Fálkinn


Fálkinn - 13.11.1937, Page 5

Fálkinn - 13.11.1937, Page 5
1-’ Á L K 1 N N Kfnverskir hermenn í hardaga á oigstöðuniim i Norður-Kína. gert er í „sálmi“ einum sem er í „helgum ritum“ japanskra þjóðernissinna: „Vegna heilagrar trúar hefir Japan bæði máttinn og völdin. Aðrar þjóðir eiga að hlýða hin- um heilögu boðorðum í frið- scmd. Áður var sagt: Japan og hin ókunnu lönd. Nú skal sagt: Japan eitt land framtíðarinnar". Þannig er hljóðið. í yfirburða- þjóðinni í Japan. Lítum nú á undirlægjulandið Kína. Enginn hvítur maður þekkir Kína betur nú á dögum en skáldkonan Pearl Buck (hók hennar: Gott land kom út á is- lénsku í fyrra o.g gerist í Kína). Hún segir nýlega í stjórnmála- grein, að ai'staða Kina til .Tap- ans sje nú lík afstöðu filsins til kvrkislöngunnar, sem vindi sig um fílinn og herði að. Úr- slitin eru undir þvi komin hvort lengur þolir og hvort slangan gelur gleypt filinn, þó hann sje mörgum sinnum stærri en hún. Rjeltari mvnd er naumast hægt að gefa af einviginu milli Jaj)- ans og Kína, sem enn er á byrj- unarstigi. Kínverjar eru bjartsýnismenu og síðustu árin liugga þeir sig við það að tíminn sje besta vopnið gegn Japönum og að þeim muni að lokum farnast líkt og þeim, sem áður hafa ráðist á Kína, hæði Mandsjúum og Mongólum: að þeir muni Irijsast upp i Kína. Og þeir hæta því við, að þó að allir Japanar flyttu til Kina, þá mundu þeir, ef þeir á annað l)orð hvrfu ekki inn í' þjóðar- heildina eins og Mandsjúar forðum, verða svo fyrirferðar- litlir meðal kínversku risaþjóð- arinnar, að enginn yrði var við þá. ; Pérsónulega hatar Kinverjiun hvern japanskan einslakling. Þeir eru eins og eldur og vatn cg geta ekki samlagast. En Kin- verjarnir og Mandsjúarnir i hinu nýja japanska lýðríki Mandsjukuo gleðjast eigi að síð- ur yfir því, sem .Tapanar hafa gert fvrir landið, yfir hverju nýju húsi og verksmiðju, sem l)vgð er og vfir hverjum nýj- um skóla eða sjúkrahúsi, sem tekur lil starfa. Japanar hafa ákveðið að kenna öllum Mand- sjúkobúum að lesa og þeir hafa ákveðið að ■ uppræta sóttarplág- urnar. Og Mandsjúkuobúum þykir vænt um, að Japan ver landamæri þeirra fyrir komm- únistiskum áróðri og' að þeir liafa útrýmt ránsferðunum og hafa gefið 30 miljónir kínversk- um hændum tryggari vinnuskil- vrði og betri afkomu en áður var. Þeir geta ekki gengið ])ess duldir að Japan hefir lagt mil- jónir i ýms fyrirtæki í Mand- sjúkuo, til vegalagninga og járnbrauta og að heilsufar og almenn afkoma batnar svo að segja dag frá degi. Þessvegna væri rangt að ■segja að kínversku hændurnir liði við stjórn .Tapana, því að sannleikurinn er sá, að hvar sem Japanar koma í Kína, þá hlómgast alt og grær og íbú- arnir hrósa happi, eftir margra ára kvalir af hendi ræningja- foringjanna og siðspiltra kín- verskra embættismanna og her- foringja. En Kinvcrjar vita lika vel, að Japanar gera þetta ekki af umönnun fyrir Kína heldur vegna hins óhjákvæmilega slríðs milli Japans og Rúss- lands, sem síðar verður háð á sojahauna-ökrunum í Mand- sjúkuo. Kinverjar sem nej'ðast til að eiga skifti við Japana, eins og I. d. í Mandsjúkuo hugga sig við það, að auglýsingar þeirra um landið lokka árlega mil- jónir af Kínverjum en ekki Japönum inn í landið. Eins og stendur eru aðeins 200.000 japanskir en 30 miljón kín- verskir hændur í Mandsjúkuo og það er áætlað, að i Iok þess- arar aldar verði að minsta kosti hundrað miljónir kín- verskra hænda í Mandsjukuo en ekki nema ein miljón Jap- ana. Það er fyrir það girt. að mik- ill innflutningur Japana geti orðið á þessari öld, því að þá vr-ðu Jaþanar nú þegar að hæta kjör kinversku bændanna svo, að þau yrðu ekki lakari en Jap- anar eiga að venjast. því að annars gætu þeir ekki lifað i sama þjóðfjelaginu. En Japan- ar hafa gagn af Mandsjúkuo, þó þeir flvtjist ekki þangað. Skólaskyldan hefir eigi aðeins það í för með sjer, að Japanar fá nýjan markað fyrir sjálf- hlekunga, pappír, rafmagns- lampa og