Fálkinn - 12.09.1931, Síða 10
10
F Á L K I N N
Kodak & Aflfa
Filmur.
Alt sem þarf til framköllunar &
kopiering, svo sem: Dags & Gas-
ljósapappír, Framkallari, Fixer-
bað, kopierrammar, Skálar, o. fl.
fæst í
LAUGAVEGS APOTEKI
Laugaveg 16. Sími 755.
Pantanir eru sendar gegn póst
kröfu. — Skrifið til okkar.
„Sirius“ súkkulaði og kakó-
duft nota allir sem vit hafa á.
GætiS vörumerkisins.
B R A S S O
fægilögur
3r óviðjafnanlegur
á kopar, eir, tin,
aluminium o.s.frv.
B R A S S O
er notaSur meir
meS ári hverju,
sem er að þakka
ágæti hans.
Fæst í öllum verslunum.
Foreldrar. Byrjið uppeldi á barni .
yðar snemma. Kaupi'ð MæSrabók-
ina eftir Prófessor Monrad. Kostar
3.75.
er víðlesnasta blaðið,
rdlKlUU er besta heimilisblaðið
Herbertsprent er allrabest
Fyrir kvenfólkið.
Hvernig á konan hans að vera?
í síðasta hlaði var sagt frá skoð-
unum ýmsra stúlkna á því hvernig
maðurinn þeirra ætti að vera. Nú er
best að karlmennirnir hafi orðið.
ÞaS er að vísu svo, að ástin á að
vera „bakþankalaus“ en samt er það
nú svo, að jiað er ekki aítaf gott, að
hún fái ein að ráða valinu. Blaðið
sem efndi til samkepninnar er um
var getið í síðasta blaði, bar fyrst
niSur á ungum læknanema og spurði
hann hvaða kröfur hann gerði til
konuefnisisins.
— Ef jeg gifti mig vil jeg fyrst af
öllu rannsaka hvort konuefnið mitt
hafi nokkra ættarfyigjusjúkdóma.
Ekki vegna þess eingöngu, að það
ráði úrslitum um ráðahaginn heldur
af því, að þá þarf ef til vill að grípa
til varúðarráðstafana.
Kaupsýslumaðurinn sem blaðið
spurði næst, gerði lítið úr varnagla
læknanemans en sagði: — Það hefir
máske ekki verið hugsað svo mikið
uin heimanmundinn og efnahag
konuefnisins og áður, en hafi svo
verið, þá eru tímarnir breyttir. Nú
er krepputími og atvinnuleysi og erf-
itt að bjarga sjálfum sjer hvað þá
heilli fjölskyldu. Það er því jiýðing-
armikið atriði hvort konuefnið er
rikt eða hvort það hefir fengið þá
mentun, að hún geti hjálpað til að
vinna fyrir heimilinu. Það styður
líka gengi mannsins í mannfjelaginu,
að húsmóðirin komi vel fyrir og
kunni að umgangast fólk. Maður
verður líka að veita þvi athygli,
hvernig tengdamóðurin er, þvi að
eplið fellur sjaldnast langt frá eik-
inni.
— Finst yður nokkuð atliugavert
við það, þó að stúlkan hafi verið
gefin fyrir að dufla meðan hún var
ólofuð?
— Æ, nei, segja piltarnir og ypta
öxlum. Við heimtum sjálfir svo mik-
ið frjálsræði, að það væri ósamræmi
í því, að unna ekki stúlkunum hins
sama, en þó innán ákveðinna tak-
marka og alls ekki eftir að þær hafa
trúlofast.
Einn roskinn ógiftur maður svar-
ar svo: — Það sem mest ríður á af
öllu er, að konan hafi sameiginleg
áhugamál með manninum sínum.
Auk þess á hún að vera glaðlynd og
blátt áfram og hafa móðurlegar til-
finningar. Hafið jiið tekið eftir, hvað
sumar ungar stúlkur geta verið ynd-
islegar þegar þær eru að leika sjer
við ungbörn eða horfa á þau? Þess-
ar stúlkur verða ábyggilega um-
hyggjusainar mæður.
