Fálkinn - 13.11.1937, Blaðsíða 2
F Á L K I N N
'l
GAMLA BÍÓ
Upprelsnin f Kronstadt.
Framúrskarandi rússnesk kvik-
mynd bygð á sönnum viðburð-
um frá upphafi rússnesku bylt-
ingarinnar. Það er mynd sem
allstaðar erlendis liefir vakið af-
armikla eftirtekt og aðdáun
allra, sem sjeð hafa myndina.
Myndin verður sýnd bráðlega.
Gamia Bíó sýnir bráðlega mynd,
sem bygð er á sögulegum viðburð-
um og nefnist „Uppreisnin í Kron-
stadt“.. Myndin er rússnesk og ger-
ist á tímum bolsevíkauppreisnarinn-
ar árið 1917, eftir að Lenin og
Trotsky liöfðu steypt Kerenski frá
völdum. Ruddust þá andbyltingar-
sinnaðir herflokkar fram i áttina til
Petrogrr.d til þess að berja niður
bolsevíkana. Einliver hættulegasta
árásin kom frá Eystrasaltslöndunum
undir forustu Judenitch herforingja.
llinir leita hjálpar lijá flotanum og
myndin hefst með því, að Martinow,
foringi flotadeildarinnar í Kronstadt
safnar flokki sjóliða lil varnar gegn
innrásarhernum. Hann leggur af
stað með sjóliðadeildina, og gista
þeir um nóttina í barnaheimili, sem
gift kona, Katarina að nafni, veitir
forstöðu. Einn af sjóliðunum, Ar-
tem að nafni, sem ekki veit, að hún
er gift, lendir í ýmiskonar misskiln-
ingi af þeirri ástæðu, en verður að
fylgjast með herdeild sinni morg-
uninn eftir. Um morgunin lenda
þeir í bardaga á ströndinni, og
f;ra svo leikar, að allir sjóliðarnir
eru teknir tít fanga. Eiga þeir nú
aðeins um tvent að veljá, að ganga
i lið með óvinum sínum eða missa
lifið og þann kostinn velja þeir.
Voru þeir teknir af lifi með þeim
íiætti, að steinn er bundinn um
háls þeim og þeim hrundið fram
af kletlum í sjó niður. Aðeins einn
þeirra, sem hafði tekist að losa
hendur sínar, komst lífs af, og það
var Artem. Gerist hann nú aðal-
persónan. Honum tekst að hjálpa
samherjum sínum, en óvinir hans
fá makleg málagjöld. Þetta er mikil-
fengleg mynd og mjög spennandi.
ItAUÐA MYLLAN ÚR SÖGUNNI.
Það hefir upp á síðkastið slegið
mjög á frægð Rauðumyllunnar gömlu,
sem áður var miðstöð skemtanalífs-
ins í Seinehverfinu í Parísarborg. í
kreppunni var henni breytt 1 kvik-
myndahús, en nú hefir hún verið
seld verslunarfjelagi einu.
------- NÝJA BÍÓ. -------------
Heiður Englands.
Stórkostleg amerísk kvikmynd
er byggist á sannsögulegum við-
burðum úr sögu Englands er
gerðust i Indlandi árið 1857 og
i Krimstríðinu 1858. Út af þeim
viðburðum liefur enska skáldið
Lord Tennyson orl sitt ódauð-
lega kvæði
,The Charge of the Light Brigade'
Aðalhlutverkin, leika:
ERROL FLYNN og
OLIVIA DE HAVILLAND.
Stórmerkileg söguleg mynd, „Heið-
ur Englands“, verður sýnd í Nýja
Bíó á næstunni. Handritið að mynd-
inni er samið af Michel Jacoby, en
hugmyndina fekk hann úr hinu
heimsfræga kvæði Alfreds Tenny-
sons, „The Charge of the Light
Biigade", er liann orti um 600
manna riddarasveit af liði Englend-
inga í Krimstríðinu 1858, sem reið
samkvæmt skipun foringja síns úl
í opinn dauðann gegn fallbyssum
óvinanna til þess að ná virki einu.
Varð þessi atburður frægur mjög,
en því olli mest kvæði Tennysons,
sem livert mannsbarn á Englandi
þekkir enn í dag. Eins og kunnugt
er gerðu ýmsir indverskir höfðingj-
ai uppreisn gegn stjórn Englend-
SMYRTIVURUR
Kristíii Eyjólfsdióttir, Útskála-
hamri í Kjós, nú til heimilis
Grettisgötu 56 B, verður 70 ára
19. J>. m.
Ásmundur Jónsson, bó'ndi,
Krossum, Staðarsveit, verður 70
ára 18. J>. m.
SKULI JÓHANNSSON 8. CO.
Júlíus Júliníusson, skipsljóri,
verður 60 ára U. þ. m.
JAPANSKAR LOFTVARNIR í
SHANGHAI.
Hjer getur að líta eitt af loftvarn-
arvígjum Japana i alþjóðlega borgar-
blutanum í Shanghai. Loftvarnar-
byssunum er beint gegn kínverskum
liernaðarflugvjelum, sem eru að
'varpa niður sprengjum.
inga árið 1857 og unnu mörg grimd-
arverk, áður en Englendingum tóksi
að bælá óeirðirnar niður. Þessa tvo
stórviðburði í nýlendusögu Eng-
lendinga, indversku uppreisnina og
Krímstríðið, sameinar Jacoby i
niynd þessarri á stórfeldan hátl
þannig, að hann lætur einn af ind-
versku furstunum, sem tóku þátt í
uppreisninni, ganga í lið með Rúss-
um gegn Englendingum í Krimstríð-
inu. Gerist myndin l>ví bæði í Aust-
urlöndum (Indlandi og Arabíu) og
í Rússlandi (Krím). Sýningar í
myndinni eru margar stórkostlegar
og mikill kostnaður hefir verið við
töku myndarinnar, enda skipta þeir
þúsundum, sem koma fram í sum-
um alriðunum. Inn í hinn sögulega
ramma er ofin áhrifamikil ástar-
saga. Aðalhlutverkin leika Errol
Flynn, sem menn munu muna eftir
úr myndinni „Captain Blod“, og hin
gullfallega leikkona Olivia de Havil-
land, sem einnig lék í „Captain
BIod“ og „Anthony Adverse“, og er
leikur jieirra snilldarlegur í þessari
mynd. Önnur hlutverk eru einnig
skipuð ágætum leikurum. Þetta er
inynd, sem allir þurfa að sjá.
Maður einn í sveit i Noregi var
handtekinn um daginn, fyrir ó-
þokkabragð er hann var búinn að
leika margsinnis á skemtunum, en
það var að henda tómum flöskum
út yfir fólkið, sem var að skemta
sjer, og höfðu menn þráfaldlega
meiðst illa af þessu. Maðurinn hafði
gert þetta á skemtunum i ýmsum
bygðarlögum í nágrenni við þar
sem hann átti heima.