Fálkinn - 12.02.1938, Page 15
F Á L K 1 N N
15
Páll Guðmiindsson, bóndi að
Hjálmstöðum í Laugardal, verð-
ur 65 ára 12. þ. m.
C. Björnes
símaverkstjóri.
í hitteðfyrra um þetta leyti var
haldið upp á 75 ára afmæli Björness
símavérkstjóra, og hlýtur liann því
að vera 77 ára í ár, þó að hann gæti
að útliti til verið 20 árum yngri, og
svo mikill er dugur hans og þrek,
að enn liggur hann úti á hverju-
sumri með vinnuflokk sinn í tjöld-
um og vílar ekki fyrir sjer langar
göngur, þó að ekki sjeu allsstaðar
malbikaðar götur eða hel'laðir vegir
undir fæti.
Björnes er norskur að uppruna og
var kominn á besta þroskaaldur —
hálf fimtugur —, er hann kom
hingað fyrst. Honum hefir því ekki
gengið sem best að temja sjer að
tala íslenskuna, en hann les þó
málið fullum fetum á bók eða i blaði
og fylgist enn þá með öllum dag-
skrármálum þjóðarinnar af lífi og
sál, enda er hann nú orðinn ís-
lenskur í húð og hár, hefir fyrir
löngu hlotið rjett íslenskra ríkis-
borgara, er kvæntur íslenskri konu
og hefir aukið við henni kyn sitt. —
Ef það hefðu nú verið forlög Björ-
ness að vera uppi í Noregi á land-
námstíð Islands, má telja víst, að
leiðir hans hefðu legið hingað til
lands eigi að síður. Aldrei hefði
hann unað ófrelsi og kúgun, Har-
alds hárfagra, svo mikið á hann
sammerkt við hina fornu Norðmenn,
er flýðu þau ókjör. En vopndjarfur
mundi hann hafa verið á þeirri
tíð, og vel hefði hann verið talinn
hlutgengur með afreksmönnum, þó
að þeir væru þá margir og miklir
l'yrir sjer. Má því með rjettu telja
Björnes í hópi islenskra landnáms-
manna. En ekki hefir hann samt lát-
ið sjer nægja neinn smáskika af
landi voru, því að segja má, að hann
hafi á sinn hátt lagt alt ísland undir
sig, þó að vopn hans sjeu ekki jafn
geigvænleg og áður tíðkuðust, held-
ur ofboð meinlausar bröndóttar
stikur, sem hann rekur þó ekki í
neinn, en stingur aðeins niður
hverri á sinn stað í jörðina.
Og nú niun naumast vera sú sveil
hjer á landi, að Björnes hafi ekki
verið þar með stikur sínar og sagt
mönnum sinum fyrir verkum við
lagningu nýrra síma eða viðgerðir á
gömlum línum. Og allsstaðar hjá
góðu fólki er gamli maðurinn vel-
sjeður gestur. — Er þó ekki fyrir
það að synja, að gjarna mundi hann
vilja vega að allri ómensku og ó-
nytjungshætti, hvar sem slikt við-
gengist, enda er hann, þegar því er
að skipta, harður i horn að taka,
En hann er einn þeirra ágætu
manna, sem fyrst og fremsl gera
kröfur til sjálfra sín og síðan til
annara i rjettu hlutfalli þar við. En
manna fyrstur er hann líka til að
meta það, sem vel er gert, og mörg-
um verkstjórum og kaupgreiðend-
um er hann fúsari á að viðurkenna
þá grundvállarsetningu, að „verður
er verkamaðurinn launa sinna“.
Þess er óskandi að Björnes haldi
enn um langa hríð sinni ágætu heilsu
og fái enn notið langra lífdaga sjer
og sínum til ánægju en fósturjörð-
inni til heilla. H.
FÓLKSFJÖLGUNABNEFND.
Á Norðurlöndum hafa stjórnirnar
skipað nefndir til þess að alhuga
hina miklu fækkun barneigna, sem
allstaðar er ríkjandi nú. Einkum
kveður mikið að þessu i Svíþjóð.
Danska og sænska nefndin áttu
ftind með sjer á Christiansborg .i
Khöfn fyrir nokkru og sjest hjer á
myndinni Wohlin, formaður sænsku
nefndarinnar, ásamt konu úr nefnd-
inni.
VOPNAHLJESDAGURINN.
Það eru ekki aðeins hernaðarþjóð-
irnar úr heimsstyrjöldinni, sem
minnast vopnahljesdagsins. Myndin
hjer að ofan er af atliöfn, sem fram
fór í Kaupmannaliöfn á vopnahljes-
daginn við grafir útlendra her-
manna.
••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••«
Ný bók eftir próf. Guðbrand Jónsson: !
Innan um
grafir dauðra. I
í þessari bók eru 6 greinar; •
Innan um grafir dauðra.
Lourdes. :
Hálsmen drottningarinnar.
London. :
Paris. •
Heimssýningin í Bruxelies 1935. :
ÞETTA ER SKEMTILEG BÓK. I
Byggingarvörur
fyrirlioojandi:
Veggfóður, Húnar,
Strigi, Skrár,
Matroil, Lamir,
Distemper, Saumur,
Málning, Gler.
Verð og oæði þegar orðin landskuun.
Vöror sendar gegn póstkrðfu om iand alt.
VerstuntD
BRYNJA
Laugaveg 29 Simar: 4160 & 4128
_______________________________
STEFAN STEFÁNSSON:
Plönturnar
III. útgáfa er komin út.
Verð kr. 9.00.
Fæst hjá bóksölum.
Bókaverslun Sigfúsar Eymnndssonar
og Bókabúð Austurbæjar B. S. E., Laugavegi 34.