Fálkinn - 12.02.1938, Side 8
8
F Á L K I N N
Presturinn var a'ð tala urn fyrir
gömlum manni og reyna að fá hann
til að iðrast synda sinna og gerast
guðrækinn.
— Jæja, sagði karlinn, — jeg skal
koma i kirkju til yðar á sunnudag-
inn, ef þjer svarið mjer einni spurn-
ingu.
— Hvaða spurning er það, sagði
presturinn vongóður.
— Hún er þessi: Hver var kona
Kains?
— Vinur minn, svaraði prestur-
inn. — Það er ómögulegt fyrir yð-
ur að verða guðrækinn fyr en þjer
hættið að skifta yður af annara
manna konum.
„SKÝJAKLJÚFUR“ —
eða „Eric-hattur“ með skrítinni fjöð-
ui úr „chenille“.
KVÖLDKJÓLL
úr smáragrænu „veIour“, mjög nær-
skorinn ofan frá mitti og niður fyrir
mjaðmir. Geiri er settur í pilsið að
aflan til þess að víkka það svo, uð
hægt sje að hreyfa sig í því, og er
liann úr sama efni og upphluturinn
á kjólnum.
MAÐUR MEÐ FLJETTUR.
Það má lieita að fljetturnar sjeu
orðnar jafn sjaldsjenar og hvítir
hrafnar, síðan kvenfóllcið fór að
snoða sig. Gamall bakari suður í
Niederlausitz í Þýskalandi tók það
til hragðs að láta sjer vaxa liár og
ftjetta sig, l>egar kona hans og dóttir
liöfðu báðar látið snoða sig. Og
liann hefir heitið því að leggja ekki
niður fljetturnar fyr en konan láti
sjer vaxa hárið aftur.
KONUNGUR í SKRÚÐA.
Þetta er konungurinn í Gambodge
í Indo-Kína, tjósmyndaður í spari-
fötunum. Konungurinn er með alveg
samskonar kórónu og nýlega var
stolið í nýlendusafninu í París, cn
enginn vænir hann um að hafa stol-
ið henni.
NÝSTÁRLEG KÁPA.
Göngufrakki úr gráu klæði og er
hann sjerstaklega nýstárlegur fyrir
það, að vösunum er komið fyrir i
axlarstykkinu. Ódýr kápa og falleg,
sem gerir litlar kröfur til buddunnar,
en því meiri til vaxtarlagsins.
PASTEL-BLÁTT OG HAFBLÁTT.
Handprjónaður kjóll úr nýtisku
garni. Hann fer ungum stúlkum vel.
UNDIRKONUNGUR Á ÚLFALDA.
Hertoginn af Aosta, hinn nýi und-
irkonungur ílala í Etíopíu virðisl
kunna sig í Afríku, ef dæma má nf
því livað hann situr keikur á úlfald-
anum. Annars er það talinn allmikill
vandi að sitja úlfalda vel.
FLUGKONA ÚR VAXI.
Eftir melflug til Suður-Afríku hefir
Jean Batten flugkonu hlotnast sá
heiður að vera inótuð í vax og sett
á safn Madame Toussauds í London.
Hjer sjest flugkonan „við hliðina á
sjálfri sjer“.
LILY PONS
ameríkanska söngkonan og kvik-
myndastjarnan, sýnir sig i þessum
afkáralega búningi í nýrri frum-
skógafilmu, sem verið er að taka
núna.