Fálkinn - 12.02.1938, Síða 14
14
F A L K 1 N N
MOUNT EVEREST SIGRAÐ!
Framhald af bls. 7.
smámsaman skýrðist svo að hann
sá að það var Challoner, sem stóð
yfir honum. — Drekkið þjer þetta,
Hamilton!
Tvær aðrar myndir sveimuðu
skamt frá og urðu smámsaman að
Langmuir og Revere.
— Hann rankar bráðum við sjer,
sagði Revere og hló. Hamilton opn-
aði munninn og drakk úr glasinn
og við það komst ný hreyfing á
blóðið. Hann drakk meira og reyndi
að setjast upp.
— Nú er það betra, livísliði hann
þegar Challoner þrýsti hónúm aftur
á hak. — Hvar funduð þið okkurV
Koníakið hresti hann og meðvil-
und hans fór að skýrasl.
- Langmuir gekk undir 'yður
jiegar við hittum ykkur, sagði Chal-
loner. Við höfum verið á höttunum
siðan klukkan fjögur og nú er hún
hálfátta. Já, það sópaði að ykkur,
sagði hann og liló. Það var ekki
anriað sjáanlegt en að ])ið væruð
%-dauðir, báðir tveir.
i— Hvernig fór það, Chase? spurði
Revere forvitinn. Við sáum ykkur
uppi á tindinum, í kikinum. Þeir
símuðu frá aðalstöðinni og sögðu
að það hefði verið alveg heiðskírt
nokkrar mínútur, svo að þeir höfðn
sjeð yður líka.
Hamilton tók eftir að Langmuir
horfði á hann. Það var vist eittlivað
sem hann átti að muna. Hann ósk-
aði að hann gæti hugsað skýrt, þó
ekki væri nenja eina sekúndu. Niðri
í svefnpokanum strauk hann hend-
inni yfir vasann og þreifaði eftir
sígarettuhylkinu -— þar var það —
tiylki Mallorys. Mallorys, sem hafði
komist á undan honum.
— Langmuir snerist um öklann,
þegar við vorum komnir þriðjung
vegar upp, hvíslaði hann. — Hann
ætlaði að halda áfram, en jeg skip-
aði honum að verða eltir jiarna.
Ef hann liefði ekki verið þar mundi
jeg aldrei hafa komist lifandi til
baka.
Nú var heili Hamiltons loksins
farinn að starfa. Hann las þakklætið
út úr augum fjelaga síns — jæja, nú
voru þeir kvittir.
—- Heyrið þjer, Hamilton, ságði
Challoner, — reynið nú að skilja
það, sem við erum að segja við
yður. Er yður Ijóst að þjer eruð
orðinn frægur maður? Þjer hafið
unnið þrekvirki, sem enginn hefir
unnið á undan yður. Aðalstöðin
hefir tekið á móti fjölda heillaóska-
skeyta til yðar, síðan frjettin barsl
út — og svo látið þjer eins og þjer
hefðuð ekki hugmynd um, að þjer
sjeuð fyrsti maðurinn, sem hefir
komist upp á MoUnt Everesl.
Það varð löng þögn þangað til
foringinn svaraði. Alt virtist ljós-
ara nú: Sígarettuhylkið í vasa hans
var eign Mallorys, sem hafði sigrað
en hafði farist fyrir ellefu árum.
Mallory, hugsaði Hamilton, hlýtur
að hafa brosað, jafnvel í dauðanum.
því að liann vissi jafnvel á síðustu
sekúndunum, að einhverntíma
mundi einhver finna hylkið hans —
sönnúnarmerki þess að hann hefði
komist á Mount Everest.
Hamilton þreifaði i vasa sínum
og svo rjetti hann hylkið fram. Það
glampaði á Jiað við lampaljósið.
— Jeg var ekki allra fyrstur,
livíslaði hann og horfði brosandi á
Challoner. — Nærri því fyrstur
en ekki alveg!
Það er víðar en hjer á voru landi,
að mikið fossaafl sje, sem liægt er
að virkja. Þannig er talið að i Missi-
sippi-dalnum í Bandaríkjunum, og
hliðardölum hans, sje hægt að
virkja samtals 1C miljónir kíló-
watta, en af því eru aðeins tvær
miljónir kílówatta virkjaðar nú.
Piltur ð villigötum.
