 5.00 á ársfjórðungi og 20 kr. árg.
Erlendis 24 kr.
Allar áskriftir greiðist fyrirfram.
Auglýsingaverð: 20 aura millimeter
Herbertsprent, Bankastræti 3.
Skraddaraþankar.
íslenskir bændur höfðu rekið rán-
yrkju í þúsund ár, er þeim fór að
verða ijóst, að þeir kunnu ekki að
búa og að það yrði ekki til fram-
búðar, að taka jafnan móti afrakstri
jarðarinnar án þess að gefa henni
neitt í staðinn. Þeir höfðu rofið
hringrás náttúrulögmálsins og land-
inu hrörnaði. Skógarnir hurfu, völlur
bljes upp og varð að sandi en engið
megraðist. Og þúfurnar stóðu i tún-
unum; á sama stað og á lýðveldis-
öld. Orfhólkar og skotskir ljáir voru
lielstu búnaðarframfarirnar, haug-
kvörn var á stöku stað, en plógur og
herfi viltist inn í suma hreppa og
þó mestu „rarítet".
í þessu efni hefir orðið bylting, og
eiginlega ekki nema fáein ár síðan
hún hófst. Fyrir tilraunir þarfra
manna og stofnana liefir fengist
reynsla um, að það getur verið arð-
vænlegt að rækta hjer land með sán-
ingu, þannig að nýræktin fari að
horga sig þegar i stað, og þegar þessi
linútur var leystur brá svo við, að
eftir alda kyrstöðu fóru bændur áð
gerasi framfaramenn og trúa á land-
ið. Löggjafarvaldið hljóp undir bagg-
ann og með jarðræktarlögum og fleiri
skyldum lögum, var ljett undir og
ieiðir opnaðar lil ]iess að ráðast í
fyrirtæki, sem ella hefði orðið ó-
kleyf. Og nú teljast þeir bændur
„aflurúr“, sem ekkert vinna að
jarðabótum, ekki færa út túnin og
ekki bæta lnisin, ekki þurka mýr-
arnar.
Búskapur íslendinga stefnir ótví-
rætt í þá ált, að heyfengur fáist allur
eða mestallur á ræktuðu landi.
Fólksfæðin lil sveita hefir valdið
( því, að menn ýmist komast ekki
yfir, að slá ljelegt útengi eða þykir
það ekki borga sig. Þeir bændur eru
þegar til, sem alls ekki hera ljá í út-
engi, þeir bændur eru líka til, sem
varla hera annan Ijá í gras, en hinn
tenta ljá sláttuvjelarinnar.
Það þóttu framfarir er útgerðar-
menn tóku aflvjelina og nýtísku
veiðiáhöld í þjónustu sína, og þær
framfarir hafa hrint þjóðarhagnum
vel á leið, bæði til sjós og lands, því
að ekki verður því neitað, að frá
sjávarúveginum er komið mikið af
afli i þeirra hluta, sem gerðir eru nú
í sveitunum. Þ.ánnig styður hvað
annað og samhjálpin gerir krafta-
verk. Ein stjettin getur ekki án ann-
arar verið, þvi að stofninn er sá sami
og verður sá sami, hvernig sem velt-
ist, og hversu lengi sem greinarnar
æpa hver að annari: skríll, mosa-
skeggjar, eyðslustjett, bændalyddur!
En stofninn gildnar ekki á meðan.
Erlch Maria Remargue
off söflur hans.
Þess gerast dæmi að nýir rithöf-
undar sigra með fyrstu bókinni er
þeir gefa út. Sumir þjóð sína en fá-
ir allan lesandi heim. Leið rithöf-
unda til frægðar og viðurkenningar,
er torfarin, eins og allra annara
listamanna.
Sá sem lnestan sigurinn hefir
unnið á ritvellinum á þessari öld er
tvímælalaust skáldið E. M. Remarqe,
höfundur bókanna „Tíðindalaust á
vesturvígstöðvunum“ og „Vjer hjeld-
um heim“, sem báðar hafa verið
gefnar út á íslensku, sú siðari nú í
sumar.
