Fálkinn - 12.02.1938, Page 12
12
F Á L K I N N
.IONATHAN GRAY:
HVER
ÞEIRRA
VAR J
I.EYNILÖGREGLUSAGA.
þeirra voru í danssalnum. Sir Jeremiah,
Fay og frú Fenton voru annarsstaðar. Gat
það verið nokkurt þeirra?
Gaman að sjá þig lagamegin við lín-
una, Gus, sag'ði Val við kunningja sinn,
sem hafði verið svo ötull og hjálpsamur
við lögregluna. Er það til að leiða af þjer
grun ?
Langar þig til að það komi á daginn
að jeg sje „Uglan“? spurði Hallam. —
Glæpamenn eru altaf litlir vexti. Borðaðu
þig stóran og lieiðarlegan, var móðir mín
vön að segja við mig.
Þetta er grábölvað, sagði Fenton of-
ursti og þurkaði svitadropann af rauðu nef-
inu- — Ráðast á heiðarlegan mann á lians
eigin íögheimili! Ræna, að viðstöddum lög-
reglumanni i húsinu! Þið ungu mennirnir
ættuð ekki að laka þetta eins og hvert ann-
að gaman. Það var misráðið að láta hitt
fólkið fara. Það hefði ekki átt að sleppa
nokkurri sál út úr húsinu fjrr en rúbínarnir
voru fundnir, ekki hefði jeg gert það, ef
jeg hefði mátt ráða.
Hann var svo óðamála að enginn skildi
meira en svo hvað liann sagði.
Nú hafði kvenfólkið verið kallað inn i
aðra stofu og þar gengu máltólin hratt.
Einkum voru það Nora Crombie og Pamela
Hartley, sem höfðu margt að segja. Diana
sagði ekkert, hún var með hugann annars-
staðar en við rúbínana. Og Imogen Chat-
cart hlustaði líka-
Mjer dettur í hug próf núna, það er
alveg eins og maður sje að bíða eftir verk-
efninu, sagði Nora. Hugsum okkur ef
þjófurinn hefir laumað rúbínunum að
okkur!
Jeg þarí' ekkert að óttast, sagði Pam-
ela. Jeg hefi verið með Humph Proctor
að kalla má í alt kvöld, svo að við getum
svarað eilt fyrir bæði og hæði fvrir eitt-
En hvar var Hump Proctor þegar þjer
voruð ekki með honum spurði Nora- Þeg-
ar tuttugu pör dansa saman og eru allaf að
skifta þá geta tilfellin orðið mörg. En má-
ske er hægt að komast eitthvað í áttina
með þessu móti. Ef maður gæti vitað upp
á hár hvenær þjófnaðurinn var framinn,
þá væri það ekki ógerningur. Þá væri nóg
að vita um l. d. þrjá dansa. Hver dansaði
við yður „Kossinn sem kramdi mitt hjarta?“
og næsta dansinn á undan og eftir? Þeir
spyrja okkur kanske um það.
Svo hófst rannsóknin. Frú Fenton og Fay
könnuðu kvenfólkið, en Tyrrell fulltrúi og
þjónar lians tveir skoðuðu karlmennina.
Þetta var gert með ítrustu vandvirkni en
rúbínar fundust engir.
Við höfum rannsakað herbergi ykkar
og farangur, svo að þið getið farið að hátta
þegar þið viljið, sagði Tyrrel fulltrúi.
Þetta hafði verið spennandi, en árang-
urslaust. En hefði einhver verið þarna við-
staddur með nægilega skarpa eftirtekt þá
hefði hann sjeð hönd, sem læddist hak við
silki-gluggatjaldið, tók rúbínadjásn sem
lijekk þar á títuprjóni og Ijet það renna
ofan i vasa, sem hafði verið rannsakaður
og dæmdur tómur að vera.
VI. Meiri þjófnaður.
Það er ekki venja að Scotland Yard skifti
sjer af þjófnaðarmálum sem gerast utan
umdæmis hans. Öðru máli gegnir ef um
morð er að ræða. En þjófnaðarmálin þykir
lögreglunni sem í hlut á ekki ofvaxið að
eiga við, þó að vitanlega sje „Yardinn" alt-
af hjálplegur með allar upplýsingar og
annað, sem á kynni að þurfa að halda.
Gus Hallam var fyrstur í morgunverðinn
af öllurn helgargestunum, senr höfðu orðið
um nóttina í Railton Priory. En hann varð
samt ekki fyrstur að horðinu. Þegar liann
kom inn í horðstofuna sat Ashdown full-
trúi fvrir við horðið og var að g'æða sjer á
stóru stykki af steiklu fleski með eggjum.
Heill og sæll, kunningi, kallaði Hallam
Jeg get ekki neilað því, að mjer fansl
lögreglan hjer ó staðnum verða nokkuð
sein í vöfum, en hún hefir þó haft liugsun
á að kalla á ljósið mikla. Ert þú altaf starf-
andi, bæði nætur og daga?
Það má heila svo, svaraði Ashdown.
Við verðum altaf að Iíta á það sem ger-
ist, ef nokkur leið er til þess að það standi
í sambandi við þá menn, sem við erum að
leita að.
Þú átl sennilega við „Ugluna“? Var
það ekki skrítið, að við skyldum vera að
segja þjer í gær frá rúbínunum, sem lík-
lega mundu freista „Uglunnar“, og svo
kemur hann og gómar þá
Jú, víst var það skrítið.
Hann hlýtur að vera iðinn við kolann.
Maður skyldi halda, að hann hefði unnað
sjer hvíldar eftir veiðina hjá Rossenliaum-
Hefirðu talað við fjölskylduna?
