Fálkinn - 12.02.1938, Síða 9
F A L K I N N
9
Allir „æfa sig undir stríð" — líka
Danir. Nýlega höfðu þeir æfingu
í því að „formyrkva“ borgina til
þess að gera hana ósýnilega flug-
vjelum í myrkri, ef árás væri gerð,
og var borgarhlutinn Christians-
havn valinn til æfingarinnar. Öll
Ijós voru slökt, svörtum slæðum
vafið um götuljóskerin en lög-
reglumejin fengu hvitt bindi um
handlegginn svo að hægt væri að
grilla í þá. Á myndinni sjest frá
vinstri: lögregluþjónn með hvítt
bindi, aðstoðarmenn hvítklæddir
og loks menn að „blinda“ götu-
Ijósker.
„Grísku bráðhjónin“ Páll prins og
Friðrika Louise af Brúnsvík sjást
á myndinni hjer að neðan. Páll er
bróðir Georgs konungs, sem er ó-
kvæntur og stendur hann því næst-
ur til ríkiserfða.
' " S:
imm-Æ
lllill ' •
^ww' sv’*v'
itoHI
***• / <
* -m::■:
. 4-í*4
Myndin að ofan er af ameríska
tundurbátnum „Panay“, sem jap-
anskir flugmenn skutu á austur í
Kína. Vakti þetta óhemju gremju i
Bandarikjunum og krafðist almenn-
ingur þar, að stjórnin gripi til refsi-
aðgerða i staðinn,en forsetinn krafð
ist persónulegrar fyrirgefningarbón-
ar af keisaranum. Við loftárásina
fórust nokkrir menn og skipið var
herfilega útleikið.
Danir ætla að halda stórfenglega
landbúnaðarsýningu á Bellahöj á
komandi sumri og eru Haucli for-
seti landbúnaðarráðsins og Högs-
bro Holm aðalritari ráðsins for-
göngumenn hennar. Verður þetta
mesta landbúnaðarsýning, sem
haldin hefir verið i Danmörku. Á
myndinni t. v. sjest hvernig sýn-
ingin muni lita út.