Remarque ólst upp hjá foreldrum
sinum i Westfalen; hann var draum-
lyridur og lineigður fyrir listir, ósk-
aði helst að verða tónskáld eða mál-
ari. Seytján ára gamal vaknaði hann
af æskudraumum sín'um við járn-
harðan veruleikann; hann var send-
ur á vigvöllinn, tit i ægilegustu
skelfingar ógna og dauða. Hann
kom þaðan aftur ósærður á líkama,
en hugsjónaborgir hans voru fallnar
í rústir, og ætljörðin var ekki þess
um komin, að launa honum og fje-
lögum hans dygga þjónustu. Hann
flæktist á milli bæja og hafði ofan
af fyrir sjer með því að selja bænda-
konum álnavöru, seinna seldi hann
legsteina, varð undirtylla á skrif-
stofu, um eitt skeið organisti — á
fábjánahæli! Og loks barnakennari.
Hann giftist og fjekk skömmu síðar
slöðu á bílasmiðju, við að semja aug-
lýsingar og skrifa pjesa um bifreiða-
hringi og þvílíkt. Þá varð hann
blaðamaður við iþróttablað og vann
haki brotnu; um það leyti samdi
hann líka ljelega lögreglusögu, sem
aldrei kom á prent. Þá fór hann að
skrifa niður endurminningar og dag-
hókarbrot frá striðsárunum og úr
þeim varð bókin „Tíðindalaust á
vesturvígstöðvunum“ — sem liann
skrifaði á sex vikum.
Kona hans og kunningjar gerðu
sjer miklar vonir um bókina, en
sjálfur hafði liann litla trú á henni.
Þau fengu hann eftir mikið stapp
til þess að bjóða liana Scherl-forlag-
inu mikla i Berlin, en hann fjekk
handritið þaðan aftur, með þeim um-
mælum, að svona hækur vildi fólk
ekki lesa. Remarque tók sjer þetta
ckki nærri, hann hafði búist við
því. Hann stakk handritinu niður í
slcúffu, en vinir hans lintu ekki lát-
um fyr en hann fór á kreik með það
á nýjan leik. Hann fór til annars
forlags, en fjekk sama svar. Loks
fór hann lil hins fræga Ullsteins-
forlags. Eftir nokkra daga fjekk
hann svar um, að bókin yrði gefin
út. .Hann hafði húist við að fá 1000
mörk í höfundarlaun, en voru hoðin
7000. Hann trúði ekki sinum eigin
eyrum og hjelt að boðið væri 700 og
drap þá á, að hann væri i samning-
um við annað forlag. „Úr því að svo
er skulum við hjóða yður 20.000
hið „hreina «o
klára“ LUX lðður
vernda yndisleik nýju
nærfatanna jrðar.
Skaðlaust
sem tært vatn.
'•í-LX 292-10
Er það ekki notalegt að fara í ný silkinærföt, eða þá
nærldæði, sem Gjörð eru úr beslu og mýkstu ull? Og
tr það ekki ergilegt, þegar slikar flíluir spillast strax
í fyrsta þvotti — hinir viðkvæmu þræðir lilaupa í
snurður, ullarþræðirnir Iilaupa saman í þófaberði
við núninginn. — Fíngerð klæði þurfa varkáran þvott,
og það er einmitt fyrir slík klæði sem LUX er aðal-
lega búin til. — LUX er svo iireint og ómengað að
.öðrið sem af því verður er jafn milt og mýksta vatn.
— Þessu hreirisandi skúmi þarf ekki að hjálpa með því
ið nugga þvottinn. LUX lireinsar livern þráð í flík-
nni án þess að á henni sjáist nokkur merki um slit. —
Afiur og aftur fáið ]ijer nærfötin yðar úr þvotti og
dtaf eru þau jafn yndisleg og þegar þau voru ný.