Um daginn komst upp í Sví-
þjóð, að unglingspillur einn,
19 ára ganiall, sonur efnaðra
lijóna, hafði framið yfir fimtíu
innhrotsþjófnaði á þrem árum,
án þess nokkurn hefði grunað.
að hann væri við glæpantál rið-
inn. Piltur þessi hét Filipp And-
erson, og var vel látinn af fólki
alment. En þetta komst upp
þannig, að hann lét oflar en
einu sinni í ljós við nágranna,
að hann væri sjerlega sniðugur
glæpamaður, þó lögreglan hefði
enga hugmynd um, að svo væri.
Skoðuðu flestir, er hann ympr-
aði á þessu við þá, þetta vera
heilaspuna hans, en einn maður
trúði þessu samt hálft í hvoru,
og sírnaði lögreglustjóranum í
lijeraðinu um þetta. Kom harin
lafarlaust heim til mannsins, er
símað hafði, og var pilturinn
þá staddur þar ennþá. Fölnaði
pilturinn, þegar hann sá lög-
reglustjórann, því hann grunaði
þá þegar, að maðurinn liefði
kært hann. Meðgekk liann undir
eins fyrir lögreglustjóranum,
að hann hefði framið yfir 50
innbrot, og fór hann með lög-
reglustjóranum, til þess að sýna
honum hvar hann geymdi þýf-
ið, því ekki hafði hann gert
neina lilraun til þess að selja
neitt af því. Var það geymt i
tveim smáhellum, er voru með
nokkru millibili, og var lög-
reglustjórinn í tvær stundir á
göngu, til þess að skoða þessa
staði, sem lágu langt frá al-
faravegi. Meðal þýfisins voru
tvær vatnsfölur, er pílturinn
geymdi i armbönd, hálsmen, úr
og yfir 100 hringi, er hann
hafði stolið-
Foreldrar drengsins höfðu
enga hugmynd hafl um þétta
háttalag hans, frekar en aðrjr,
og ekki böfðu þau heldur haft
hugmynd um, hve mikið hann
var úli á nóttunni. Það var á
mjög stóru svæði, að liann hafði
framið þessi innbrot sin, og fór
harin jafnan bjólandi á staðinn.
Hafði hann til siðs að hjóla þá
eins hratt og hann með nokkru
móti gat, til þess, að ef grunur
félli á hann, að hann væri jafn-
an stuttu eftir að liann framdi
þjófnaðinn, kominn lengra i
burt en að líklegt þætti, að hann
gæti verið valdur að honum.
En hann þurfti aldrei á þessu
að halda, því það féll aldrei
neinn grunur á hann. Lítið
hafði hann liaft upp úr mörgum
innbrotsþjófnaðinum, þó var
saml það, sem fanst í hellunum
samtals yfir 5000 króna virði.
Þegar hann var spurður að
því, hvernig stæði á því, að
liann væri að stela, þar eð for-
eldrar hans væru vel efnaðir,
og hann sjálfur hefði nóg, enda
hefði hann ekki reynt að selja
þýfið, skýrði hann frá, að hann
hefði, þegar hann var 15 til 16
ára, lesið mikið af glæpasÖgum,
LdtskipaÍErðir yíir nurður-fitlants-
haíið heíjast að nýju á þEssu ári.
Eftir að þýska loft-
skipið „Hindenburg“
eyðilagðist í maímán-
uði 1937, hefir engum
laftskipaferðum verið
haldið uppi, hvorki
yfir Suður-Atlantshafið
nje Norður-Atlántshaf-
ið. Samkvæmt nýjustu
frjettum má búast við
|)ví að Þjóðverjar byrji
á slikum ferðum að
nýju á komandi sumri.
Hið nýja loftskip
þeirra, sem enn hefir
ekkert nafn fengið,
heldur er auðkent með
verksmiðjunúmerinu
„LZ 130“, er að verða
fullsmiðað og mun ver;
fylt með helíumgasi.
Fyrsti skipsfarmur af
þessari gastegund er á
leiðinni frá Ameríku til
Evrópu. Hinir þýzku
loftskipasmiðir og aðr-
ír, sem liafa áhuga
fyrir þessu samgöngu-
tæki, fagna þvi mjög,
að stjórn Bandaríkja
hefir látið tilleiðasl og
veitt útflutningsleyfi
fyrir þessari gastegund.
