Fálkinn - 19.03.1938, Side 2
FÁLKINN
------ GAMLA BÍÓ ----------
Fjörugir
hveitibrauðsdayar.
bráðskemtilug mynd sjerstaklega
fyrir ungt fólk og nýgift hjón,
þar ber margt skrítið fyrir aug-
un.
Aðalhlutverkið leikur:
ANNY ONDRA
skemtilegri en nokkurntima áð-
ur. —
Myndin verður sýnd bráðlega.
í Ganda Bió verður bráðlega sýnd
skemtileg mynd fyrir unga sem gamla
og nefnist „Fjörugir hveitibrauðsdag-
ar“. Allir vita, að hveitibrauðsdagar
eiga ekki sama nema nafnið, og þeg-
ar brúðguminn fœr það alvarlega ráð
af föður sínum, að hann verði að
taka konu sina föstum tökum þegar
í upphafi og fara að sem sigurvegar-
inn, sem leggur undir sig lönd og
borgir, hvað sem það kostar, en
brúðirin fær hinsvegar það ráð af
móður sinni, að gera slíkt liið sama
við mann sinn, þá geta allir, sem
einhverja reynslu hafa í þessum efn-
um eða jafnvel þótt þeir hafi ekki
nema nasasjón eina, gert sjer í hug-
arlund, hvernig liveitibrauðsdagarnir
hafi farið hjá ungu hjónunum, Anny
Ondru og Hansi Söhnker, sem leika
aðalhlutverkið í myndinni. Hjer skal
efni myndarinnar ekki rakið, en það
er óhætt að segja, að hún er full af
lífi og fjöri. Það er hraði í rás við-
burðanna, hraði í leiknum og með
eldingarhraða þýtur eiinlestin áfram,
sem flytur ungu lijónin í hina sögu-
legu brúðkaupsferð þeirra. Myndin
sýnir ekki aðeins hina glöðu hveiti-
brauðsdaga, heldur einnig margskon-
ar árekstra, yndisleik, ástir, afbrýði-
semi, uppgerðartár og dramatisk á-
lök. þarna er margt að læra fyrir
nýgift hjón, einkanlega það, sem all-
ar unga T konur þurfa að vita. Þetta
er besta Anny Ondra-mynd, sem enn
liefir sjest, og eru það meira en litil
meðmæli með myndinni, því að mörg-
um kvikmyndagesti hefir Anny Ondra
skemt með frískleika sínum og gáska.
í þessari mynd gefur liún sjer full-
komlega lausan tauminn svo að hún
hrífur alla með sjer og hættir ekki
fyrr en allir eru komnir í gott skap.
MARY EKKJUDROTNING BRETA
var um jólin á skemtun sem haldin
var fyrir örkumlamenn úr striðinu
og var skemtunin haldin i reiðskóla
Buckinghamhallarinnar. Hjer sjest
ekkjudrotningin skera jólakökuna.
Á SKÍÐUM
Á FJÖLLUM
f SÓLBÖÐUM
ver PIGMENTAN liúð yðar
því að flagna í sterkri sól.
Húðin verður fallega brún
og mjúk.
PIGMENTAN dregur ekki
úr liinum lieilsusamlegu á-
hrifum sólargeislanna, en
veitir húðinni nauðsynlega
vörn gegn of snöggum áhrif-
um ultra-fjóluhláu geislanna
í sólarljósinu.
Heildsölubirgðir:
I H. Ólafsson & Bernhöft.
VIÐ VÖTN og SJÓ
PIGMENTAN inniheldur
engin litunarefni, en mikla
fitu„ sem er húðinni afar-
nauðsynleg i útiverunni.
SKÍÐAFIMI.
Myndin er sunnan úr Alpafjöllum
og sýnir skíðagarp renna sjer fram
af hengju mikilli. Það þarf áræði til
að leika listir þær, sem skíðamenn
eru farnr að temja sjer á síðari árum.
Vestur í Florida er maður sem
Grafton heitir og hefir gert þá heit-
strengingu að Iáta setja sig í tugt-
lnisið í Fort Meyers einn dag fyrir
hvern dag sem ekki sjest til sólar.
Hann hefir verið tvo daga i tugthús-
inu í síðustu fjögur ár.
-----x----
Vitið þið hvað bifreið heitir á
flæmsku? „Snellpaardelooszonder-
spoorwegpetrolristulg".
Frú Josefína Waage, Seljalandi,
verður 80 ára 19.. }>. m.
Jón Jóhannsson, sldpstjóri, varð
00 ára 13. };. m.
NÝJA bíó.
Bráðskemtileg mynd með
undrabarnið
SHIRLEY TEMPLE
í aðalhlutverkinu.
Sýnd um helgina.
Nýja Bíó sýnir um helgina eina al'
hinum vinsælu myndum, þar sem
Shirley litla Temple leikur aðalhlut-
verkið. Myndin heitir „Leynifarþeg-
inn“ og fjallar um litla munaðarlausa
telpu, sem kemst í ýms ævintýri.
Litla telpan Ching-Ching (leikin af
Shirley Tem])Ie) er dóttir trúboða í
Kína, en ræningjar hafa myrt báða
foreldra hennar, svo að henni er
komið í fóstur til trúboða eins í
annari borg. Einn góðan veðurdag
berst sú fregn um bæinn, að ræn-
ingjar sjeu komnir þangað. Trú-
boðinn er hvattur til að flýja, en
hann aftekur það með öllu. Einn af
vinum föður Ching-Ching litlu tekur
þá til sinna ráða. Hann sækir telp-
una til trúboðsskólans, þar sem liún
var, og sendir mann með hana til
bróður síns í Shanghai, þar sem hún
getur verið örugg um líf sitt. Sendi-
maðurinn reynist nú ekki betur en
það, að hann stelur af henni pening-
unum og skilur hana eftir vegalausa
í Shanghai ásamt hundinum hennar
sem hún hafði tekið með sér. Hún
gengur nú upp í bæinn að leita sjer
matar og er j)á svo heppin að rekasl
þar á mann, reynist henni vel. Vildi
það svo til, að hún lieyrði mann
einn spyrja, hvort hjer væri nokkur,
sem skildi ensku og gæti verið túlk-
ur fyrir sig. Gaf lnin sig þá fram við
hann og eftir það lágu leiðir þeirra
saman. Hann var vellrikur ferða-
maður á stóru gufuskipi, sem liafði
aðeins stutta viðdvöl í borginni. At-
vikin haga þvi svo, að hún er flutt
um borð í skipið sofandi í bílnum
hans, án þess að hann viti af, og
skipið er þegar látið úr liöfn, þegar
Ching-Ching litla vaknar og er orð-
in „blindur" farþegi á skipinu.
Lengra skal nú ekki fylgt sögunni,
en margt skemmtilegt og óvænt bei
við á hinni löngu sjóferð, en sögunni
lýkur með því að velgerðamaður
hennar gengur að eiga fallega stúlku,
sem hann kynnist á skipinu, og þau
koma sjer saman um að gera Ching
Ching litlu að kjördóttur sinni, svo
að framtíð hennar er vel borgið.
Leikur Shirley Temple er óvið-
jafnanlegur að vanda.
Alll ineð islenskum skrpum1