Fálkinn - 12.09.1931, Side 4
4
F A L K 1 N N
Þéssir tveir ungii menn, sem
myndirnar eru af hjer að ofan
ætla að skemta Reykvíkingum í
næstu viku. Eru það þeir Einar
Kristjánsson söngvari og Garðar
Þorsteinsson cand. theol. Þeir
eru báðir orðnir Reykvíkingum
og landsmönnum yfirleitt að
góðu kunnir, því að báðir hafa
þeir sungið opinberlega og hafa
góða rödd og eru smekkmenn á
hljómlist. Hefir þótt góð skemt-
un að hlusta á þá hvorn í sínu
lagi, og þá verður ekki laka að
heyra þá báða saman. Þeir
syngja báðir einsöngva en auk
þess hafa þeir í boði skemtun,
sem er fremur sjaldgæf hjer,
því að þeir ætla að syngja dú-
etta. Bæði úr „Gluntarne“ og
eins úr söngleikjum. Þarf ekki
að draga i efa að þetta verður
ánægjuleg skemtun. Söngmenn-
irnir gera ráð fyrir að fara utan
um næstu mánaðarmót til frek-
ara söngnáms í Þýskalandi.
Þorvaldur Magnússon.fyr bóndi
á Rauðsstöðum i Arnarfirði,
Tjarnargötu 10A varð 75 ára 27.
f. m.
Niels Chr. Nielsen pakkhúsfor-
maður verður sextugur 16. þ. m.
Har. O. Andersen verslunar-
stjóri verður fertugur á morg-
un.
Jón Halldórsson trjsmíðameist-
ari verður sextugur 15. þ. m.
Þjóðhátíð Vestmannaeyinga.
V estmanneyingar halda á
hverju ári þjóðhátíð sína í Herj-
ólfsdal. Tjalda þeir þar tjöldum
sínum og dvelja daglangt við
allskonar skemtanir. Er staður-
fagur og kjörinn til slíks hátíða-
halds. í sumar hjelt Iþróttasam-
band íslands meistaramót i
sambandi við hátíðina og var
þar óvenju fjölment, eins og
myndirnar sem hjer fylgja, bera
með sjer. Myndirnar tók Sigur-
jón Jónsson úrsmiður
Guðný Kristín Finnsdóttir varð
sextug 3. þ. m.
í þorpinu Vandanconlt skamt frá
París fyrirfór þrettán ára gamall
drengur sjer nýlega af hræðslu við
refsingu foreldra sinna. Hann hafði
borað gat á hring á reiðhjóli sem
lcona ein átti og hafði hún haft í hót-
unum við hann og skaminað hann
svo, að hann þorði alls ekki að fara
heim tii sín, en náði einhversstaðar
í gamla skammbyssu og skaut sig
með henni.
----x----
Áttræður karl í Noregi hjólaði í
síðasta mánuði frá Mosjöen í Norð-
Guðrún Sigurðardóttir, Fram-
nesvegi 2 verður áttræð 1S. þ.m.
ur-Noregi til Oslo. Er leiðin 1020
kilómetrar og var karlinn 16 daga á
leiðinni.
Á Laugav. 2
gjörið þjer bestu
kíkiskaup
Ennfremur fáiö þjer ná-
kvæma og ókeypis gler-
augnamátun
á Laugav. 2