Útflutningur þessi er
þó þeim skilmálum
bundinn, að skipið,
sem þetta gas er notað
í. sje einungis haft í ferðum milli
Evrópu og Norður-Ameríku. Þjóð-
verjum verður því ekki kleifl að
halda uppi í framtíðinni eins og á
árunum 1932—37 loftskipaferðum
fyrir póst- og farþegaflutning milli
Þýslcalands og Suður-Ameríku, en
ferðir þessar voru á sinum tíma mjög
líðar og vinsælar vegna hins gi.fur-
lega tímasparnaðar, þar sem lofl-
farið flaug leiðina á 2—3 sólar-
hringum, en farþegaskipin eru enn-
þá 10—15 daga á þessari leið.
„LZ 130“ er mun stærxa en
„Hindenburg“, en mun þó aðeins
geta tekið 40—50 farþega, á móti
þeim 50—70, sem „Hindenburg"
gat flutt, vegna þess að burðarafl
helíumgass er ekki nærri eins mikið
og vetnis, sem var nolað í „Hind-
enburg".
Með notkun helíumgass er al-
gjörlega komið í veg fyrir þá eld-
hættu, sem getur stafað af velni og
leiddi til hins hörmulega slyss i
Lakehurst. Rannsókn á því slysi.
sem nú er til lykta leidd, hefir leitt
Nýjasíi loftskipciskáli Þjoffverja i
smíðum, á heimsfliigvellimim Frank-
furt am Main. Grindin sem sést
verður hurðarop skálans. I baksýn
sjesl skálinn, sem „Hindenbnrg"
var geymdnv i á sínum tima.
i ljós að skipið hefði aldrei fuðrað
upp, ef helíumgas hefði verið í
belgjunum, þó að það hefði orðið
fyrir skemdum annaðhvort af bil-
un eða mannavöldum.
Þar sem eitt skip nægir ekki lil
þess að halda uppi áætlunarferðum,
er nú verið að byrja á smíði enn
annars loftfars „LZ 131“ fyrir 100
farþega, sem á að vera fullsmiðað
árið 1939. Gamla Iræga loftskipið
„LZ 129 Zeppelín greifi“ mun aldrui
verða notað til farþegaflugs framar,
vegna jjess að það var smíðað fyrir
vetni, en ekki helíumgas, en breyl-
ing myndi ekki borga sig, vegna
þess, hve skipið er orðið gamalt.
Ef reynsluferðir ,,LZ 130“ hepnast
vel, sem eiga að byrja innan
skamms, mun skip þetla verða eitt
í ferðnm milli Frankfurt am Main
og Lakehurst, þangað til að „LZ
131“ verður einnig fullsmíðað, en
fyrr verður líldegast ekki liægt að
halda uppi áætlimarférðum með
loftskipum.
og fengið óstjórnandi löngnn, til
þess að reyria, bvort hann gæti
ekki framið innbrot þannig, að
lögreglan gæli ekki baft hendur
i hári hans. En þegar hann var
einusinni hyrjaður á þessu, hjelt
hann áfram, af því að þeíta var
ákaflega spennandi. En óþol-
andi var, að enginri skyldi vita
um hve sniðugur hann væri á
þessu sviði, og þessvegna hafði
hann ekki getað þagað alveg
með það.
Síðan hinri heimsfrægi söngvari
Caruso ljest, hefir enginn söngvari
komið í Ijós, sem gæti jafnast á við
hann. En nú er bráðlega von á
söngmanni, sem verið Iiefir að nema
undanfarin ár, og talið er, að eigi
enn nokkuð eftir til þess að ná full-
komnun. Iiann heitir George W.
Stinson, og var lögreglumaður i San
Fransciscó, áður eii hann fór að
nema söng. Söngvari þessi er með
stærstu mönnum vexli, hann er gift-
ur, og er konan haris slaghörpu-
leikari, svo ekki þarf hann langt að
fara til þess að fá undirspil, ef hann
Inngar (il þess að taka lag.
•Nýr þjóðgarður helir bæst við
hiiia mörgu og stóru þjóðgarða, er
áður voru í Bándaríkjunum. Þessi
nýi þjóðgarður, sem er um 1000 fer-
kílómetra á stærð, er í svonefndum
Fossafjöllum, vestur undir Kyrrahafi
Miklir skógar eru á svæði þessu
og þrjú snævi þakin f-jöll, en bygð
nær engin.
---—x----