— Nei, ekki ennþá. En nú kemur Tyrrell
fulltrúi bráðum og þá getum við tekið til
starfa.
Langar þig ekki lil að taka skýi’slu af
mjer, eða viltu ekki láta trufla þig meðan
þú ert að draga á bátinn?
Það gerir ekkerl til, ef þú bara talar
ekki með fullan munninn.
Jæja, það er ekki svo að skilja, að
jeg hafi mikið að segja, sagði Hallam og
drakk teyg úr kaffihollanum. En það var
einstaklega skemtilegt lijer í gærkvöldi og
mikið af laglegum stúlkum, Fay sjálf er nú
einstök i sinni röð. Alt fór fram með snild
og prýði þangað til einhver náungi hljóp
upp á hljómsvcitarpallinn og tilkynti, að
sir Jeremiah hefði verið harinn í hausinn
í sömu svifunum og hann liafði tekið djásn-
ið sitt út úr hvelfingunni. Að því er mjer
skilst lá við að hann væri kæfður i sínum
eigin nærbrókum, og svo hvarf bófinn. Jeg
stakk upp á þvi að við rannsökuðum hús-
ið hátt og lágt, cn lögreglumaðurinn skip-
aði okkur að slanda þar sem við vorum
komin — liann skyldi sjá um hitt. Svo
náðu þeir i einhvern aumingja og ljetu
hann sleppa meðan þeir voru að gramsa i
vösum okkai’. Mín skoðun er sú .... halló,
þarna kemur Val! Góðan daginn, Val!
Hjerna er kunningi okkar úr Scotland Yrard.
Hann kom lijer í bílið og útsofinn, af þvi
að hann hýst við að finna „Ugluna lijerna.
Val hafði auðsjáanlega sofið vel. Hann
hafði klætt sig mjög gaumgæfilega og virl-
UGLAN?‘
ist vera í besta skapi. Hann kinkaði kolli
til Asdown og leit yfir mathorðið.
Eru ekki fleiri komnir á löpp ennþá?
spurði hann.
Eftir svona æsinganótt vill kvenfólk-
ið fvrst og fremst fá morgunmatinn sinn í
rúmið. En Humph og Billy Alper fara vísl
að koma úr þessu.
Það mun ekki vera neitt nýtt að
frjetta?
Ekki annað en það, að þetta var
„Uglan“. Við sögðum líka að liann mundi
koma! Og all og sumt sem lögreglan gerði
var að senda hingað þennan hálfvitlausa
mann í þjónsbúningi.
Hvernig veistu að það var „Uglan“?
Jeg hjelt að maður gæti aldrei verið viss
um slíkt fyr en hann væri húinn að senda
þessa venjulegu gjöf sína til lögreglunnar.
En jeg geri ráð fyrir, að allir stórþjófnaðir
verði skrilaðir hjá honum þangað til hann
er kominn undir lás eða er hættur að
starfa.
Ashdown svaraði ekki. Hann var ekki
sjerlega málskrafsmikill og undi þvi illa
að maður hefði svona málefni í flimtingi.
Hvernig ætlar þú að byrja? spurði Val.
Getum við lijálpað þjer eitthvað?
Fyrst ætla jeg að liafa tal af sir Jere-
miali og skoða svefnherhergið hans. Hann
hlýtur að geta gerl s,ier einhverja liug-
mynd um óþokkann.
Ilann hjelt áfram að borða, en var auð-
sjáanlega ckki í sem bestu skapi. Hann lá
aldrei á Iiði sínu í vinnutímanum, en það
var ógaman að láta eyðileggja fyrir sjer
fridag.
Jæja, gamli kunningi, hjer gelur verið
um margar leiðir að ræða, sagði Gus og
Ijet ekki rugla sjer í rásinni. Fyrst er nú
iim þjónana að gera og þá sem voru leigð-
ir fyrir samkvæmið, meðal annars liljóm-
sveilina. Ilver veit nema einhver af liljóm-
sveitarmönnunum hafi sjeð sjer færi á að
stcla rúbínunum og hafi svo stungið þeim
inn í knjefiðluna sína. Svo eru gestirnir
sem fóru lieim í nótt og svo við sem urðum
eflir. Og svo loks snáðinn sem þeir tóku
hjerna fyrir utan. Það er ekki golt að vila
hverskonar manna þjófurinn telst til, en
það verður auðvitað að þaulprófa alla.
Rjett athugað, tautaði fulltrúinn.
Gus hefir rjett fyrir sjer í einu, sagði
Val. Það er áreiðanlegt að þjófurinn
hlýlur að hafa vilað eitthvað. Hann hefir
vilað Iivar svefnherbergi sir Jeremiah var
Segjum að það liafi verið cellistinn. Hann
vissi að allir geslirnir voru niðri, gerir sjer
erindi út og fer upp til þess að sjá, hvort
hann geti hnuplað einhverju. Svo rekst
hann inn í svefnherbergi sir Jeremiah og
hittir hann með rúbínana í lúkunum. Hann
notar tækifærið og stingur rúbínunum inn
í cellóna. Og svo heldur hann áfram liljóm-
leikunum og siiilar með meiri tilfinningu
en nokkurntíma áður. Þetta er nú min
skoðun, en annars getur eins vel verið að
það hafi verið fiðluleikarinn eins og cell-
istinn.
Nú kom Humph Proctor. Hann varð líka
mjög forviða er hann sá Aslidown við borð-
ið og heilsaði honum hjartanlega.
Mjer dettur i hug hvort við ættum
ekki að fara að hugsa til broltferðar sem
fyrst, sagði hann. Húsráðendurmr