Galdurinn er ekki annar en sá að nota LUX.
Hafið þjer reynt það.
LUX
LEVER BROTHERS LIMITED.
PORT SUNLIGHT,ENGLAND.
Litlir pakkar 0.30.
Stórir pakkar 0.60.
mörk,“ sagði forstjórinn, — „með
því skilyrði að við fáum öll rjett-
indi að bókinni.
Remarque þótti þetta líkast æfin-
týri og undirskrifaði samstundis
samning. Síðar kom það fram, að
þó hann yrði ánægður með samn-
inginn mátti forlagið þó vera enn
ánægðara. Eftir mánuð frá útkomu
bókarinnar var nafn hans á allra
vörum um alt Þýskaland og allir lof-
uðu bókina nema þeir fáu aftur-
haldsmenn, sem fanst að þar kendi
eigi hins eina sanna „hermensku-
anda“. Forlagið jós saman peningum
og Remarque fór að iðrast eftir
samninginn. En því fórst vel við
höfundinn og gerði við hann nýjan
sámning, þannig að hann fjekk hálft
mark af hverju eintaki bókarinnar.
Á tveimur árum var „Tíðinda-
laust“ selt í 314 miljón eintaka í
heiminum, þaraf yfir miljón af
þýsku útgáfunni, og bókin var þýdd
á 25 tungumál. Remarque var mest
lesni höfundur í heimi.
Blaðadómendum har nokkurn-
veginn saman um, að enginn höf-
undur gæti skrifað framhald við
þessa bók, svo efnisrík var hún og
svo vel þótli honum hafa tekist að
lýsa hugsunarhælti ungu mannanna,
sem att var út í stríðið, og svo
meistaralegar voru lýsingar hans á
lífinu í skotgröfunum. Síðari sigur
Remarque, með hókinni „Vjer hjeld-
um heim“ varð þó ekki minni en
sá fyrri. Þessi bók er í engu síðri
fyrri bókinni, en i mörgu tilliti
fremri, frásagnarlistin er meiri,
lormið fastara og efnið: hvað við
tók h.já þýsku hermönnunum, þegar
þeir leggja af stað heim úr „hörm-
unginni miklu“ er engari veginn ó-
fróðlegra en lýsingin á skotgrafa-
lifinu í fyrri sögunni. Hún er sann-
kallað meistaraverk, sem enginn læs
maður ælti að láta ólesið.
Það, að sögur þessar hafa konrið
út nær samtimis á íslensku og
heimsmálunum er útaf fyrir sig tákn
þess, að hjer sje um óvenjulegar
bækur að ræða, því að íslendingar
hafa yfirleitt gert litið að þvi, að
þýða erlendar bækur. En svo sterk
voru áhrif fyrri bókarinnar alla leið
hingað, að hún var þýdd og gefin
út. Og síðari bókin hlaut að koma
á eftir.
Eins og „Tíðindalaust" var í flestu
lilliti merkilegasta bólcin, sem út
kom í fyrra, svo er „Vjer hjeldum
heim“ það í ár. Þessar bækur ættu
að komast inn á hvert einasta heim-
ili, ekki aðeins vegna listgildis
]ieirra, heldur jafnframt vegna þess,
að naumast er til það skrif i ver-
öldinni, sem getur betur vakið and-
stygð allra hugsandi manna á ó-
friðnum og ógnum hans.
F.A.Thiele
Bankastr. 4.
Þar fást
Sjónaukar mjög ódýrir. — Lestr-
argleraugu, með ókeypis mátun.
Sólskygni, Sólgleraugu o. fl.
V I K U R I T I Ð
kemur út einu sinni í viku
32 bls. i senn. Verð 35 aurar
Flytur spennandi framhalds-
sögur eftir þekta höfunda.
Tekið á móti áskrifendum á
afgr. Morgunbl. — Simi 500.
19 h e f t i útkomin.