Kunnið þjer við að kvenfólkið
farði sig? er spurningin, sem einn
er látinn svara.
— Já, ef það er gert í hófi gerir
jiað ekkert til, en sumar stúlkur
rata ekki meðalhófið í þessum efn-
um og gera sig viðbjóðslegar með
of sterkum litum. Og það er and-
styggilegt þegar duftið rýkur af
stúlkunum þegar maður kemur í ná-
munda við þær. Það kemur stundum
fyrir í dansi, að maður á erfitt með
að draga andann vegna duftsins sem
rýkur af stúlkunum, sem maður
dansar við. —
Aðal inntakið úr öllum svörunum
er þetta: Stúlkan á að vera látlaus,
hreinlynd, tilhaldssöm i hófi og góð-
ur fjelagi mannsins síns.
Stúfuð Egg.
Harðsjóð 4 egg og skift hverju
þeirra í fjóra parta og legg þá á fat.
Ger jafning úr 25 gr. smjöri, 25 gr.
hveiti og 2 desil. rjómablöndu og
hell yfir. Blanda i jafninginn mat-
skeið af hollenskri sósu, 2 teskeið-
um af citronsaft, salti og hakkaðri
pjetursselju.
Brúnið fjórar sneiðar af hveiti-
brauði, skorpulausu skornu í lengj-
ur, í smjöri. Stingið lengjunuum
niður í eggjastúfinginn og leggið tvo
tómata skorna í sneiðar utan með.
Yfir alt þetta er svo stráð hakkaðri
pjetursselju.
Þrettán ára gamall drengur í Am-
eríku, sem heitir Robert Wadlow er
orðinn um 7 fet á hæð og vegur 280
pund. Hvað skyldi hann verða hár
og þungur „þegar hann er orðinn
slór?“
----x----
ítalski miljónamæringurinn Scar-
ciglia frá Lecco varð níræður fyrir
skömmu og gat ekki fundið annan
betur við eigandi hátt að fagna þess-
um degi með en að gifta sig. Konan
c-r ekkja eftir liðsforingja sem fjell i
slriðinu og er 53 ára gömul.
IDOZAN
er af öllum læknum álitið
framúrskarandi
blóðaukandi og styrkjandi
járnmeðal.
Fæst í öllum lyfjabúðum.
■
Pósthúut. 2 .|
Reykjavík j
Stmar 542 . 254 !
oe |
Mltramkv.itl.l 1
! Alialenskt fyrirtæki.
•Allsk. bruna- og sjó-vátryggingar. j
| Hversri betri nje áreiöanlegri viöskifti.
| Leitiö upplýsinffa hjá nœsta umboösmanni. ■
VAN HOUTENS
konfekt og átsúkkulaði
er annálað um allan heim
fyrir gæði.
Stórfeld Wienar-nýumj:
Hárliðunargreiðan
Heimseinkaleyfi, verndað í öllum
menningarlöndum.
Með almennri greiðu
hárliðunargreiðunnar „VIENA“.
Þessi greiða liðar og viðheldur lið-
un hárs yðar, ef þjer aðeins notið
hana daglega. Þjer fáið indæla hár-
liðun þegar við fyrstu notkun. A-
byrgjumst góSan árangur og holl á-
lirif. Höfum hundruð þakkarbrjefa
frá ánægðum notendum, meðal ann-
ars frægum kvikmyndaleikkonum.
„Viena“-greiðan er ómissandi öllum
konum og körlum, sem vilja láta hár-
ið fara vel. Verð d. kr. 2.50 að við-
bættu burðargjaldi, 2 stk. burðar-
gjaldsfrítt. Send gegn póstkröfu....
Notkunarfyrirsögn fylgir.
Wiener Kosmetisk Industri
Skandinavisk Depot
Köbmagergade 46 Köbenhavn K.
t