ódýrar iðnvörúr, heldur fremur hitt, að í fram- tíðinni verða i Mandsjúkuo Kinverjar, sem hafa fengið japanskt uppeldi, í stað ólæsra armingja, sem nú eru þar. Kín- verjar ganga þessa ekki duldir, þegar þeir selja sig í japanska þjónustu, þeir segja að Japan- ar vinni að marki, sem sje tutt- ugu ár fram í timanum, en að kínverskir föðurlandsvinir vinni að marki, sem náist 2037, þvi að þá muni hinar 100 miljónir siðmentra Kínverja hafa gleypt japanska minnihlutann í sig og rekið japanska herinn úr landi. Þá muni Mandsjúkuo-Kínverj- arnir vera orðnir þess megnug- ir að verja land sitt, sameinast Ivína á ný og máske taka við stjórninni þar. Svona er kinverski hugsun- urhátturinn. Hin rólega kín- verska lífsspeki er fullkomin andstæða hins tímabundna japanska hugsunarháttar.. Pearl Buck álítur, að Kínverj- inn verði þolnari, vegna þess hvernig lífsskoðun hans er. Hann er altaf við þvi búinn að taka því sem að höndum ber, láta sjer nægja lítið, þegar meira er ekki að fá og taka ó- sigrunum með ljettri lund. Og hvað sem öðru líður að kjósa lífið fremur en dauðann vegna lífsins sjálfs, sem hann metur meira en héiður, velgengni og ættjarðarást. Japaninn lifir hinsvegar sam- kvæmt þveröfugri lífsskoðun. Hann hefir sett sjer lögmál orkunnar og einbeitninnar að ná settu marki, þó að það kosti lífið. E'n nái hann ekki markinu, þá er alt tapað, sam- kvæmt lífsskoðun hans, og líf- ið einskis virði. Japaninn sviftir sig lífi ef hann fær ekki metn- aðaróskir sínar uppfvltar og liann hefir heðið hnekki á æru sinni, að því er honum sjálf- mn finst. Það er þessi lífsskoðun, sem á drýgstan þáttinn í því, að Japanar urðu syo fljótir að verða voldug þjóð. Hún hefir ger.t þeim kleift að ná svq miklu á skömmum tíma og þora að ágirnast meira. Og fullkomin vöntun þessarar lífs- hyggj.u hefir syift Kína öllum þjóðernismetnaði, en eigi að siður haldið lífinu í Kínverjum sem þjóð, þrátt fyrir erlend vf- irráð. Og liún getur enn haldið lifinu i Kína, eftir að Japanar hafa hlaupið af sjer hornin. Það sem Kína er að upplifa nú gagnvarl Japan hefir það up])lifað fvrir nokkur hundruð árum, þegar herskáir Mandsjú- ar ruddUst suður fyrir Kin- verska múrinn og tóku völdin i Kína. Og Kínverjar, friðsam- asta þjóð heimsins, að rnaður ekki segi eina friðsemdarþjóð- in í heiminum, veittu heldur ekki viðnám þá. Samkvæmt sinni kínversku lífsspeki ljetu þeir sigurvegarana gera all sem þeir vildu, ljetu þá hyggja skraut- legar hallir i Peking með breið- um strætum, svo að riddaralið- ið gæti riðið þau i breiðfylking- um. Þeir veittu þeiili allan lúx- us og smjaður sem þeir gátu óskað sjer og á nokkrum mannsöldrum voru sigurvegar- arnir orðnir óvígir, höfðu srnit- ast af kínversku lífsspekinni og Kínverjar hjeldu áfram að stjórna sjer sjálfir með sínu lagi, sem ekki byggir á valdi, aga og þrælsótta heldur á til- trú, samkomulagi og friðsemd. Og þeiin fanst gott að gera þetta fvrir ekki meira verð cn svo, að þeir hefði drotnara frá Mandsjúríu og gyldu honum of- urlitinn skatt. Að vísu er ómögulegl að hera Japan í dag saman við Mandsjúana, sem rjeðust inn í Kina forðum. En samt mun Japan rekast á hina kínversku lifsskoðun, ef það ætlar að Ieggja Kína undir sig og það er vafamál, livort Japan tekst að sigra þessa kínversku lífs- skoðun. Þetta, að öll niðurlæg- ing og tilhliðrun sje tilvinnandi til þess aðhalda lifinu, þessi kæni, seigi og bjartsýni lifs- vilji hann eiga Japanar ekki til. Og það er spurning, hvort ])essi lífsvilji lifir ekki lengur en hæði fallbvssur Japana og hin vestræna menning þeirra. Því að ekkert kemur yfirdrotn- urunum ver en að þeir sem þeir eru að kúga skifti ekki skapi, en sjeu jafn glaðir og ánægðir eftir sem áður. En þannig eru Kínverjar. Evrópumenn þurfa líka að velta fvrir sjer spurningunni um, hvernig svara heri drotn- unarstefnu Japana. Vonandi Framh. á bls. í//.

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.